Tölvan sagði nei við Kristján Vilhelmsson

Samherji missti stjórn­ar­mann sinn í Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi á raf­rænum aðal­fundi síð­asta föstu­dag. Kristján Vil­helms­son kenndi tækni­legum vanköntum í atkvæða­greiðslu um, en SFS hefur ekki kann­ast við neina slíka.

Kristján Vilhelmsson kennir tæknilegum vanköntum í kosningakerfi SFS um að Samherji eigi ekki lengur stjórnarmann í hagsmunasamtökunum.
Kristján Vil­helms­son kennir tækni­legum vanköntum í kosn­inga­kerfi SFS um að Samherji eigi ekki lengur stjórn­ar­mann í hags­muna­sam­tök­unum. Mynd: Skjáskot

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji á ekki lengur stjórn­ar­mann í Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS).

Þetta hefur vakið athygli, enda er fyr­ir­tækið eitt það stærsta í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og hefur átt full­trúa vísan í stjórn hags­muna­sam­tak­anna í krafti atkvæða­magns síns á aðal­fundum, en því stærri sem fyr­ir­tæki eru, því meiri áhrif hafa þau þegar kemur að kosn­ingum innan sam­tak­anna.

Hvað klikk­aði þá?

Samkvæmt tölvu­pósti sem Kristján Vil­helms­son fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­sviðs og annar fyrr­ver­andi helsti eig­andi Samherja sendi á hóp fólks innan Samherja síð­degis á föstu­dag var það kosn­inga­kerfið á aðal­fund­inum, sem fram fór á Zoom.

„Það hefur komið fram í fjöl­miðlum að full­trúi Samherja féll úr stjórn, ástæðan er að kerfið sem notað var til að kjósa virk­aði ekki og þess vegna fékk okkar maður ekki okkar atkvæði sem ann­ars nægja vel til að fá mann í stjórn,“ sagði í tölvu­pósti frá Krist­jáni til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins.

Við tölvu­póst hengdi hann nán­ari útskýr­ingar á því sem hann segir hafa farið úrskeiðis, sem höfðu verið sendar á stjórn­ar­menn og starfs­menn SFS ásamt kröfu um rann­sókn á því að svo fór sem fór.

Tókst ekki að setja atkvæði Samherja á fulltrúa félagsins

Samkvæmt tölvu­pósti Krist­jáns fór hann á fund­inn á föstu­dags­morgun með umboð til að greiða atkvæði fyrir hönd Samherja og dótt­ur­fé­lag­anna Samherja Fisk­eldis og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga.

Honum tókst að skipta atkvæðum tveggja minni fyr­ir­tækj­anna niður á nokkra aðila í stjórn­ar­kjör­inu, en þegar kom að því ráð­stafa þeim 416.988 atkvæðum sem Samherji Íslands hafði til umráða hljóp snurða á þráð­inn.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir Krist­jáns til þess að setja öll atkvæði Samherja á einn mann og leið­bein­ingar tækni­manns um að „haka bara við við­kom­andi aðila“ og „ekki setja á hann nein atkvæði því hann fengi öll atkvæðin sjálf­krafa“ gekk það ekki, atkvæðum Samherja var að end­ingu ekki ráð­stafað í kjör­inu og stjórn­ar­sætið tap­að­ist.

Ekki samþykkt að kjósa aftur

Í tölvu­pósti Krist­jáns á föstu­dag sagði að útgerð­ar­fyr­ir­tækið Nes­fiskur í Garði hefði lent í svip­uðum tækni­legum erf­ið­leikum við atkvæða­greiðsl­una, misst sinn mann úr stjórn og óskað eftir því að kosið yrði á ný.

Þá beiðni hefðu Samherji og Ísfélag Vest­manna­eyja stutt, en það hefði ekki dugað til, því aðeins tæp 60 pró­sent atkvæða­bærra hefðu sam­þykkt að kosið yrði aftur og sam­kvæmt sam­þykktum SFS þurfi 75 pró­sent atkvæða­magns til þess að knýja fram end­ur­kjör á aðal­fundi.

[adspot]

Bergur Þór Egg­erts­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri og fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­sviðs hjá Nesfiski, vildi ekk­ert ræða málið við blaða­mann þegar eftir því var leitað.

Í tölvu­pósti Krist­jáns til starfs­manna Samherja sagði að eig­andi Nesfisks væri „alvar­lega að íhuga að hætta í þessum sam­tökum“ en hann sjálfur væri „ekki þar, alla­vega ekki núna.“

Hann sagði sömu­leiðis við­búið að fjöl­miðlar myndu „gera sér mat úr“ stjórn­ar­kosn­ing­unni og því að Samherji ætti ekki lengur full­trúa í stjórn­inni.

SFS neitaði fyrir tæknilega vankanta

Fram kom í frétt á vef mbl.is á föstu­dag­inn að Samherji hefði farið fram á að kosn­inga­kerfi fund­ar­ins yrði rann­sakað og upp­lýst yrði um nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar.

Í tölvu­pósti frá Krist­jáni sem Kjarninn hefur séð kemur hið sama fram, en Samherji veitti mbl.is einnig þær upp­lýs­ingar að atkvæða­magn Samherja ætti að vera nægt til þess að tryggja 1,6 stjórn­ar­menn í stjórn SFS.

Frétt mbl.is, sem birt­ist á sjáv­ar­út­vegs­síðu mið­ils­ins, var upp­færð um klukku­stund eftir að hún birt­ist með svörum frá upp­lýs­inga­full­trúa SFS þess efnis að búið væri að kanna hvort eitt­hvað hefði farið tækni­lega úrskeiðis í atkvæða­greiðslu­kerf­inu.

Hefðu hnökrar átt sér stað við atkvæða­greiðsl­una hefðu þeir ekki snúið að tækni­legri fram­kvæmd atkvæða­greiðsl­unnar, sam­kvæmt svari upp­lýs­inga­full­trúa hags­muna­sam­tak­anna sem mbl.is vís­aði til.

Kjarninn fal­að­ist í gær eftir því að ræða þetta mál nánar við Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur fram­kvæmda­stjóra SFS. Ekki hefur verið brugð­ist við þeirri beiðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár