Færa almannavarnastig vegna COVID af neyðarstigi niður á hættustig

Baráttan við COVID-19 hefur gengið vel upp á síðkastið að sögn Víðis Reyn­is­sonar en þó megi ekki ekki láta deigan síga á loka­metr­unum. Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna kom fram að tveir hafi greinst með ind­verska afbrigðið á landa­mær­unum.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum, til­kynnti á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að almanna­varna­stig vegna COVID-19 verði fært af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig í dag. Víðir sagði að bar­áttan hefði gengið vel upp á síðkastið og að mark­miðin um að verja heil­brigð­is­kerfið og við­kvæma hópa sem og að koma í veg fyrir útbreiðslu smita og tak­marka ný smit við landa­mærin hefðu gengið vel.

„Áfram skulum við samt halda, það er stutt í mark­mið okkar varð­andi bólu­setn­ing­una og við látum ekki deigan síga á loka­metr­unum. Það ætti eng­inn að vera hissa eða stress­aður yfir því þó eitt og eitt smit haldi áfram að grein­ast og jafn­vel utan sótt­kvíar. Kerfið okkar hefur sýnt að vel hefur tek­ist að takast á við það og með miklu sam­eig­in­legu átaki hefur okkur tek­ist að stoppa hópsmit, til að mynda í Ölfusi og í Skaga­firði,“ sagði Víðir á fund­inum.

Tveir greinst með indverska afbrigðið á landamærum.

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, fór yfir tölur gær­dags­ins, venju sam­kvæmt. Í gær greindust þrír inn­an­lands og þar af voru tveir í sótt­kví en sam­tals voru tekin um 1400 sýni. Sá sem greind­ist utan sótt­kvíar teng­ist ekki fyrri smitum að sögn Þórólfs og var til­tölu­lega nýkom­inn til lands­ins og gæti því hafa sloppið í gegnum kerfið sem er á landa­mær­unum. Síðustu vik­una hafa 26 greinst inn­an­lands og þar af sjö utan sótt­kvíar.

Á landa­mær­unum greind­ist einn með COVID-19 en þar voru tekin rúm­lega 600 sýni. Þórólfur sagði landamæra­smit hafa fækkað mikið að und­an­förnu. Líklegt sé að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til hafi dregið úr komu þeirra sem lík­leg­ust voru til að bera með sér smit að mati Þórólfs. Síðustu vik­una hafa fimm virk smit greinst á landa­mær­unum, öll í fyrri skimun.

Flest eru smitin á landa­mær­unum af hinum bresku stofni veirunnar en hingað til hafa tveir greinst með ind­verska afbrigðið. Þeir hinir sömu eru nú í sótt­varna­húsi að sögn Þórólfs en eins og staðan er núna eru um 400 manns í sótt­varna­húsum, bæði í sótt­kví og ein­angrun.

Ný uppfærsla á rakningarappi

Alma Möller, land­læknir, kynnti upp­færslu á smitrakn­ing­arapp­inu. Nýja útgáfan sem kom út í gær byggir á svo­kall­aðri bluetooth lausn en eldri útgáfa byggði á GPS tækni. Þessi bluetooth lausn gerir rakn­ing­arteymi kleift að rekja smit þar sem tengsl milli ein­stak­linga eru ekki þekkt, til dæmis þegar smit kemur upp í fjöl­menni. „Þetta gerir bluetooth tæknin okkur kleift án þess að gefa nokkurn afslátt á vernd per­sónu­upp­lýs­inga og öryggi,“ sagði Alma.

Appið er á íslensku, ensku og pólsku og hvatti Alma alla til að sækja sér nýja upp­færslu. Hún sagði smá­forritið eiga eftir að vera mik­il­vægt í smitrakn­ingu nú þegar til­slak­anir eru í kort­unum. „Við teljum að það verði afar mik­il­vægt nú á næst­unni þegar við von­andi förum að slaka meira á hér inn­an­lands. Smitrakn­ing er og verður einn af horn­steinum okkar aðgerða til að sporna við COVID-19.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár