Pútín kom Ólafi Ragnari ekki fyrir sjónir sem kolruglaður öfgamaður eða fantur

Fyrr­ver­andi for­seti Íslands telur að leita þurfi nýrra leiða til að halda Pútín í skefjum. Þær aðferðir sem hafa verið reyndar hingað til dugi ekki til.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

„Við erum að búa okkur til ein­hverja mynd af Rúss­landi sem er ein­fald­lega ekki rétt. Og það er hættu­spil að halda áfram að byggja utan­rík­is­stefnu Evrópu og Banda­ríkj­anna á ein­hverri mynd af Rúss­landi.“

Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson fyrr­ver­andi for­seti Íslands í sam­tali við Egil Helgason í Silfrinu á RÚV í morgun.

Hann rifj­aði upp umræð­una sem var í kringum Krím­skaga­deil­una árið 2014 og við­skipta­þving­anir ESB og Banda­ríkj­anna gagn­vart Rúss­landi sem Ísland tók þátt í á sínum tíma. „Við fórn­uðum millj­örðum í útflutn­ings­tekjur. Við héldum að það myndi hafa áhrif en það hafði bara ekki nokkur áhrif,“ sagði hann.

Egill sagði að það hefði lík­lega verið leið Íslend­inga til að standa á móti ofbeldi. Ólafur sagði að það hefði verið meira til að rétt­læta okkur sjálf.

„Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá búum við í ljótri ver­öld. Við búum í ver­öld þar sem ríki eru með hags­muni og þar sem að vald­hafar geta verið vondir og grimmir og svo fram­vegis. Og alveg eins og á tímum kalda stríðs­ins þegar ógn­ar­jafn­vægið kom í veg fyrir styrj­aldir þá þurfum við að finna leiðir og aðferðir sem búa til þannig aðhald að það leiði ekki til þessa hörm­unga sem við erum að upp­lifa núna.

Þannig að það sem er alveg ljóst, hvort sem okkur líkar betur eða verr, er að þær aðferðir sem við höfum verið að beita á síð­ustu tutt­ugu árum hafa ekki haldið Pútín í skefjum. Og það sem ég er í raun­inni að segja núna er: „Eigum við ekki að opna umræð­una og finna ein­hverjar nýjar aðferðir til þess að geta haldið honum í skefjum?“,“ sagði Ólafur Ragnar.

Er Pútín bilaður?

Egill spurði hvort hann héldi að Pútín væri hrein­lega bil­aður. „Nei, það held ég alls ekki,“ sagði hann og spurði hvort til væri sá þjóð­ar­leið­togi sem fynd­ist það í raun­inni.

„Hann er hins vegar að reka mis­kunn­ar­laus og af ótrú­legri hörku það sem hann telur vera geopóli­tíska hags­muni Rúss­lands – þessa stóra mikla lands með þetta gríð­ar­lega vopna­búr. Og það er miklu lík­legra að við náum árangri að horfa á hann þannig heldur en að segja bara: „Já, hann er klikk­aður. Hann er bara klikk­aður.““

Ólafur Ragnar greindi frá því í við­tal­inu að hann hefði fyrst hitt Pútín fyrir tutt­ugu árum síðan í opin­berri heim­sókn til Rúss­lands.

Egill sagð­ist muna eftir því að Ólafur Ragnar hefði talað vel um Pútín á þessum tíma.

„Já, hann hefur á öllum þessum fundum sem ég hef átt við hann verið til­tölu­lega hóg­vær, til­tölu­lega skyn­samur, hlustað á öll rök, aldrei reynt að ýta mér eða Íslandi í ein­hverja óþægi­lega stöðu og ég hef nú rætt við marga for­ystu­menn í ver­öld­inni. Og meira segja á fyrstu árunum þá fannst mér margt af því sem hann sagði mjög merki­legt. Hann sagði til dæmis við mig á þessum fyrstu fundum að hann hefði varað Banda­ríkin gagn­vart ísla­mist­unum, að þeir myndu ráð­ast á Banda­ríkin fyrr eða síðar eins og þeir hefðu ráð­ist inn í Rússland. En það hefði eng­inn vilja hlusta á hann.

Og á öllum þessum árum sem ég átti sam­skipti við hann – og ég var líka með honum í opin­berum sam­kvæmum og öðru slíku – þá kom hann mér ekki fyrir sjónir sem kol­rugl­aður öfga­maður eða fantur. En hann er nátt­úru­lega í landi sem hefur engar lýð­ræð­is­hefðir.“

Ólafur Ragnar sagð­ist þó hafa tekið eftir því fyrir fimm eða sex árum síðan að hug­ar­far Rússanna væri að taka breyt­ingum. Þeir væru komnir með „bunker menta­lity“ eins og þeir væru að lok­ast inn í byrði vegna þess að ver­öldin væri á móti þeim. Evrópa væri á móti þeim og Banda­ríkin væri á móti þeim – og það skipti þá engu máli því þeir ætl­uðu ein­ungis að hugsa um sjálfa sig.

Hægt er að hlusta á við­talið hér á 45 mín­útu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár