Faraldurinn kosti sveitarfélög landsins 33 milljarða í ár

Áætlað er að rekstr­ar­nið­ur­staða sveit­ar­fé­laga verði um 26,6 millj­örðum lak­ari í ár heldur en gert var ráð fyrir í upp­haf­legum fjár­hags­á­ætl­unum sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga. Auknar fjár­fest­ingar árs­ins nema 6,6 millj­örðum.

Áætlað er að nei­kvæð áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á fjár­hags­stöðu íslenskra sveit­ar­fé­laga muni nema rúmum 33 millj­örðum á þessu ári. Til að setja þær tölur í sam­hengi námu heild­ar­út­gjöld sveit­ar­fé­laga á síð­asta ári alls 390 millj­örðum króna. Hin nei­kvæðu áhrif nemi þar af leið­andi um 8,5 pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum sveit­ar­fé­lag­anna. Þetta er nið­ur­staða skýrslu starfs­hóps um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga sem kynnt var í vik­unni.

„Ljóst er að Covid-19 far­ald­ur­inn hefur haft og mun hafa tölu­verð áhrif á fjár­mál sveit­ar­fé­laga en áhrifin eru mjög ólík eftir sveit­ar­fé­lögum og lands­hlutum. Almennt má segja að áhrif Covid-19 far­ald­urs­ins séu hlut­falls­lega mest þar sem umfang ferða­þjón­ustu er hlut­falls­lega stærst og þar sem ætla má að útgjöld vegna félags­legrar þjón­ustu og fjár­hags­að­stoðar vegur þyngst,“ segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar.

Þannig sé mörgum sveit­ar­fé­lögum þröngur stakkur snið­inn hvað varðar við­brögð við ástand­inu, eins og það er orðað í skýrsl­unni. Reyna muni á fram­lög þeirra sveit­ar­fé­laga vegna lög­bund­inna verk­efna, svo sem í vel­ferðar- og skóla­málum.


Rekstarniðurstaða versni um tæpa 27 milljarða

Í skýrsl­unni kemur fram að áætluð rekstr­ar­nið­ur­staða sveit­ar­fé­lag­anna verði 26,6 millj­örðum lak­ari á árinu heldur en gert var ráð fyrir í fjár­hags­á­ætl­unum þeirra. Þá er gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar sveit­ar­fé­lag­anna verði um 6,6 millj­örðum meiri í ár heldur en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. Sam­an­lagt eru frá­vik frá upp­haf­legum fjár­hags­á­ætl­unum því 33 millj­arðar eða um 91 þús­und krónur á hvern íbúa að með­al­tali.

Áætlað er að útsvars­tekjur sveit­ar­fé­lag­anna muni drag­ast saman um um það bil níu millj­arða. Í upp­haf­legum fjár­hags­á­ætl­unum var gert ráð fyrir að útsvars­tekjur árs­ins myndu nema rúm­lega 223 millj­örðum króna en sam­kvæmt þeim gögnum sem nú liggja fyrir áætlar starfs­hóp­ur­inn að útsvars­tekjur árs­ins muni nema 212 millj­örðum króna. Útsvars­tekjur eru stærsti ein­staki tekju­stofn sveit­ar­fé­laga.

Það er þó mjög mis­jafnt hversu mik­ill hall­inn er hjá hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig, til að mynda er gert ráð fyrir að tekjur á íbúa verði hærri en áætl­anir gerðu ráð fyrir í alls tólf sveit­ar­fé­lögum. 

Fjármagna hallann að miklu leyti með lánum

Samkvæmt áætl­unum sveit­ar­fé­lag­anna sem vísað er í í skýrsl­unni þá munu sveit­ar­fé­lögin fjár­magna auk­inn halla ann­ars vegar með auknum lán­tökum upp á 23 millj­arða og hins vegar með því að ganga á hand­bært fé upp á rúma tíu millj­arða.

Um gerð skýrsl­unnar segir að gögnum um fjár­mál sveit­ar­fé­laga hafi verið safnað úr árs­reikn­ingum þeirra auk þess sem upp­lýs­inga var leitað frá Rík­is­skatt­stjóra, Hagstofu Íslands, og Vinnu­mála­stofn­unar. Þá var sveit­ar­fé­lögum send beiðni um fjár­mála­upp­lýs­ingar úr bók­haldi þeirra frá síð­ustu mán­uðum.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi þann 28. apríl síð­ast­lið­inn að beina því til sam­ráðs­nefndar ríkis og sveit­ar­fé­laga að setja á fót grein­ing­ar­hóp til meta fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga. Formaður starfs­hóps­ins var dr. Gunnar Har­alds­son, hag­fræð­ingur, sem skip­aður var án til­nefn­ingar. Í starfs­hópnum sátu einnig Dan Brynjars­son, sviðs­stjóri fjár­sýslu­sviðs Akur­eyr­ar­bæjar og Halldóra Kára­dóttir, sviðs­stjóri fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, fyrir Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, Hanna Dóra Hólm Más­dóttir fyrir sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið, Kristinn Bjarna­son fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Pétur Berg Matth­í­as­son fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár