Orðræða notuð til að stilla minnihlutahópum upp sem ógn gegn „hvíta kynstofninum“

Nið­ur­stöður rann­sókna hér á landi sýna glöggt fram á að ákveðið for­dæmi hefur verið gefið í sam­fé­lag­inu sem skapar rými fyrir tján­ingu nei­kvæðra við­horfa gegn minni­hluta­hópum sem ætlað er að kynda undir hatri og mis­munun.

Eyrún Eyþórsdóttir og Kristín Loftsdóttir
Eyrún Eyþórs­dóttir og Kristín Lofts­dóttir Mynd: Samsett mynd

Nið­ur­stöður rann­sókna sýna glöggt fram á að ákveðið for­dæmi hefur verið gefið í sam­fé­lag­inu sem skapar rými fyrir tján­ingu nei­kvæðra við­horfa gegn minni­hluta­hópum sem ætlað er að kynda undir hatri og mis­munun. Þessi orð­ræða er notuð til að stilla minni­hluta­hópum upp sem ógn gegn íslenskri menn­ingu, „hvíta kyn­stofn­inum“, konum og öryggi sam­fé­lags­ins.

Þetta kemur fram í grein­inni „Grýta þetta pakk“: Hat­ur­stján­ing í íslensku sam­hengi eftir Eyrúnu Eyþórs­dóttur, lektor á hug- og félags­vís­inda­sviði við Háskól­ann á Akureyri, og Kristínu Lofts­dóttur, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands. Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði tíma­rits­ins Stjórn­mál & stjórn­sýsla í síð­ustu viku.

Í grein­inni kemur fram að hat­urs­orð­ræða sé talin vax­andi vandi í hinum vest­ræna heimi í dag. Oft hafi verið vísað til tján­ingar Donalds Trumps og stjórn­mála­manna sem tengj­ast Brexit sem sam­þykktar á tján­ingu hat­urs og, sam­hliða því, sköp­unar jarð­vegs til áfram­hald­andi hat­ur­stján­ingar.

Einnig deili ákveðnir fjöl­miðlar hat­urs­fullum boð­skap gegn minni­hluta­hópum. Innan þessa jarð­vegs hat­urs spretti upp ýmis­konar hat­urs­sam­tök sem beita sér gegn minni­hluta­hópum, bæði í orði og með ofbeldi.

Nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegli það að nei­kvæð tján­ing í garð ólíkra minni­hluta­hópa sé nokkuð almenn, en jafn­framt megi greina fjölgun á rýmum þar sem ein­stak­lingum virð­ist finn­ast þeir geta tjáð mjög nei­kvæð við­horf.

Orðræðan beinist að mestu gegn múslímum

Í grein­inni segir að orð­ræðan hér á landi bein­ist að mestu leyti gegn múslímum. Ein­stak­lingar sem halda úti orð­ræðu sem þess­ari hafi í sumum til­fellum beinan aðgang að fjöl­miðlum í gegnum eign­ar­hald og stjórnun miðl­anna þar sem fals­fréttum sé meðal ann­ars miðlað. Í gegnum þessa miðla hafi þessir ein­stak­lingar mögu­leika á að setja ákveðin mál á dag­skrá eða hafa áhrif á umræð­una.

Einnig sé áhyggju­efni að til­teknir og óþekktir aðilar virð­ast hafa bol­magn til að fjár­magna við­burði þar sem fengnir séu til lands­ins ein­stak­lingar sem þekktir eru fyrir að miðla hat­ursá­róðri, sem og til að veita fé til þýð­ingar og útgáfu bóka þar sem meg­in­mark­miðið virð­ist vera að sýna að „hvítum Evr­ópu­búum“ standi ógn af múslímum; bóka sem séu til þess fallnar að skapa nei­kvæðar til­finn­ingar í garð fjöl­breytni í sam­fé­lag­inu.

Hafa aðgang í gegnum Útvarp Sögu til að dreifa hatursáróðri

„Slíka orð­ræðu er jafn­framt að finna innan stjórn­mál­anna, en stjórn­mála­flokk­arnir Íslenska þjóð­fylk­ingin og Frels­is­flokk­ur­inn eru meðal ann­ars stofn­aðir sér­stak­lega gegn inn­flytj­endum, múslímum og fólki sem leitar alþjóð­legrar verndar. Jafnvel þótt fylgi þess­ara flokka hafi ekki náð miklu flugi hingað til hafa þeir góðan aðgang að fjöl­miðl­inum Útvarpi Sögu til að dreifa hat­ursá­róðri,“ segir í grein­inni.

Þá kemur fram að þótt aðrir stjórn­mála­flokkar hafi þessi stefnu­mál ekki á sinni dag­skrá hafi stjórn­mála­fólk úr ýmsum öðrum flokkum talað á nei­kvæðum nótum um þessa hópa með marg­vís­legum hætti og sér­stak­lega megi skoða teng­ingar ein­stak­linga sem hafa verið kosnir sem full­trúar Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins við aðila sem miðla hat­ur­stján­ingu.

Ekki skuli vanmeta skipulagða haturshópa

Í grein­inni segir enn fremur að upp­gangur skipu­lagðra hat­urs­hópa eins og Norð­ur­vígis og Vakurs hafi sýnt fram á það að grund­völlur sé fyrir slíkri starf­semi hér­lendis. „Hér verður sér­stak­lega að gæta þess að van­meta ekki slík sam­tök vegna fámennis heldur hafa í huga að í flestum hryðju­verkum sem hafa verið framin í nafni öfga­hægri­hyggju hafa verið á ferð svo­kall­aðir „lone wolves“ eða aðilar sem til­heyra ekki skipu­lögðum hópum öfga­manna heldur eru „ósýni­legir“ fylgj­endur slíkra sam­taka á net­inu.“

Jafn­framt kemur fram að margir þeirra sem halda úti því sem er hat­urs­orð­ræða eða á mörkum þess tali um að tján­ing­ar­frelsið eigi í vök að verj­ast og rétt­læti for­dóma og hat­ur­stján­ingu með vísan til stjórn­ar­skrár­innar en taki þó ekki til­lit til þess að laga­greinin til­greini aug­ljós­lega að tján­ingu megi skerða. Samtímis sé ósýni­legt hver fjár­magni útgáfu og þýð­ingu á bókum sem eru þekktar alþjóð­lega fyrir for­dóma, sem og inn­flutn­ing á fyr­ir­lesurum sem telja fólki trú um að Evrópa sé í stríði við múslíma, og rekstur fjöl­miðla sem dreifa þessum for­dómum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár