Hægri stjórn ólíklegri en vinstri stjórn

Flestir ætla að kjósa Vinstri græn í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber miðað við kosn­inga­spána. Hægri stjórn er mun ólík­legri en vinstri stjórn eftir kosn­ing­arnar.

Flestir ætla enn að kjósa Vinstri hreyf­ing­una – grænt fram­boð í kom­andi kosn­ingum miðað við kosn­inga­spána. 25,6 pró­sent kjós­enda segj­ast ætla að kjósa flokk Katrínar Jak­obs­dóttur þegar tæpar tvær vikur eru til Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber.

Stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er enn 22,5 pró­sent eins og í síð­ustu kosn­inga­spá. Afar ólík­legt er að fylg­is­sveiflur vegna vend­ing­anna síð­degis á mánu­dag, þegar lög­bann var sett á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar um Bjarna Bene­dikts­son, hafi haft áhrif á fylgi flokk­ana

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð þriðju­dag­inn 17. októ­ber og henni til grund­vallar eru fimm skoð­ana­kann­anir á fylgi stjórn­mála­flokka. Nýjasta könn­unin var gerð mánu­dag­inn 16. októ­ber og þess vegna er hæpið að fylg­is­sveiflur sem kunna að verða vegna lög­banns­ins á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar komi fram í kosn­inga­spánni nú. Hér er hægt að lesa um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar.

[chart]

Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi í sam­vinnu við Kjarnann. Baldur heldur úti vefnum kosn­inga­spa.is þar sem lesa má nánar um kosn­inga­spána og rýna í eldri úrslit.

Sóknin hafin

Áhuga­vert er að rýna í þróun fylgis þeirra flokka sem hafa und­an­farið verið með lítið fylgi í kosn­inga­spánni. Viðreisn skipti Benedikt Jóhann­essyni út úr for­manns­sæt­inu fyrir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur mið­viku­dag­inn 11. októ­ber. Nýjasta kosn­inga­spáin sýnir hugs­an­lega áhrif þeirra for­ystu­breyt­inga og nú mælist Viðreisn með 4,1 pró­sent stuðn­ing eftir að hafa skipst á sætum við Bjarta fram­tíð í um þrjú pró­sent fylgi.

Björt fram­tíð skefur enn botn­inn í kosn­inga­spánni og er nú með þrjú pró­sent stuðn­ing. Þegar kosn­inga­spáin fyrir landið allt er skoðuð má gera ráð fyrir að hvert fram­boð þurfi minnst fimm pró­sent stuðn­ing til þess að geta gert ráð fyrir að ná manni inn á þing. Fyr­ir­var­inn sem setja verður er að fylgi flokka er ekki jafn mikið í hverju kjör­dæmi fyrir sig. Flokkur gæti þess vegna notið meiri stuðn­ings í einu kjör­dæmi og fengið mann kjör­inn þar en engan í öðrum kjör­dæmum.

[chart]

Fylgi flokks fólks­ins hefur hríð­fallið á und­an­förnum tíu dögum og er nú 5,8 pró­sent. Hæst fór flokkur Ingu Sæland í 9,9 pró­sent í lok sept­em­ber.

Er Framsókn ekki stærri en þetta?

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur enn ekki náð sér á strik eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, klauf sig úr flokknum í lok síð­asta mán­aðar og stofn­aði Mið­flokk­inn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er nú með 6,6 pró­sent fylgi en Mið­flokk­ur­inn er með 9,2 pró­sent í kosn­inga­spánni.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hlaut 11,49 pró­sent atkvæða í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum í lok októ­ber í fyrra. Það var minnsta atkvæða­hlut­fall sem flokk­ur­inn hefur fengið í Alþing­is­kosn­ingum síðan flokk­ur­inn var stofn­aður 1916. Þá hafði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn minnkað í hverjum kosn­ingum frá 1995.

Framsókn hefur hins vegar fengið færri þing­sæti en þau átta sem þau fengu í fyrra, því árið 2007 fékk flokk­ur­inn 11,7 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn. Slíkt mis­ræmi ræðst af fjölda fram­boða og dreif­ingu atkvæða hverju sinni.

[adspot]

Sig­mundur Davíð leiddi Fram­sókn­ar­flokk­inn í fyrsta sinn í kosn­ingum 2009 þegar flokk­ur­inn fékk 14,8 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum 2013 fékk Framsókn svo 24,4 pró­sent atkvæða og jafn­stærstan þing­manna­fjölda á Alþingi, með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sam­an­lagt eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn með 15,8 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni.

Vinstri stjórn er enn líklegri

Kosn­inga­spáin reiknar líkur á því hversu stóran þing­flokk hvert fram­boð má gera ráð fyrir að fá að kosn­ingum loknum. Þegar líkur fram­boð­anna eru lagðar saman má skoða hvaða meiri­hluta verður hægt að mynda að loknum kosn­ingum og lík­indin á bak við hverja sam­setn­ingu.

Líkindin fást með því að gera 100.000 sýnd­ar­kosn­ingar þar sem nýjasta kosn­inga­spáin er lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna. Skekkju­mörk og sögu­legt mis­ræmi fylgis flokka milli kjör­dæma er notað sem breytur.

[links]Hægt var að mynda meiri­hluta – 32 þing­menn eða fleiri – úr þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna í nið­ur­stöðum 34 pró­sent sýnd­ar­kosn­ing­anna. Við getum því sagt að 34 pró­sent líkur séu á að slíkur meiri­hluti geti orðið að veru­leika, miðað við nýj­ustu kosn­inga­spána.

Líkurnar eru enn meiri á að hægt verði að mynda meiri­hluta ef við bætum Pírötum við þá flokka sem nefndir voru í dæm­inu hér að ofan.

Alla lík­inda­töfl­una má skoða í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans.

Séu dæmi um hægri­st­jórn skoðuð sést að lík­urnar eru minni. Meiri­hluti Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins var hægt að mynda í 22 pró­sent til­fella sýnd­ar­kosn­ing­anna. EF Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er tek­inn úr þessu dæmi eru lík­urnar aðeins fjögur pró­sent.

Í engum til­vikum var hægt að mynda rík­is­stjórn úr þeim flokkum sem nú sitja við völd, Sjálf­stæð­is­flokknum, Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

Um nýjustu kosningaspána

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni – gerð 17. októ­ber 2017 – eru listaðar hér að neðan. Ástæða þess að nýjasta könn­unin, könnun frétta­stofu 365 er vegin minna en kann­an­irnar sem koma á undan, er að könnun Félags­vís­inda­stofn­unar og könnun Gallup eru gerðar yfir lengra tíma­bil og þar er fjöldi þátt­tak­enda er meiri.

Vægi kann­ana er ákveðið út frá fyr­ir­fram ákveðnum for­sendum svo hægt sé að leggja mat á gildi nið­ur­staðna. Nánar má lesa um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar hér á vefnum.

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 16. okt (21,7%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 9. – 12. októ­ber (22,3%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. sept­em­ber – 12 októ­ber. (24,5%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 6. – 11. októ­ber (17,6%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 10. okt (13,9%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár