Efnahagur Frakklands stefnir á vegg

Lands­fram­leiðsla Frakk­lands dregst saman og vextir af skuldum þyngj­ast. Fjár­mála­ráð­herra segir brýnt að sam­þykkja fjár­lög sem dragi úr halla rík­is­sjóðs, en almenn­ingur mót­mælir.

Macron og Lecornu
Macron og Lecornu Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti og Sébastien Lecornu for­sæt­is­ráð­herra við athöfn í Hanoi í maí 2025. Frönsk stjórn­völd glíma við vax­andi áhyggjur af halla rík­is­sjóðs og skuldum lands­ins. Mynd: Ludovic Marin/AFP

Franska hag­kerfið dróst saman á þriðja árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt tölum sem birt­ust í dag. Fjár­mála­ráð­herr­ann var­aði við því að efna­hag­ur­inn gæti „rek­ist á vegg“ ef stjórn­völdum tæk­ist ekki fljót­lega að fá sam­þykkt fjár­lög sem drægju úr hall­anum.

Verg lands­fram­leiðsla dróst saman um 0,1 pró­sent frá júlí til sept­em­ber, að sögn frönsku hag­stof­unnar Insee. Áhyggjur af stöðu rík­is­fjár­mála hafa farið vax­andi, sem og póli­tísk spenna fyrir for­seta­kosn­ing­arnar næsta vor.

Sam­drátt­ur­inn varð sam­hliða því að verð­bólga jókst úr 3,1 pró­senti í sept­em­ber í 3,4 pró­sent í októ­ber á árs­grund­velli. Hún hefur ekki verið meiri síðan í jan­úar 2024, að sögn Insee.

Franska hag­kerfið hafði staðið í stað á öðrum árs­fjórð­ungi eftir að hafa dreg­ist saman um 0,2 pró­sent á þeim fyrsta.

„Það hefur eng­inn hag­vöxtur verið í þrjá árs­fjórð­unga,“ sagði Roland Lescure fjár­mála­ráð­herra í sam­tali við útvarps­stöð­ina France Info.

„Af þessu má draga þá ályktun að franska …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár