„Fullvíst“ að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr samfélaginu

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að þrátt fyrir að tek­ist hafi að koma í veg fyrir stærri hóp­sýk­ingar og útbreiðslu á kór­ónu­veirunni megi telja full­víst að ekki hafi tek­ist að upp­ræta veiruna úr sam­fé­lag­inu.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Með þeim aðgerðum sem verið hafa í gildi inn­an­lands og á landa­mær­unum síð­ustu vikur hefur tek­ist að koma í veg fyrir stórar hóp­sýk­ingar og útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Því leggur sótt­varna­læknir til í nýju minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra að ákveðnar aflétt­ingar verði gerðar á tak­mörk­unum inn­an­lands og hefur ráð­herr­ann farið að til­mælum hans í nýrri reglu­gerð sem tekur gildi á fimmtu­dag.

Þegar síð­asta reglu­gerð var sett þann 25. mars um tak­mark­anir á sam­komum inn­an­lands höfðu vik­urnar á undan komið upp nokkrar hóp­sýk­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu af völdum breska afbrigðis kór­ónu­veirunnar. Afbrigðið hefur valdið miklum usla í nágranna­löndum okkar síð­ustu vikur og mán­uði enda hefur fleira ungt fólk verið að veikj­ast en af öðrum afbrigðum veirunnar.

[adspot]

Á sama tíma voru aðgerðir á landa­mær­unum einnig hertar sem fólst í sýna­töku hjá ferða­mönnum sem fram­vísa vott­orðum um fyrri sýk­ingu af völdum COVID-19 og bólu­setn­ingu gegn COVID-19, sýna­töku, hjá börnum sem hingað ferð­ast og aukið eft­ir­lit með þeim sem dvelj­ast í sótt­kví eða ein­angrun.

[links]Frá því þessar reglu­gerðir tóku gildi hafa dag­leg smit verið frá 2-11 alls og á allt upp í sex þar af hverju sinni verið utan sótt­kvíar við grein­ingu. „Þannig má full­yrða að komið hafi verið í veg fyrir stærri hóp­sýk­ingar eða útbreiðslu,“ skrifar Þórólfur í minn­is­blaði sínu. Hins vegar megi „full­víst telja að ekki hafi tek­ist að upp­ræta veiruna úr sam­fé­lag­inu og því fyllsta ástæða til að fara áfram með fyllstu gát sér­stak­lega þegar haft er í huga að COVID-19 er ennþá í mik­illi útbreiðslu í okkar nálægu löndum. Þá er ekki séð fyrir end­ann á afleið­ingum nýrra afbrigða veirunnar. Þess vegna er áfram mik­il­vægt að við­hafa ýtr­ustu var­kárni á landa­mærum og það í raun lyk­ill að því að hægt sé að slaka á inn­an­lands“.

Þórólfur skrifar einnig að bólu­setn­ingar elstu hópa hér á landi gangi vel og nú sé búið að bólu­setja langt yfir 90 pró­sent af 70 ára og eldri. „Ég tel þó rétt að fara hægt í allar aflétt­ingar tak­mark­ana inn­an­lands á meðan verið er að ná góðum tökum á smitum á landa­mærum og auk­inni þátt­töku í bólu­setn­ingum.“

Helstu breytingar á almennum samkomutakmörkunum sem taka gildi á fimmtudag:

Í meg­in­at­riðum verður um sam­bæri­legar tak­mark­anir að ræða á sam­komum og giltu frá 5. febr­úar síð­ast­liðnum. Minnt er á mik­il­vægi þess að fólk gæti vel að sótt­vörnum og fylgi reglum.

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir verða 20 manns.
  • Sund- og bað­stöðum og heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum heim­ilt að opna fyrir 50% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta, auk ann­arra skil­yrða.
  • Íþrótta­æf­ingar og -keppnir barna og full­orð­inna með og án snert­inga í öllum íþróttum heim­ilar, án áhorf­enda. Hámarks­fjöldi full­orð­inna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu tak­mörk­unum og í skóla­starfi.
  • Skíða­svæðum heim­ilt að taka á móti 50% af hámarks­fjölda mót­töku­getu hvers svæðis.
  • Sviðs­listir, þar með talið kór­a­starf, heim­ilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitj­andi gestum í hverju hólfi, auk ann­arra skil­yrða.
  • Hámarks­fjöldi við athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
  • Öllum versl­unum heim­ilt að taka á móti 5 við­skipta­vinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfs­manna í sama rými og við­skipta­vinir.
  • Skemmti­stöðum, krám, spila­sölum og spila­kössum heim­ilt að hafa opið með sömu skil­yrðum og veit­inga­stöðum þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ingar.
  • Verklegt öku­nám og flug­nám með kenn­ara heim­ilt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár