Sigurður Ingi ætlar að leiða Framsóknarflokkinn í næstu kosningum

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 6,4 pró­sent fylgi, og hefur ekki mælst með minna fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Formanni Fram­sókjnar finnst það fylgi ekki í sam­ræmi við þá ánægju sem hann finni með verk flokks­ins. Hann ætlar sér að leiða Framsókn í kosn­ingum

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hann ætli sér að standa í stafni flokks­ins í kosn­inga­bar­átt­unni sem er fyr­ir­liggj­andi í aðdrag­anda þing­kosn­inga sem munu fara fram á næsta ári. Það þýðir að hann verður í fram­boði á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem fram fer síðar á þessu ári.

Frá þessu greindi hann í ræðu sinni á mið­stjórn­ar­fundi í gær.

Sigurður Ingi hefur verið for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í októ­ber 2016. Þá sigr­aði hann Sigmund Davíð Gunn­laugs­son með 370 atkvæðum gegn 329. Sig­mundur Davíð yfir­gaf svo Fram­sókn­ar­flokk­inn í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2017 og stofn­aði Mið­flokk­inn, sem fékk 319 atkvæðum fleiri en Framsókn í þeim kosn­ingum.

Sigurður Ingi sagði í ræðu sinni að haustið 2017 hefði ekki verið auð­veldur tími fyrir flokk­inn, þrátt fyrir að hann hefði náð að nán­ast tvö­falda fylgi sitt á síð­ustu fjórum vik­unum fyrir kosn­ing­arnar, miðað við stöðu hans í könn­unum. „Þá sáum við á eftir mörgum félögum yfir í annan flokk. Við vorum í vörn í þeim kosn­ingum en náðum samt þeim merka árangri að mynda sterka og breiða rík­is­stjórn sem unnið hefur sam­hent að stjórn lands­ins. Ég hef fundið flokk­inn sem mér þykir svo vænt um styrkj­ast með hverjum degi frá síð­ustu kosn­ingum en betur má ef duga skal.“

Hann sagði að á næsta vetri muni upp­takt­ur­inn að kosn­ingum sem verði einar þær mik­il­væg­ustu í sögu þjóð­ar­innar byrja. „ Sú rík­is­stjórn sem þá fer með stjórn lands­ins þarf að takast á við eft­ir­mál þeirrar kreppu sem við berj­umst nú við. Þá verður mik­il­vægt að Framsókn sé sterk og nýti reynslu sína og styrk við stjórn lands­ins með öfga­leysi sínu og sam­vinnu­hug­sjónum. Ég ætla mér að standa í stafni í þeirri bar­áttu og leiða flokk­inn til auk­ins styrks og áhrifa.“

Ekki mælst með minna fylgi á kjörtímabilinu

Þrátt fyrir að Framsókn væri ánægð með þau verk sem flokk­ur­inn hefði komið að á kjör­tíma­bil­inu benti Sigurður Ingi á að yfir­lýstur stuðn­ingur við flokk­inn væri ekki í sam­ræmi við þá ánægju. „Margir segja, jafn­vel flokks­menn, að við séum ekki nægi­lega sýni­leg; að við segjum ekki nægj­an­lega vel frá því sem við séum að vinna að og fram­kvæma. Við því vil ég segja - við getum og eigum að gera betur.“

Í síð­ustu könnun MMR, sem birt var í lok síð­asta mán­aðar mæld­ist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 6,4 pró­sent. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verða minnsti flokk­ur­inn sem næði manni inn á þing og um væri að ræða lang­verstu nið­ur­stöðu hans í kosn­ingum frá því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var stofn­aður 1916. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu könnun var enn fremur það minnsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili.

Segir flest loforðin hafa verið efnd

Sigurður Ingi sagði í ræð­unni að hann gerði sér grein fyrir að þing­sætin væru eft­ir­sókn­ar­verð, enda hlyti það að vera draumur og metn­aður allra þeirra sem starfi í stjórn­málum að nýta krafta sína í þágu lands og þjóðar á Alþingi Íslend­inga. „Það á að vera sam­keppni um sæti í sveit­ar­stjórnum og á þingi og öllum for­ystu­störfum, það er styrk­leika­merki lýð­ræð­is­legs flokks. Fyrir næstu kosn­ingar þurfum við að styrkja okkur og stækka og fá til liðs við okkur öfl­ugt fólk sem finnur sam­hljóm með bar­áttu­málum okkar og stefnu.

Sá árangur sem við höfum nú þegar náð með starfi okkar í rík­is­stjórn er slíkur að lof­orðin sem við gáfum fyrir síð­ustu kosn­ingar hafa flest verið efnd. Nú tekur við mik­il­vægur tími þar sem við setjum stefn­una fyrir fram­tíð­ina, höldum áfram veg­inn, ótrauð, og fáum til liðs við okkur öfl­ugt fólk sem finnur sam­hljóm með gildum Fram­sóknar.“

Í ræð­unni sagði Sigurður Ingi að starf flokks­manna næstu mán­uð­ina muni ákvarða hver verða bar­áttu­mál flokks­ins í næstu kosn­ingum. „Þá er ég ekki að tala um koll­steypu í stefnu heldur þurfum við að hlusta á þarfir sam­fé­lags­ins, þarfir fjöl­skyld­unnar sér­stak­lega: barna, eldra fólks og ungs fólks. Við viljum ekki staðna sem stjórn­mála­afl heldur vera áfram sterkur afl­vaki hug­mynda og hreyfi­afl til góðs fyrir sam­fé­lagið okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár