Öruggur sigur hjá Íslandi

Íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta sigr­aði tyrk­neska lands­liðið á Laug­ar­dals­vell­inum í kvöld, 2-0, í öðrum leik und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins í fót­bolta árið 2018.

Mörkin skor­uðu Theodór Elmar Bjarna­son og Alfreð Finn­boga­son, bæði mörkin komu á þriggja mín­útna kafla í fyrri hálf­leik og eftir það var sig­ur­inn aldrei í hættu. Reyndar er fyrra markið ekki form­lega skráð á Theodór Elmar, heldur á varn­ar­mann Tyrkja, Omer Toprak, sem skotið fór í.

Ef eitt­hvað er voru Tyrkir heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk, og íslenska liðið að sama skapi óheppið að bæta ekki við fleiri mörkum.

Nið­ur­staðan er því að Ísland er með fullt hús stiga út úr þessum tveimur heima­leikjum í vik­unni, á móti Tyrk­landi og Finn­landi, og sjö stig af níu í und­ankeppn­inni alls. Leik­ur­inn í kvöld var jafn­framt tíundi leik­ur­inn í röð án taps hjá lið­inu á Laug­ar­dals­velli.

Íslenska liðið er með sjö stig líkt og króat­íska liðið. Króat­íska liðið er einmitt næsti and­stæð­ing­ur­inn, en liðin munu mæt­ast í Króatíu þann 12. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár