Hundrað áhorfendur mega sækja íþróttaviðburði á fimmtudag

Allt að 100 áhorf­endur mega mæta á íþrótta­við­burði hér á landi á fimmtu­dag. Hlut­irnir hafa breyst frá því í morgun, en í upp­haf­legri til­kynn­ingu frá stjórn­völdum um til­slak­anir á sótt­varna­að­gerðum kom fram að íþrótta­keppni væri heimil, án áhorf­enda.

Ekki svona þétt reyndar. Og með grímu. En áhorfendur munu fá að sækja íþróttakeppnir þegar íþróttir verða heimilar á ný á fimmtudag.
Ekki svona þétt reyndar. Og með grímu. En áhorf­endur munu fá að sækja íþrótta­keppnir þegar íþróttir verða heim­ilar á ný á fimmtu­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Allt að 100 áhorf­endur mega sækja íþrótta­við­burði hér á landi þegar til­slak­anir á opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum taka gildi á fimmtu­dag. Þetta er breyt­ing á því sem til­kynnt var fyrr í dag, en þá sagði í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu að íþrótta­keppni yrði leyfð á ný, án áhorf­enda.

Það var í sam­ræmi við til­lögu frá sótt­varna­lækni, sem hafði lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra í nýjasta minn­is­blaði sínu um til­slak­anir að íþrótt­unum yrði leyft að fara aftur af stað, en án áhorf­enda.[links]

Fyrstu fréttir af þess­ari til­högun vöktu nokkra gagn­rýni í íþrótta­sam­fé­lag­inu, en mörgum þótti það skjóta skökku við að allt að 100 áhorf­endum yrði heim­ilt að sitja í hverju sótt­varna­hólfi í leik­húsum á sama tíma og ekki einn ein­asti áhorf­andi mætti sjá íþrótta­keppnir berum augum, óháð því hvort þær færu fram inn­an­húss eða utan­húss.

„Íþrótta­æf­ingar og -keppnir barna og full­orð­inna með og án snert­inga í öllum íþróttum heim­ilar með allt að 100 áhorf­endum sem skulu skráðir í sæti. Hámarks­fjöldi full­orð­inna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu tak­mörk­unum og í skóla­starfi,“ segir nú í upp­færðri til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár