Mynd: EPA

Eignir lífeyrissjóða lækkuðu um 87,5 milljarða á einum mánuði en stóra höggið er eftir

Eigna­safn íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið mun taka á sig mikið högg vegna þeirra efna­hags­legu ham­fara sem nú ríða yfir heim­inn. Eignir þess hafa ein­ungis tvisvar dreg­ist saman um fleiri krónur á einum mán­uði en í febr­úar síð­ast­liðnum.

Eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna lækk­uðu um 87,5 millj­arða króna í febr­úar og voru 4.919 millj­arðar króna, sam­kvæmt nýjum tölum um efna­hag líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birti í morgun.

Eignir kerf­is­ins fóru yfir fimm þús­und millj­arða króna í jan­úar 2020. Innlendu eignir sjóð­anna dróg­ust saman um tæpa 30 millj­arða króna í febr­ú­ar­mán­uði en erlendu eign­irnar um tæp­lega 58 millj­arða króna þrátt fyrir að krónan hafi veikst skarpt það sem af er ári. 

Vert er að benda á að á annan tug millj­arða króna er greitt inn í líf­eyr­is­sjóða­kerfið í formi iðgjalda í hverjum mán­uði. Því er tapið milli mán­aða, að þeim með­töldum, yfir 100 millj­arðar króna.

Þetta er í fyrsta sinn síðan í des­em­ber 2018 sem að eignir kerf­is­ins drag­ast saman milli mán­aða. Þá lækk­uðu eign­irnar um 100 millj­arða króna en juk­ust svo aftur um 145 millj­arða króna í næsta mán­uði á eftir. Þar var því um mjög tíma­bundna nið­ur­sveiflu að ræða. Því er ekki að skipta nú.

Eina skiptið fyrir utan það sem eign­irnar hafa lækkað meira í krónum talið en þær gerðu í febr­úar 2020 var í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi. Þá töp­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 209 millj­örðum króna á einum mán­uði.

Það verður þó að taka inn í dæmið að heild­ar­eignir þeirra fyrir hrunið voru 1.868 millj­arðar króna og því var hlut­falls­lega áfallið þá mun meira en það er nú. Í febr­úar 2020 lækk­uðu eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um 1,7 pró­sent en í hrun­mán­uð­inum 2008 lækk­uðu þær um rúm­lega ell­efu pró­sent.

Í nóv­em­ber 2008 hækk­uðu eign­irnar svo aftur um 73 millj­arða króna og hluti af tap­inu náð­ist því til baka, aðal­lega með geng­is­falli.

Stóra höggið eftir

Ljóst er að stærsti hluti þess höggs sem líf­eyr­is­sjóð­irnir munu þurfa að taka á eigna­safn sitt vegna áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum eiga eftir að koma fram, enda hófst hið eig­in­lega hrun á mörk­uðum 20. febr­úar og raun­gerð­ust að mestu í mars. Í þeim mán­uði lækk­aði til að mynda úrvals­vísi­tala íslensku kaup­hall­ar­innar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði sem eru með mestan selj­an­leika, um 9,6 pró­sent. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga, beint eða óbeint í gegnum fjár­fest­ing­ar­sjóði, í sam­ein­ingu nálægt helm­ingi allra skráðra hluta­bréfa á Íslandi.

Hluta­bréfa­mark­aðar út um allan heim hafa líka hríð­fallið síð­ast­lið­inn mánuð og ljóst að áhrifin á erlenda eigna­safnið hjá líf­eyr­is­sjóð­unum verður líka veru­legt, þótt að hröð lækkun á gengi íslensku krón­unnar mildi það högg nokkuð. Banda­ríska DOW-vísi­ta­talan hefur til að mynda átt sinn versta árs­fjórð­ung frá upp­hafi, en félögin sem mynda hana féllu um 23,2 pró­sent í verði á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Þá átti S&P 500-vísi­talan sinn versta árs­fjórð­ung sínar í lok árs 2008. Mars­mán­uður stóð þar upp úr.

FTSE-vísi­talan breska átti sinn versta árs­fjórð­ung frá árinu 1987 og þann næst versta frá upp­hafi.

Beðnir um að fara ekki út með peninga

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa stór­aukið fjár­fest­ingar sínar utan Íslands frá því að fjár­magns­höftum, sem sett voru síðla árs 2008, var lyft að mestu vorið 2017.

Óform­legt sam­komu­lag er í gildi um að líf­eyr­is­sjóð­irnir haldi að sér höndum í gjald­eyr­is­kaupum næstu þrjá mán­uði hið minnsta. Það var gert eftir að for­maður stjórnar Land­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, Guðrún Haf­steins­dóttir, fund­aði með Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra 17. mars síð­ast­lið­inni.

Í til­kynn­ingu sem send var út í kjöl­far þess að þetta óform­lega sam­komu­lag, sem er ekki bind­andi heldur sett fram í formi hvatn­ingar, stóð að að mik­ill við­skipta­af­gangur síð­ustu ára hafi gefið líf­eyr­is­sjóðum lands­ins svig­rúm til þess að fjár­festa erlendis og ná fram áhættu­dreif­ingu í eigna­safni sínu. „Í ljósi þess að útflutn­ings­tekjur lands­ins munu fyr­ir­sjá­an­lega drag­ast saman tíma­bundið telja Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða það eðli­legt að líf­eyr­is­sjóðir standi ekki að gjald­eyr­is­kaupum á næstu mán­uð­um. Sjóð­irnir eru í eigu almenn­ings og því mik­il­vægt að þeir sýni ríka sam­fé­lags­lega ábyrgð þegar kemur til fjár­fest­inga og við­bragða í okkar sam­fé­lagi á óvissu­tím­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár