Síldarvinnslan einnig í vandræðum með tæknilegu hliðina á aðalfundi SFS

Mistök urðu þess vald­andi að Síld­ar­vinnslan náði ekki að greiða atkvæði í kjöri til stjórnar SFS á aðal­fundi á föstu­dag­inn. Tillaga um að greiða atkvæði á ný var þó sam­þykkt í kjöl­farið, en þá lentu Samherji og Nes­fiskur í svip­uðum vand­ræðum.

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað. Mynd: Síldarvinnslan

Það voru ekki bara full­trúar Samherja og Nesfisks sem lentu í vand­ræðum með atkvæða­greiðslu­kerfið í stjórn­ar­kjöri á aðal­fundi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem fram fór raf­rænt síð­asta föstu­dag. Full­trúar Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað lentu einnig í því að gera mis­tök í atkvæða­greiðsl­unni, en sluppu með skrekk­inn, ef svo má segja, þar sem í kjöl­farið á því að atkvæðum Síld­ar­vinnsl­unnar var ekki ráð­stafað sam­þykkti auk­inn meiri­hluti á fund­inum til­lögu um að greiða atkvæði á ný.

Gunnþór Ingvason fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar stað­festir þetta við Kjarnann, en hann segir að þeir sem sátu raf­ræna aðal­fund­inn fyrir hönd Síld­ar­vinnsl­unnar hafi gert ein­hver mis­tök í atkvæða­greiðsl­unni, sem sé ef til vill eðli­legt enda sé ekki reynsla af raf­rænum kosn­ingum sem þessum hjá sam­tök­unum. Í kjöl­farið hafi til­laga um að kjósa aftur, sem Gunnþór sjálfur man ekki hver bar upp, verið sam­þykkt með auknum meiri­hluta atkvæða.

Þegar svo kosið var aftur áttu sér stað ein­hverjir tækni­legir örð­ug­leikar hjá bæði Samherja og Nesfiski, en eins og Kjarninn sagði frá í gær náð­ist ekki nægur stuðn­ingur við að kjósa á ný til stjórn­ar­innar í kjöl­far þess að þeim tókst ekki að ráð­stafa atkvæðum sínum. Bæði fyr­ir­tækin misstu stjórn­ar­mann í hags­muna­sam­tök­unum á aðal­fund­inum.[links]

Kristján Vil­helms­son fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­sviðs Samherja sagði starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins frá því í tölvu­pósti síð­degis síð­asta föstu­dag að tæp 60 pró­sent atkvæða­bærra á fund­inum hefðu stutt við til­lögu frá Nesfiski um að atkvæða­greiðslan yrði end­ur­tekin í kjöl­far þess að eitt­hvað fór tækni­lega úrskeiðis hjá Samherja og Nesfiski, en það dugði ekki til, þar sem 75 pró­sent atkvæða­bærra hefðu þurft að sam­þykkja slíka til­lögu.

Gunnþór tók ekki mikla afstöðu til spurn­ingar blaða­manns um hvort ekki verið drengi­legt að leyfa Nesfiski og Samherja að koma sínum atkvæðum að í stjórn­ar­kjör­inu, í ljósi þess að fyr­ir­tækj­unum gekk ekki að ráð­stafa þeim.

Hann kom því hins vegar á fram­færi að það væri af og frá að leggja þannig út frá nið­ur­stöðu stjórn­ar­kjörs­ins að full­trúa Samherja hefði verið varpað úr stjórn­inni af öðrum félögum í sjáv­ar­út­vegi af ein­hverjum sökum, enda sé það nú svo að atkvæða­magn Samherja eigi að duga fyrir 1,6 stjórn­ar­mönnum í 18 manna stjórn SFS. Ef atkvæðin rata rétta leið.

Starfsfólk SFS hafi harmað brotthvarf stjórnarmanns Samherja

Hákon Þröstur Guð­munds­son útgerð­ar­stjóri Samherja hafði verið full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins í stjórn SFS þar til á föstu­dag. Í tölvu­pósti Krist­jáns Vil­helms­sonar til starfs­manna Samherja síð­ast­lið­inn föstu­dag sagði að starfs­fólk SFS hefði þá þegar haft sam­band til þess að „lýsa yfir von­brigðum með að missa frá­bæran stjórn­ar­mann og ekki síður „upp fletti rit“ sem virð­ist vera alls staðar inni og sér­lega ráða­góður.“

[adspot]

Fram kom í frétt á vef mbl.is síð­asta föstu­dag, og vísað til svars frá upp­lýs­inga­full­trúa SFS, að vand­ræði ein­staka fyr­ir­tækja við að ráð­stafa atkvæðum sínum hefðu ekki snúið að tækni­legri fram­kvæmd atkvæða­greiðsl­unnar. Kjarninn hefur fal­ast eftir því að fá nán­ari útskýr­ingar um þetta frá Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna, en ekki hefur verið brugð­ist við beiðnum þar að lút­andi.

Formaður telur „nokkuð dapurlegt“ að fylgjast með umræðu um fiskeldi

Ólafur Mart­eins­son fram­kvæmda­stjóri Ramma hf. var á fund­inum á föstu­dag end­ur­kjör­inn for­maður stjórnar SFS, en hann tók við for­mennsku af Jens Garðari Helga­syni á aðal­fundi í fyrra. Ein kona er í 18 manna stjórn hags­muna­sam­tak­anna þetta starfs­árið.

Í árs­skýrslu SFS er að finna ávarp for­manns þar sem Ólafur fer yfir liðið ár í sjáv­ar­út­vegi. Þar segir að árið 2020 hafi verið umfram venju við­burða­ríkt, greinin hefði lent í mót­byr, staðið hann af sér og skilað sínu til sam­fé­lags­ins. Í ávarp­inu sagði for­mað­ur­inn þó „nokkuð dap­ur­legt“ að fisk­eldið hér á landi, „ein fárra útflutn­ings­at­vinnu­greina sem var í vexti í fyrra, skuli þurfa að sæta mik­illi ágjöf mis­vit­urra álits­gjafa.“

„Það er bæði skilj­an­legt og eðli­legt að fólk hafi á því skiptar skoð­anir. En við eigum ekki að láta til­finn­ing­arnar stjórna umræð­unni að öllu leyti. Það er eins var­lega farið í fisk­eldi á Íslandi og kostur er og ekki má gleyma því að stór hluti strand­lengj­unnar er lok­aður fyrir fisk­eldi. Fiskeldi er mik­il­vægt, ekki síst í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem það er stað­sett. Það er einnig mik­il­vægt fyrir þjóð­ar­hag og nemur nú um 10 pró­sentum af útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða. Það er vel og von­andi mun gæta meiri sann­girni í umræðu um eldið á kom­andi árum,“ segir í ávarpi Ólafs.

Í ávarp­inu sagði Ólafur einnig að hann teldi grein­ina hafa staðið sig vel í að mæta áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en ætti þó ekki skilið ein­hverjar sér­stakar þakkir fyrir að standa vakt­ina á erf­iðum tíma. Það hefðu fleiri gert.

„En vissu­lega væri til­breyt­ing í því að tals­menn þjóð­ar­innar hefðu kjark til þess að tala um það sem vel er gert á vett­vangi sjáv­ar­út­vegs og eldis. Á því verður þó vænt­an­lega ein­hver bið,“ sagði for­mað­ur­inn í ávarpi sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár