Það sem má – og það sem má alls ekki – í heimasóttkví

Ferða­langar mega dvelja í heima í sótt­kví á milli skim­ana en þá verða þeir að gera það einir nema að allir aðrir á heim­il­inu fari sömu­leiðis í sótt­kví. Ef þetta er ekki ger­legt skal hann fara í sótt­varna­hús.

Í sóttkví: Umgengni við annað fólk er óheimil.
Í sótt­kví: Umgengni við annað fólk er óheimil. Mynd: EPA

Þeir sem koma til Íslands eftir að hafa verið á áhættu­svæðum erlendis þurfa að fara í sótt­kví og skulu skrá sig fyrir kom­una til lands­ins. Í dag eru öll lönd utan Íslands fyrir utan Grænland skil­greind sem áhættu­svæði.

Þetta kemur fram í nýjum leið­bein­ingum sótt­varna­læknis um sótt­kví en þar er orða­lagið „heima­sótt­kví“ notað um sótt­kví í hús­næði sem ekki telst til opin­berra sótt­varna­húsa, hvort sem um er að ræða heima­hús, hótel, eða aðra gisti­mögu­leika sem telj­ast við­eig­andi hús­næði fyrir sótt­kví. Þannig er orðið „heima“ notað um aðstöðu sem notuð er til sótt­kvíar, hvort sem ein­stak­lingur er búsettur þar að stað­aldri eða ekki. Orðið „ferða­maður“ er notað yfir alla þá sem koma til Íslands, óháð búsetu, þjóð­erni eða til­gangi ferða­lags.

[adspot]

Sömu leið­bein­ingar gilda um heima­sótt­kví fyrir ferða­menn og þá sem eru útsettir fyrir smiti inn­an­lands nema að ferða­menn þurfa að dvelja 5 daga í sinni sótt­kví, sem líkur eftir nei­kvæða seinni sýna­töku en útsetn­ing inn­an­lands krefst 7 daga sótt­kvíar með sýna­töku í lok sótt­kvíar.

[links]Sóttkví er orð sem við erum flest farin að þekkja en sökum þess að brögð hafa verið á því að fólk haldi þær reglur sem fyrir liggja um slíkt úrræði, og ekki var laga­stoð fyrir hendi til að skikka fólk í sótt­varna­hús, hefur sótt­varna­læknir nú áréttað ýmis­legt og skerpt á öðru í nýjum leið­bein­ingum um hvað felst í því að vera í sótt­kví.

Í nýju minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra þar sem hann leggur til nýjar aðgerðir á landa­mærum sem ráð­herra hefur þegar ákveðið að setja í reglu­gerð er tekur gildi á morgun, segir um heima­sótt­kví:

  • Aðilar á heim­il­inu sem ekki hafa verið útsettir fyrir smiti skulu ekki vera á heim­il­inu með ein­stak­lingi sem er í sótt­kví. Heim­il­is­menn sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta verið í sótt­kví saman á sama stað.
  • Ef ein­stak­lingar sem ekki hafa verið útsettir vilja ekki eða geta ekki farið af heim­il­inu eiga þeir að vera í sótt­kví með hinum.
  • Umgengni við annað fólk er óheimil. Þess vegna þarf ein­stak­lingur að fá aðstoð við aðföng o.þ.h. Ef heim­ilið er í sótt­kví geta vinir eða ætt­ingjar sinnt aðföngum og skilið eftir við úti­dyr. Ef heim­send­ing mat­væla og ann­arra nauð­synja er í boði á svæð­inu er hægt að nýta þá þjón­ustu á meðan sótt­kví stendur. Sá sem er í sótt­kví ætti að taka fram að um sótt­kví sé að ræða og varn­ing ætti að skilja eftir við úti­dyr.
  • Ef ein­stak­lingur í sótt­kví fær ein­kenni COVID-19 sýk­ingar ber honum að fara taf­ar­laust í sýna­töku (nota má einka­bíl eða leigu­bíl og taka skal fram að hann sé í sótt­kví).
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví á að halda sig heima við og ekki hafa bein sam­skipti við aðra.
  • Sótt­kví­ar­staður þarf að vera sér hús­næði sem telst full­nægj­andi til sótt­kvíar. Þetta getur verið heim­ili fólks en einnig leigu/láns­í­búðir eða hót­el­her­bergi.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má sækja nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu, þá að höfðu sam­ráði fyr­ir­fram við heilsu­gæslu/1700/112.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki nota almenn­ings­sam­göngur (þ.m.t. áætl­un­ar­flug inn­an­lands, stræt­is­vagna) en má nota leigu­bíla, bíla­leigu­bíla eða einka­bíl til að kom­ast á sótt­kví­ar­stað eftir kom­una (og aftur á landamæra­stöð ef það á við), til að sækja nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og til að kom­ast til og frá seinni sýna­töku. Ein­stak­lingar í sótt­kví vegna ferða­lags mega nota flug­rútu.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara til vinnu eða skóla.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara á manna­mót, hvort sem þau varða starf hans, fjöl­skyldu eða félags­líf.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má vera við­staddur kistu­lagn­ingu og jarð­ar­för/bálför ef hann fylgir sér­stökum leið­bein­ingum þar að lút­andi. Nið­ur­staða úr fyrri sýna­töku skal liggja fyrir eftir ferða­lag erlendis. Ein­stak­lingur í sótt­kví sem dvelur á sama stað/heim­ili og sýktur ein­stak­lingur með COVID-19 má ekki vera við­staddur kistu­lagn­ingu eða jarð­ar­för/bálför.
  • Ein­stak­lingar í sótt­kví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum, þ. á m. í apó­tek, mat­vöru­verslun, póst­hús, banka eða annað.
  • Ein­stak­lingar í sótt­kví mega ekki fara á veit­inga­staði, krár/vín­veit­inga­staði, heilsu­rækt­ar­stöðvar, sund­laugar, í leik­hús, kvik­mynda­hús, versl­anir eða aðra staði þar sem margir koma saman.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki dvelja í sam­eig­in­legum rýmum fjöl­býl­is­húsa, s.s. stiga­göngum, þvotta­húsum eða sam­eig­in­legum görðum/úti­vist­ar­svæðum.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki taka á móti gestum á heim­ili sínu meðan sótt­kví stendur yfir.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara út á svalir eða í garð sem er til einka­af­nota.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara í göngu­ferðir í nærum­hverfi sótt­kví­ar­staðar en þarf að halda sig í a.m.k. 2 metra fjar­lægð frá öðrum veg­far­endum og má ekki heim­sækja fjöl­sótta staði þrátt fyrir að vera undir beru lofti. Viðmið eru tvær göngu­ferðir á dag í hámark 30 mín­útur í hvort sinn.
  • Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara í skoð­un­ar­ferðir og má ekki fara út að keyra nema við kom­una til lands­ins, þegar mögu­lega þarf að ferð­ast milli landamæra­stöðvar og heim­ilis og í seinni sýna­töku eftir komu til lands­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár