Ríkið telur ekki raunhæft að selja Íslandsbanka í augnablikinu

Fyrir þremur mán­uðum voru allir for­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja sam­mála um að það ætti að hefja sölu á Íslands­banka og nota afrakst­ur­inn af söl­unni í inn­viða­upp­bygg­ingu. Nú er sú staða ger­breytt vegna COVID-19.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneyti hans hefur sett áform um að selja Íslandsbanka á ís.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Ráðu­neyti hans hefur sett áform um að selja Íslands­banka á ís. Mynd: Bára Huld Beck

Íslenska ríkið er hætt við að hefja sölu­ferli á Íslands­banka. Frá þessu er greint á vef RÚV og þar vitnað í svör fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um að sala á bönkum sé ekki raun­hæf í augna­blik­inu.

Ríkið á tvo banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Fjallað var um eign­ar­hald rík­is­ins á bönkum í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og því fyr­ir­liggj­andi að þeir þrír ólíku flokkar sem mynda rík­is­stjórn­ina hafa rætt málið þegar hún var mynduð. Þar segir að eign­­ar­hald rík­­is­ins á fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum sé „það umfangs­­mesta í Evr­­ópu og vill rík­­is­­stjórnin leita leiða til að draga úr því.“

Lítið gerð­ist hins vegar í þeim málum framan af kjör­tíma­bili annað en að far­veg­ur­inn var und­ir­bú­inn með gerð Hvít­­­bókar um fram­­­tíð­­­ar­­­sýn fyrir fjár­­­­­mála­­­kerfið sem fjall­aði ítar­lega um það hvernig skyldi standa að sölu á hlutafé í bönk­unum. Hún var birt í lok árs 2018.

Í kjöl­farið tjáði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sig ítrekað um það opin­ber­lega að hann vildi byrja að selja, að minnsta kosti hluta, af Íslands­banka áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur.

Allir formennirnir sammála

Bjarni opn­aði svo á það í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun febr­úar síð­ast­liðnum að það ætti að fara að hefja sölu­ferli á fjórð­ungs­hlut í Íslands­banka. Hann bætti um betur í auka­blaði Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem bar nafnið „Á réttri leið“ og var dreift í aldreif­ingu með Morg­un­blað­inu nokkrum dögum síðar. Þar sagði Bjarni að sala á 25 til 50 pró­sent hlut í Íslands­banka á næstu árum myndi opna á stór tæki­færi til fjár­fest­inga. „Á und­an­förnum árum hefur mikið verið rætt um gjald­töku til að fjár­magna sam­göngu­bætur og það er skilj­an­legt, vegna þess að við þurfum að hraða fram­kvæmd­um, en nær­tæk­ari leið er að losa um þessa verð­mætu eign og afmarka gjald­töku í fram­tíð­inni við stærri fram­kvæmdir á borð við Sunda­braut, Hval­fjarð­ar­göng og aðra ganga­gerð. Núna er góður tími til að huga að átaki í þessum efn­um, efna­hags­lífið er til­búið fyrir opin­berar fram­kvæmd­ir.“

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, sagði í sam­tali við Kjarnann í kjöl­farið að það væri skyn­sam­legt að ráð­ast í sölu á hlut í Íslands­banka ef það er tengt við það að nota ávinn­ing­inn í inn­viða­fjár­fest­ing­ar. Þannig væri hægt að losa um eignir rík­is­ins og nýta það í þörf verk­efni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, var svo síð­astur á vagn­inn af for­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þegar hann sagð­ist í sam­tali við helg­ar­blað Frétta­blaðs­ins snemma í febr­úar að hann teldi skyn­sam­legt að setja Íslands­banka í sölu­ferli. Hann setti söl­una í sama sam­hengi og hinir for­menn­irnir, að það væri hægt að nota fjár­mun­ina sem bundnir væru í eign­inni í inn­viða­upp­bygg­ingu.

Breytt eigendastefna til að undirbúa sölu

Í nýrri eig­enda­stefnu íslenska rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem birt var 28. febr­úar, var búið að gera umtals­verðar breyt­ingar á þeim mark­miðum sem ríkið hefur varð­andi eign­ar­hald á Lands­bank­anum. Í eldri eig­enda­stefn­unni, sem var frá árinu 2017, sagði að stefnt yrði að því að ríkið ætti veru­legan eign­ar­hlut, 34 til 40 pró­sent, í bank­anum til lang­frama. Að öðru leyti yrðu eign­ar­hlutir rík­is­ins seldir „á næstu árum þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi“ sam­hliða því að hann yrði skráður á hluta­bréfa­markað.

Í nýju eig­enda­stefn­unni var búið að taka út það stærð­ar­mark sem æski­legt sé að ríkið eigi í Lands­bank­anum. Þess í stað segir að ríkið eigi að eiga „veru­legan hlut“ í bank­anum til lang­frama.

Búið var að taka út áform um að selja eign­ar­hlut­inn strax og hag­felld og æski­leg skil­yrði séu fyrir hendi og áform um að skrá hann á hluta­bréfa­markað. Þess í stað er búið að bæta því inn í eig­enda­stefn­una að ákvörðun um sölu Lands­bank­ans verði ekki tekin fyrr en að sölu­ferli Íslands­banka sé lokið.

[adspot]Mark­miðið með eign­ar­haldi rík­is­ins á þessum stærsta banka lands­ins hefur líka breyst. Í gömlu eig­enda­stefn­unni sagði að ástæða þessa væri „til að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerf­inu og tryggja nauð­syn­lega inn­viði þess.“

Í nýju stefn­unni sagði að mark­miðið með eign­ar­hald­inu sé að „stjórn­völd hafi ráð­andi ítök í a.m.k. einni fjár­mála­stofnun sem þjón­ustar almenn­ing og fyr­ir­tæki og hefur höf­uð­stöðvar hér á landi. Þannig tryggja stjórn­völd að almenn, vönduð og traust fjár­mála­þjón­usta standi öllum til boða óháð m.a. búsetu. Mark­miðið með eign­ar­hald­inu er enn­fremur að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerf­inu, ásamt því að tryggja nauð­syn­lega og áreið­an­lega inn­viði þess.“

Engin breyt­ing var hins vegar gerð á mark­miðum rík­is­ins hvað varðar eign­ar­hald á hinum bank­anum sem það á, Íslands­banka. Enn var stefnt að því að selja bank­ann „þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi.“

Þrátt fyrir að ein­ungis rúmir tveir mán­uðir séu liðnir frá því að þessi sölu­á­form voru að fær­ast upp um gír þá hafa aðstæður gjör­breyst vegna COVID-19 og nær engar líkur eru á því að hag­stætt verð eða við­eig­andi kaup­endur finn­ist að íslenskum banka sem stendur.

Umtalsvert tap á fyrstu þremur mánuðum ársins

Íslands­banki tap­aði 1,4 millj­arði króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020. Á sama tíma í fyrra hagn­að­ist bank­inn um 2,6 millj­arða króna og því er um fjög­urra millj­arða króna við­snún­ing að ræða milli ára.

Þetta kom fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans sem birt var í dag.

Þar sagði að virð­is­breyt­ingar útlána til við­skipta­vina bank­ans hafi verið nei­kvæðar um tæp­lega 3,5 millj­arða króna og útskýrir það tapið að mestu. Hún var 907 millj­ónir króna á sama tíma í fyrra og hækk­aði því um 2,6 millj­arða króna milli ára. Arð­semi eigin fjár hjá bank­anum var nei­kvæð um þrjú pró­sent.

Virð­is­rýrn­unin á útlánum bank­ans teng­ist að uppi­stöðu lánum sem hann hefur veitt til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár