Mynd: Pexels.com

Árið 2018: Opinbera yfirstéttin heldur tugprósenta launahækkunum sínum

Þingmenn, ráð­herrar, aðstoð­ar­menn ráð­herra, biskup og ýmsir aðrir hátt­settir emb­ætt­is­menn fengu að halda tug­pró­senta launa­hækk­unum sem kjara­ráð hafði skammtað þeim. Sömu sögu var að segja af for­stjórum opin­berra fyr­ir­tækja.

Á kjör­dag 2016 voru laun for­­­seta Íslands, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna og laun ráð­herra hækkuð umtals­vert. Sam­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­arra ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­­lega 1,5 millj­­­ónir en laun for­­­seta voru tæpar 2,5 millj­­­ón­­­ir. Laun þing­­­­manna hækk­­­­uðu hlut­­­­falls­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­sent.

Aðstoð­ar­menn ráð­herra hafa líka fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sum­arið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna, sem miða við þau laun, um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði.

Í des­em­ber hækk­­aði kjara­ráð svo laun bisk­­­ups, Agn­­­esar Sig­­­urð­­­ar­dótt­­­ur, um tugi pró­­­senta. Í úrskurð­i vegna þessa kom fram að biskup skuli hafa tæp­­­lega 1,2 millj­­­ónir í mán­að­­­ar­­­laun auk 40 fastra yfir­­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Hækk­­­unin var aft­­­ur­­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­­kvæmt úrskurð­in­­­um. Um ára­­mót fékk biskup því ein­greiðslu fyrir síð­­­asta árið en sú upp­­­hæð nemur 3,3 millj­­­ónir króna.

Allar þessar hækk­anir gerðu það að verkum að verka­lýðs­hreyf­ing­unni fannst eðli­legt að horfa til þeirra þegar hún setti fram sínar kröfur vegna kom­andi kjara­samn­inga. Þannig fór hún meðal ann­ars fram á að lág­marks­laun yrðu hækkuð um yfir 40 pró­sent á gild­is­tíma næsta kjara­samn­ings.

Mikið reiði en launin látin halda sér

Þrátt fyrir hina miklu gagn­rýni sem sett hefur verið fram á ákvarð­anir kjara­ráðs þá hefur ekki verið undið ofan af hinum miklu hækk­unum.

Vegna þessa ástands skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra starfs­hóp til að fjalla um mál­efni kjara­ráðs þann 19. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hópurinn skil­aði af sér rúmum mán­uði síðar og í nið­ur­stöðu hans kom fram að kjara­ráð hafi í ákvörð­unum sínum um kjör æðstu stjórn­enda rík­is­ins farið langt umfram við­mið ramma­sam­komu­lags aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda frá árinu 2015, ákvarð­anir þess verið óskýr­ar, ógagn­sæjar og ekki sam­ræmst fyr­ir­mælum í lögum um störf ráðs­ins. Lagði starfs­hóp­ur­inn til að kjara­ráð yrði lagt niður og útaf­keyrsla þess yrði leið­rétt.

Það breytti því ekki að skað­inn var skeður. Hinar óhof­legu launa­hækk­anir höfðu sett kjara­samn­inga í upp­nám. Ekki bætti úr skák þegar fréttir bár­ust af því á síð­ustu vikum að laun æðstu stjórn­enda og stjórna opin­berra fyr­ir­tækja hefðu hækkað um tugi pró­senta strax í kjöl­far þess að ákvarð­anir um kjör þeirra hafi verið færðar undan kjara­ráði og til stjórn­anna sjálfra.

Mesta úlfúð vakti hækkun launa for­stjóra Lands­virkj­unar um 700 þús­und krónur á mán­uði á árs­grund­velli. Þau eru ný 2,7 millj­ónir króna. Þar sem launa­hækkun hans tók gildi um mitt síð­asta ár er hækk­unin á mán­að­ar­laun­unum lík­ast til mun hærri, eða yfir einni milljón króna. Laun stjórn­ar­manna í Lands­virkjun hækk­uðu um tæp 50 pró­sent. Sam­an­lagt deildu fimm stjórn­ar­menn með sér 525 þús­und krónum til við­bótar á mán­uði.

Þetta var ákveðið af starfs­kjara­nefnd Lands­virkj­un­ar, sem í sitja þrí­r ­stjórn­ar­mann­anna. Einn þeirra er Jónas Þór Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar. Hann var skip­aður í það starf af Bjarna Bene­dikts­syni, sem skip­aði hann einnig sem for­mann kjara­ráðs árið 2014.

Kjararáð fékk líka launahækkun

Þá greindi Kjarninn frá því í mars síð­ast­liðnum að þann 14. sept­em­ber 2017, dag­inn áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk, sendi Jónas Þór, sem for­maður kjara­ráðs, bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og fal­að­ist eftir launa­hækkun fyrir ráðið. Samkvæmt lögum er það ráð­herra sem ákveður laun ráðs­ins hverju sinni. Í bréfi Jónasar var farið fram á að laun þeirra sem sitja í ráð­inu yrðu hækkuð um 7,3 pró­sent og að sú hækkun yrði aft­ur­virk til 1. ágúst sama ár.

Þessi beiðni var rök­studd með því að laun kjara­ráðs hefðu ekki hækkað frá því sum­arið 2016 og að mán­að­ar­leg launa­vísi­tala Hagstofu Íslands hefði hækkað um áður­nefnda pró­sentu­tölu frá því að síð­asta hækkun hafði átt sér stað.

Bréfinu var ekki svarað í rúman tvo og hálfan mánuð. Í milli­tíð­inni fóru fram kosn­ingar og 30. nóv­em­ber 2017 tók rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við valda­taumunum á Íslandi. Í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sett­ist Bjarni Bene­dikts­son.

Sex dögum eftir að hann tók við emb­ætti, þann 6. des­em­ber, barst Jónasi svar­bréf frá ráðu­neyt­inu. Í því var honum greint frá að fall­ist hafði verið á til­lögu hans um launa­hækkun kjara­ráðs og að hún myndi gilda frá 1. ágúst 2017.

Kauphallarforstjórarnir fengu sitt

Þá eru ótaldir for­stjórar stærstu skráðu félaga lands­ins. Það eru alls 16 for­stjórar yfir félög­unum sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað. Þeir eru allir karlar. Kjarninn tók saman í mars launa­kjör þeirra úr birtum árs­reikn­ingum og hvernig þau hafa þró­ast á und­an­förnum árum. Nið­ur­staðan var sú að meðal Kaup­hallar-for­stjór­inn var með 4,7 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Það voru tæp­lega 17föld­lág­marks­laun.

Mánaðarlaun forstjóra í Kauphöllinni Íslands á árinu 2017:

  • Árni Oddur Þórð­ar­son 7,8 millj­ónir á mán­uði 
  • Finnur Árnason 6,4 millj­ónir króna á mán­uði*
  • Eggert Krist­ó­fers­son 5,9 millj­ónir á mán­uði
  • Helgi Bjarna­son 5,9 millj­ónir á mán­uði**
  • Gylfi Sig­fús­son 5,6 millj­ónir króna á mán­uði
  • Stefán Sig­urðs­son 4,7 millj­ónir á mán­uði
  • Björgólfur Jóhanns­son 4,6 millj­ónir króna á mán­uði
  • Hendrik Egholm 4,5 millj­ónir á mán­uði
  • Sigurður Við­ars­son 4,3 millj­ónir á mán­uði
  • Vil­hjálmur Vil­hjálms­son 4,2 millj­ónir á mán­uði
  • Hermann Björns­son 4,2 millj­ónir á mán­uði
  • Orri Hauksson fjórar millj­ónir á mán­uði
  • Finnur Oddsson 3,8 millj­ónir á mán­uði
  • Guðjón Auð­uns­son 3,7 millj­ónir króna á mán­uði
  • Garðar Hannes Frið­jóns­son þrjár millj­ónir á mán­uði 
  • Helgi S. Gunn­ars­son 2,8 millj­ónir á mán­uði

*Laun fyrir rekstr­ar­árið 2016/2017

**Settist í stól for­stjóra um mitt ár 2017

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár