Vill ekki rýmri rétt til fóstureyðinga heldur hjálpa „verðandi mæðrum í vanda“ að eignast börn

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, er eini stjórn­ar­þing­mað­ur­inn í vel­ferð­ar­nefnd sem leggst gegn því að frum­varp um þung­un­ar­rof verði sam­þykkt. Hann vísar meðal ann­ars í umsögn bisk­ups Íslands máli sínu til stuðn­ings.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og nefndarmaður í velferðarnefnd, hefur skilað minnihlutaáliti og leggst gegn því að frumvarp um þungunarrof verði samþykkt. Hann er eini stjórnarþingmaðurinn sem situr í nefndinni sem leggst gegn samþykkt frumvarpsins.

Í nefndaráliti Ásmundar segist hann vera þeirrar skoðunar að þegar líf sé myndað af tveimur einstaklingum þá sé „of langt gengið að annar einstaklingurinn hafi einn ákvörðunarvald um það hvort enda skuli meðgönguna. Þannig er mikil ábyrgð lögð á verðandi móður eina.“

Í áliti Ásmundar segir einnig að fóstureyðing eða þungunarrof hljóti alltaf að vera neyðarráðstöfun og að mati hans hljóti hún helst að koma til greina ef þungunin ógnar lífi eða heilsu hinnar verðandi móður eða ef ljóst þykir að fóstrið sé ekki lífvænlegt. Fremur en að tala um að rýmka rétt til fóstureyðinga væri okkur nær að finna leiðir til að hjálpa verðandi mæðrum í vanda að eignast börn sín.“

[adspot]Ásmundur vitnar svo í umsögn biskups Íslands um frumvarpið þar segir að samkvæmt „kristinni trú okkar er lífið heilagt, náðargjöf sem Guð gefur og Guð tekur. Það er hlutverk mannsins að varðveita það og vernda eftir fremsta megni og bera virðingu fyrir mannhelginni, sköpuninni og skaparanum.“ Ásmundur segist taka undir þau orð og leggst gegn frumvarpinu á þeim.

Verði leyft fram að 22. viku meðgöngu

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra lagði fram frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á lögum um þung­un­ar­rof í jan­úar síð­ast­liðnum. Í frum­varpi Svan­dísar er lagt til að þung­un­ar­rof verði leyft fram að 22. viku með­göngu og að ein­stak­lingar þurfi ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir þung­un­ar­rof­in­u.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að ef frum­varpið verði að lögum sé um mikla breyt­ingu að ræða sem ætluð er að tryggja konum sjálfs­for­ræði yfir eigin lík­ama og eigin fram­tíð hvað barn­eignir varðar þannig að þær hafi öruggan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu óski þær eftir þung­un­ar­rofi.

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar skil­aði nefnd­ar­á­liti á þriðju­dag þar sem hann lagði til að frum­varpið yrði sam­þykkt með breyt­ingum. Þær breyt­ingar snúa þó ekki að því hversu lengi þung­un­ar­rof verður leyft. Meiri­hlut­inn vill enn að heim­ild til þess verði fram á 22. viku með­göngu.

Meiri­hlut­inn sam­anstendur af þing­mönnum sex flokka þar af öðrum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks í nefnd­inni, Vil­hjálmi Árnasyni, full­trúa Fram­sókn­ar­flokks, Höllu Signýju Krist­jáns­dóttur og Ólafi Þór Gunn­ars­syni frá Vinstri grænum. Tveir nefnd­ar­menn úr stjórn­ar­and­stöðu, nefnd­ar­for­mað­ur­inn Halldóra Mogensen frá Pírötum og Guðjón Brjáns­son frá Sam­fylk­ingu, skrifa einnig undir álitið auk þess sem Hanna Katrín Frið­riks­son, áheyrn­ar­full­trúi í nefnd­inni fyrir hönd Við­reisnar, lýsir sig sam­þykka álit­inu.

Þrír nefndarmenn á móti

Á móti eru hins vegar þrír þing­menn: frá þremur flokkum. Þ.e. stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum Mið­flokki og Flokki fólks­ins og áður­nefndar Ásmundur Frið­riks­son frá Sjálf­stæð­is­flokki.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, nefnd­ar­maður Flokks fólks­ins, segir í sínu áliti að hann telji að miða eigi heim­ild til fóst­ur­eyð­inga áfram við 12. vikur eins og er í gild­andi lögum, nema „fyrir hendi séu ótví­ræðar lækn­is­fræði­legar ástæður og lífi og heilsu kon­unnar sé stefnt í meiri hættu með lengri með­göngu og/eða fæð­ingu. Það er almennt við­ur­kennt að í nær öllum til­vikum er konum full­kunn­ugt um þungun sína fyrir 12. viku með­göngu og því ætti það að heyra til und­an­tekn­inga ef konur geta ekki leitað þess úrræðis sem fóst­ur­eyð­ing er fyrir þann tíma. 3. minni hluti virðir að sjálf­sögðu sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna og yfir­ráð þeirra yfir eigin lík­ama, en dregur að þessu leyti mörkin gagn­vart lífs­rétti hins ófædda barns.“

[adspot]Guð­mundur Ingi leggst einnig gegn notkun á hug­tak­inu þung­un­ar­rof. Í áliti hans segir: „Fóst­ur­eyð­ing er hug­tak sem end­ur­speglar þann verknað sem felst í aðgerð­inni. Hugtakið þung­un­ar­rof er hins vegar til­raun til þess að horfa fram hjá alvar­leika aðgerð­ar­innar og freista þess að færa hana í bún­ing hefð­bund­innar lækn­is­að­gerðar svo mögu­lega verði horft fram hjá því að verið er að binda enda á líf ófædds barns í móð­ur­kviði.“

Anna Kolbrún Árna­dóttir, nefnd­ar­maður Mið­flokks­ins, leggur áherslu á það í sínu minni­hluta­á­liti að „að samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks bannar mis­munun á grund­velli fötl­unar. Með því að heim­ila þung­un­ar­rof fram til loka 22. viku sé ekki komið í veg fyrir mis­munun í raun enda sé rök­stuðn­ing­ur­inn fyrir því að heim­ila þung­un­ar­rof svo seint á með­göngu að hægt verði að bregð­ast við þegar fötlun kemur í ljós við 20 vikna fóst­ur­skimun. Telur 1. minni hluti þá leið sem farin er í frum­varp­inu ekki fela í sér afnám mis­mun­unar í raun.“

Hún felst heldur ekki á það sjón­ar­mið að með því að heim­ila þung­un­ar­rof til loka 22. viku muni konur í erf­iðum félags­legum aðstæðum njóta meiri verndar. „Telur 1. minni hluti að enn verði hægt að bregð­ast við aðstæðum þeirra kvenna fyrir lok 18. viku og að fjöldi kvenna sem fer í þung­un­ar­rof muni ekki breyt­ast með því að heim­ila þung­un­ar­rof fram til loka 22. viku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár