Skólastjórnendur eigi ekki að leggja kynferðislegar meiningar í klæðaburð barna

Mæður mót­mæla druslu­skömm við Háteigs­skóla. Segja vanda­málið liggja hjá full­orðna fólk­inu, ekki ung­ling­unum. Stór hópur ung­linga mót­mælti banni við maga­bolum í síð­ustu viku.

Mæður stúlku í Háteigs­skóla hafa sent frá sér opið bréf til skóla­stjórn­enda og kenn­ara þar sem þær mót­mæla druslu­skömm við skól­ann. Tilefnið er bann skól­ans við maga­bolum, en eins og fjallað var um í fjöl­miðlum á föstu­dag klædd­ist stór hópur ung­linga maga­bolum til þess að mót­mæla bann­inu. Í kjöl­farið sendi Ásgeir Bein­teins­son, skóla­stjóri Háteigs­skóla, bréf til for­eldra þar sem bannið er útskýrt. „Okkur full­orðna fólk­inu þykir þetta ekki við­eig­andi klæðn­aður í skóla. Þá koma til álita kyn­ferð­is­legar vís­anir slíks klæðn­aðar en þó kannski öllu heldur að ekki er hægt að athafna sig með góðu móti í skólaum­hverfi án þess að við­kom­andi beri sig við eðli­legar hreyf­ingar,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu. 

Mæðurnar, Særós Rannveig Björns­dóttir og Þórunn Skúla­dóttir, segja aftur á móti ekki við­eig­andi að kenn­arar og skóla­stjórn­endur skipti sér af klæðn­aði dóttur þeirra. „Í bréfi frá ykkur er fjallað um kyn­ferð­is­legar vís­anir maga­bola og eins virð­ist fara fyrir brjóstið á ykkur þegar sést í bert hold ung­ling­anna við dag­legar athafnir. Í okkar huga er þetta vanda­mál sem liggur hjá ykkur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár