Þjónustusamnings RÚV að vænta í næstu viku

Vonast er til þess að gengið verði frá nýjum þjón­ustu­samn­ingi milli mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins og RÚV um mán­aða­mótin.

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, hefur sagt stöðu RÚV galna.
Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri, hefur sagt stöðu RÚV galna. Mynd: RÚV

Vonast er til þess að gengið verði frá end­an­legum þjón­ustu­samn­ingi milli mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og Rík­is­út­varps­ins um mán­aða­mótin, sem eru í næstu viku. Þetta kemur fram í svari Mar­grétar Magn­ús­dóttur, skrif­stofu­stjóra RÚV, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Gerð þjón­ustu­samn­ings­ins hefur verið á loka­metr­unum um nokk­urt skeið. Í jan­úar sagði Þorgeir Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, að strangt til tekið hefði átt að vinna þessa vinnu árið 2013, en þá hafi ekki verið talin nein sér­stök þörf á því. Ekki verði hins vegar gerðar miklar breyt­ingar á samn­ingnum. „Lögin eru svo afger­andi að það er lítið hægt að gera. Þau gefa ekki mikið svig­rúm til breyt­inga,” segir hann. „Þetta snýst mest megnis um fjár­málin og þess háttar. En það verður spenn­andi að sjá hver nið­ur­staðan verður. Nú er ekk­ert annað að gera en að hinkra nokkra daga og sjá hverju fram vindur.”

Miklar umræður fóru af stað um RÚV í lok síð­asta árs þegar frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra um end­ur­skoðun á lækkun útvarps­gjalds fékk ekki stuðn­ing rík­is­stjórn­ar­innar. Magnús Geir Þórð­ars­son útvarps­stjóri sagði þá að ef útvarps­gjaldið lækki drag­ist tekjur RÚV saman um 500 millj­ónir króna á þessu ári. Þá geti stofn­unin ekki upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing sinn við ríkið.

Magnús Geir hefur líka upp­lýst að það hafi verið skýr vilji Illuga að útvarps­gjald yrði ekki lækkað. Þegar hann fór fyrir fjár­laga­nefnd rétt fyrir jól sagði hann: „Þetta er auð­vitað algjör­lega galið, algjör­lega galin staða fyrir okkur að vera í og fyrir marga aðra. Við erum búin að vera að vinna í átta mán­uði eftir plani sem lagt var upp af ráð­herra og ráðu­neyti og við erum að gera áætl­anir þar sem þetta er fast í hendi. Við viljum fá botn í þetta, þannig að fjár­mögn­unin sé tryggð, í það minnsta til fjög­urra ára svo við þurfum ekki að standa í þessu á hverju ein­asta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár