Aukið bóluefnaframboð mun auka hraða bólusetninga á næstunni

Bóluefni Janssen verður dreift í næstu viku og 16 þús­und skammtar af AstraZeneca bólu­efni eru á leið­inni frá Norð­mönnum. Óljóst hvernig frum­varp um aðgerðir á landa­mærum verður end­an­lega afgreitt að sögn sótt­varna­læknis.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Kamilla Rut Jósefsdóttir á upplýsingafundi dagsins.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Kamilla Rut Jós­efs­dóttir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Almannavarnir

„Ég held að það sé bara margt óljóst enn þá hvernig frum­varpið verður og hvernig það verður end­an­lega afgreitt,“ sagði Þórólfur Guðnason á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag um aðgerðir á landa­mær­unum sem rík­is­stjórnin kynnti í gær. Hann sagði þær tölur sem miðað væri við til skil­grein­ingar á áhættu­svæðum væru ekki frá honum komnar.

„Hvort þessi tala verði inni í frum­varp­inu eða hvort það verði falið sótt­varna­lækni að skil­greina þessi áhættu­lönd. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði hann um frum­varpið. Miðað er við að fólk sem komi frá svæðum þar sem nýgengi er yfir 1000 smit á síð­ustu fjórtán dögum fyrir hverja 100 þús­und íbúa verði að dvelja í sótt­varna­húsi eftir kom­una til lands­ins. Fyrir fólk sem kemur frá svæðum þar sem nýgengi er á bil­inu 750 til 1000 verði meg­in­reglan sú að fólk dvelji í sótt­varna­húsi en hægt verði að veita und­an­þágu frá regl­unni. Frum­varpið sem kynnt var í gær verður rætt á Alþingi síðar í dag.

Spurður að því hvort að hann teldi nægi­lega gripið inn í með þessum aðgerðum benti Þórólfur á að miðað sé við nýgengi smita í hér­uðum landa en ekki heild­ar­tölu nýgengis fyrir hvert land. „Það eru fjögur lönd í evr­ópu þar sem svæði innan þeirra landa eru yfir þús­und, það eru fjögur lönd sem falla þá inn í flokk­inn yfir þús­und. Það eru að minnsta kosti átta lönd í evr­ópu sem falla í flokk­inn 750 til 1000 þegar við skoðum svæði innan land­anna. Við erum ekki að tala um hvernig heild­ar­talan heldur ef eitt svæði innan hvers lands er yfir þús­und eða á milli 750 og þús­und þá fellur allt landið inn í þann flokk.“

Meiri hraði í bólusetningum

Nú eru yfir tíu pró­sent full­orð­inna íbúa lands­ins full­bólu­settir. Það kom fram í máli Kamillu Sigríðar Jós­efs­dóttur smit­sjúk­dóma­læknis. Hún sagði töl­una eiga eftir að hækka á næstu dögum þar sem bólu­efna­fram­boð sé að aukast. Evrópska lyfja­stofn­unin hefur sam­þykkt Janssen bólu­efnið og því verður dreift í næstu viku. Þar að auki munum við fá 16 þús­und skammta af AstraZeneca bólu­efni frá Norð­mönnum og því verður hægt að bólu­setja hraðar í ald­urs­hópnum 60 til 69 ára en gert hafði verið ráð fyrir.

Hún sagði kerfið sem smíðað var til að halda utan um bólu­setn­ing­arnar ekki vera full­komið, fólk sem ekki telur sig í áhættu­hópi hafi til að mynda fengið boð í bólu­setn­ingar. Hún sagði að vel hafi tek­ist að boða fólk í áhættu­hópum sem sækir lækn­is­þjón­ustu til heilsu­gæslu og sjúkra­húsa í bólu­setn­ingu. Ekki hafi tek­ist að boða fólk sem sækir lækn­is­þjón­ustu til lækna á stofum jafn vel. Það sé vegna þess að gagna­grunnar land­læknis nái ekki til starf­semi stofulækna. Kamilla sagði að vinna við upp­lýs­inga­söfnun frá stofulæknum standi yfir til þess að hægt sé að ná til þess­ara ein­stak­linga.

Ekki ástæða til að herða aðgerðir innanlands

Í gær greindust tólf ein­stak­lingar með COVID-19 og af þeim voru 10 í sótt­kví. Þórólfur taldi lík­legt að smitin utan sótt­kvíar tengd­ust bæði fyrri hópsmitum. Hann sagði Íslenska erfða­grein­ingu hafa tekið um 1100 sýni í slembisk­imun í gær en í henni greind­ist eng­inn með COVID-19.

Síðustu daga hafa 75 greinst með COVID-19, þar af 58 í sótt­kví. Flest þess­ara smita tengd­ust þremur hóp­sýk­ingum. Alls hafa rúm­lega 60 manns greinst með COVID-19 í stærstu hóp­sýk­ing­unni, þeirri sem teng­ist leik­skól­anum Jörfa.

Þórólfur sagði að á þess­ari stundu teldi hann ekki nauð­syn­legt að leggja fram til­lögur um hert­ari aðgerðir inn­an­lands. Hann væri hins vegar til­bú­inn til að leggja slíkar til­lögur fram ef þörf krefði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár