„Brexit er ekki framtíð Evrópu“

Jean-Claude Juncker útli­staði metn­að­ar­fullar áherslur fyrir sam­bandið á næstu árum í árlegri ræðu sinni í Evr­ópu­þing­inu. Þetta var í fyrsta sinn í langan tíma sem Juncker gat bent á jákvæðar hag­tölur og til­kynnti að Brexit væri ekki fram­tíð Evrópu.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Und­an­farið ár hefur verið erfitt fyrir Juncker. Í kjöl­far þess að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla í Bret­landi gerði Brexit að stað­reynd virt­ist sem popúl­ismavindar myndu blása yfir álf­una og leiða til þess að fleiri rík­is­stjórnir með andúð á ESB myndu kom­ast til valda. Gríð­ar­lega tíma­frek og erfið end­ur­koma margra evr­ópskra hag­kerfa úr hverri krepp­unni af fætur annarri í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar miklu árið 2008 hafði leitt til umræðu um grunn­stoðir ESB og tak­mark­anir stofn­ana þess til að takast á við end­ur­upp­bygg­ingu hag­kerfa þess í ljósi hins efna­hags­lega mis­ræmis sem ríkir á milli margra ESB-ríkja.

Eflaust hefur verið létt­ara yfir Juncker við skrif ræðu þessa árs sam­an­borið við þá síð­ustu. Popúlísta­flokkar urðu undir í kosn­ingum í Hollandi og Frakk­landi, hag­vöxtur í ESB hefur verið hærri en í Banda­ríkj­unum tvö ár í röð, og hefur stuðn­ingur almenn­ings við ESB auk­ist tals­vert eftir ringul­reið í eft­ir­málum Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar og kosn­ingu pópu­list­ans Donald Trump í Banda­ríkj­unum. Þá hefur útganga Bret­lands úr ESB leitt til hröð­unar áforma um auk­inn sam­runa innan sam­bands­ins en Bretland hefur lengi verið síst ákafi með­limur sam­bands­ins og ítrekað beitt sér gegn auknum sam­runa.

„Evrópa sem verndar“

Juncker fór yfir víðan völl í ræðu sinni, sem flutt var 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Einna helst lagði hann áherslu á að meira yrði gert til að gera fleiri ESB-ríkjum kleift að taka upp evr­una og láta ESB fara með yfir­stjórn yfir fjár­hags­á­ætlun evru-svæð­is­ins ásamt því að búa til emb­ætti fjár­mála­ráð­herra ESB. Þá lagði Juncker til að Schengen-svæðið yrðri stækkað með því að inn­lima Búlgaríu og Rúmeníu, og að stefna ætti að því að greiða leið­ina fyrir fleiri lönd á Balkanskaga að ganga í sam­bandið. Þessar stefnur yrðu ekki ein­ungis til að sam­ræma hag­stjórn sam­bands­ins heldur einnig koma til móts við áhyggjur margra Austur-Evr­ópu­ríkja um að hið marg­þrepa skipu­lag sem ein­kennir ESB stuðli að því að þau séu umtöluð sem eins konar ann­ars flokks þegnar. Til að ítreka það við­horf skír­skot­aði Juncker til nýlegrar upp­götv­unar um að vörur og mat­væli sem seldar eru í mörgum Austur-Evr­ópu­ríkjum eru af lak­ari gæðum en í Vestur-Evrópu og und­ir­strik­aði að styrkja þyrfti eft­ir­lit með iðn­að­inum.

Frí­versl­un­ar­samn­ingur voru líka á dag­skrá hjá Juncker og til­kynnti hann að hefja ætti frí­versl­un­ar­við­ræður við Ástralíu og Nýja-Sjáland og ljúka við­ræðum við fjöl­mörg ríki áður en kjör­tíma­bili hans sem for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB lýkur árið 2019. Juncker sagði að ESB væri að vinna að því að upp­færa frí­versl­un­ar­samn­ing við Mexíkó og myndi stefna að því að skrifa undir samn­ing í fyrsta sinn við Mercosur-ríkin fjögur, Brasilíu, Argent­ínu, Úrúgvæ og Paragvæ, fyrir lok árs­ins. Þá gerði ESB sam­komu­lag við Japan um umfangs­mik­inn frí­versl­un­ar­samn­ing í sumar. Á hinn bóg­inn lagði Juncker til að styrkja yrði eft­ir­lit með erlendum fjár­fest­ingum til þess að vernda evr­ópsk fyr­ir­tæki frá utan­að­kom­andi yfir­töku. Sú stefna er tal­inn vera miðuð gegn Kína og gaf Juncker til kynna að ESB muni ávallt sækj­ast eftir því að vernda grunn­hags­muni hag­kerf­is­ins og að sam­bandið myndi sækj­ast eftir gagn­kvæmni í frí­versl­un­ar­svið­ræðum. Juncker og Emmanuel Macron, nýkjör­inn for­seti Frakk­lands, hafa lýst þess­ari frí­versl­un­ar­stefnu sem hluti af hug­sjón um „Evrópu sem verndar“ og vilja með því grafa undan gagn­rýni popúlista­flokka sam­hliða því að hvetja til auk­innar versl­unar.

Þegar kemur að utan­ríkis- og örygg­is­málum vakti athygli að Juncker tal­aði fyrir því að breyta núver­andi fyr­ir­komu­lagi sem krefst ein­róma stuðn­ings aðild­ar­landa til að sam­þykkja utan­rík­is­stefnu­mál og koma á meiri­hluta­kerfi til þess að auka skil­virkni í stefnu­mótun. Þannig vill hann að ESB komi á sam­ein­uðu varn­ar­banda­lagi fyrir árið 2025 og lagði einnig til að stofna evr­ópska net­ör­ygg­is­stofnun. Juncker úti­lok­aði ESB-aðild Tyrk­lands í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð og for­dæmdi alræðistakta Recep Tayyip Erdogan og harð­skeytta orð­ræðu hans gagn­vart leið­togum fjöl­margra ESB-ríkja.

Flótta­manna- og inn­flytj­enda­mál komu líka við sögu í ræðu Juncker og sagði hann að náðst hefði að minnka hinn gríð­ar­lega straum fólks til Evrópu yfir Mið­jarð­ar­hafið. Hann lagði áherslu á að ESB myndi gera meira til bæta kjör flótta­manna í Líbíu og víðs vegar í kringum Mið­jarð­ar­hafið en sam­bandið hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir með­höndlun þess á flótta­fólki að und­an­förnu.

Brussel, París, Berlín og Róm

Und­ir­tektir við ræðu Juncker hafa verið mis­jafnar og hafa leið­togar margra ESB-ríkja tekið undir hluta af stefnu­málum Juncker, einna helst hvað varðar frí­verslun, á meðan að sýn hans á stækkun evru­svæð­is­ins og auk­ins sam­runa í átt að til­færslu ákvarð­ana­töku til ESB hefur vakið gagn­rýni.

Ræða Juncker er mik­il­væg í þeim skiln­ingi að hún markar póli­tíska sýn sam­bands­ins fyrir næstu árin og hefur jákvæðnin og sjálfs­traustið sem ein­kenndi ræð­una glatt Evr­ópu­sinna víðs vegar um álf­una. Þegar kemur að sjálfri stefnu­mót­un­inni í ESB á næstu árum mun hún að mestu leyti fara eftir sam­spili rík­is­stjórn­anna í Berlín, París, Róm og öðrum Evr­ópu­ríkjum og því fer fjarri að Juncker muni ná fram með öll stefnu­mál sín. Hins vegar nýtur hann stuðn­ings Angela Merkel, kansl­ara Þýska­lands, og Macron í mörgum stefnu­málum og mun ákafi Juncker ásamt nýjum byr í seglum evr­ópu­sinn­aðra rík­is­stjórna í Berlín og París gera ESB kleift að snúa vörn í sókn í fyrsta sinn í langan tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár