Bretar ætla að minnka mengun lang mest allra í heiminum

Ný loft­lags­mark­mið breskra stjórn­valda ganga mun lengra en ann­arra þjóða. Óvissu um stefnu stjórn­valda í kjöl­fara Brexit hefur verið eytt tíma­bundið. Enn þurfa stærstu ríki heims að inn­leiða Par­ís­ar­sátt­mál­ann í lög.

Bretar horfa einna helst til beislunar vindorku þegar kemur að endurnýjun orkuframleiðslukerfisins þar.
Bretar horfa einna helst til beisl­unar vind­orku þegar kemur að end­ur­nýjun orku­fram­leiðslu­kerf­is­ins þar. Mynd: EPA

Bresk stjórn­völd hafa sam­þykkt lofts­lags­mark­mið sem miðar að því að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið um 53 pró­sent til árs­ins 2032 miðað við árið 1990. Þetta hefur glætt vonir breskra nátt­úru­vernd­ar­sam­taka á ný eftir að Bretar ákváðu að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið á dög­unum. Enn er þó þörf á strang­ari stefnu­mótun eigi mark­miðin að nást, benda opin­berir álits­gjafar stjórn­valda á.

Utan­rík­is­ráð­herrar 35 helstu meng­un­ar­ríkja í heimi fund­uðu í Berlín á hinum árlega Pet­er­berg-fundi undir yfir­skrift­inni „Making the Paris agreement a rea­lity“ á mánu­dag og þriðju­dag. Fundinum er ætlað að brúa bilið á milli COP21 ráð­stefn­unnar í París og COP22 ráð­stefn­unnar sem haldin verður í Morókkó í nóv­em­ber.

Markmið Breta er það metn­að­ar­fyllsta sem sett hefur verið fram til Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar. Í síð­ustu viku til­kynnti Amber Rudd, ráð­herra lofts­lags­mála í bresku rík­is­stjórn­inni, um að Bretar ætl­uðu að setja sér háleit mark­mið í kjöl­far Brexit. Hún benti á að með úrsögn lands­ins úr ESB verður það mun erf­ið­ara fyrir Breta að stand­ast skuld­bind­ingar sínar í lofts­lags­málum. Verk­efnin séu þau sömu þegar öllu er á botn­inn hvolft þó styrkir og inn­viðir ESB hverfi.

[adspot]

„Brexit vekur upp margar spurn­ingar fyrir orku­geir­ann, að sjálf­sögu,“ er haft eftir Rudd á vef The Guardian. „Það hefur verið mik­ill hagur af því að geta átt við­skipti bæði innan Evrópu og að vera þrösk­uldur inn í Evrópu fyrir allan heim­inn.“

Ný mark­mið eru sögð hafa hjálpað til við að sann­færa mik­il­væga fjár­festa sem þurfa að koma að við­snún­ingi orku­kerf­is­ins í Bret­landi.

Fyrir lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í París í des­em­ber síð­ast­liðnum tóku Bretar þátt í lofts­lags­mark­miðum ESB um að minnsta kosti 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við árið 1990. Samn­ing­ur­inn sem varð til í París var svo und­ir­rit­aður í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í apríl.

Ísland samdi með ESB um lofts­lags­sátt­mál­ann, ásamt Noregi, en enn á eftir að ljúka við­ræðum Íslend­inga við aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins og okkar „sann­gjarna hluta“ í mark­miðum sam­bands­ins. Slík vinna er í und­ir­bún­ingi í umhverf­is­ráðu­neyt­inu eins og

Kjarninn greindi

frá á dög­unum.

Nýr framkvæmdastjóri UNFCCC

Christiana Figueres, sem hefur gengt emb­ætti fram­kvæmda­stjóra Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál, hefur lokið kjör­tíma­bili sínu og hættir í þessum mán­uði. Við emb­ætt­inu tekur Patricia Espinosa, núver­andi sendi­herra Mexíkó í Þýska­landi.

Figueres ætlar nú að sækj­ast eftir stöðu fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna. Því emb­ætti gegnir nú Ban Ki-moon en kjör­tíma­bili hans lýkur í lok árs. Figueres er sögð bera mikla ábyrgð á því að ná að leiða saman þjóðir heims til að gera sögu­legt lofts­lags­sam­komu­lag í París í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Fjöl­margir hafa þegar lýst yfir fram­boði í það emb­ætti og enn fleiri nefndir sem hugs­an­legir fram­bjóð­endur. Þar á meðal er áhrifa­mikið fólk á borð við Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, og nor­rænna leið­toga á borð við Helle Thorning-Schmidt, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, og Alex­ander Stubb, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands og núver­andi fjár­mála­ráð­herra. Þá hefur þeim mögu­leika verið velt upp að Ólafur Ragnar Grímsson muni sækj­ast eftir emb­ætt­inu þegar hann lætur af emb­ætti for­seta Íslands um næstu mán­að­ar­mót.

Næsti fram­kvæmda­stjóri verður val­inn af Alls­herj­ar­þingi Sam­einð­uðu þjóð­anna sam­kvæmt til­nefn­ingu Örygg­is­ráðs­ins. Aldrei hefur kona gengt emb­ætt­inu. Venju­lega velj­ast til verks­ins hóf­stilltir stjórn­mála­menn eða diplómatar. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar konur sóst eftir stöðu fram­kvæmda­stjór­ans og athygli vekur hversu margir fram­bjóð­enda koma frá Austur-Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár