Sigmundur Davíð hættir í Framsóknarflokknum og stofnar nýtt framboð

Fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er hættur í flokknum og ætlar að bjóða sig fram undir merkjum nýs flokks.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á spjalli í þingsal.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son á spjalli í þing­sal. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ákveðið að segja skilið við flokk­inn og stofna nýtt stjórn­mála­afl. Sig­mundur Davíð segir inn­an­flokksá­tök og ítrek­aðar til­raunir til þess að koma sér frá sé ástæða þess að hann tekur þessa ákvörðun nú.

Í löngum pistli á vef­síðu sinni, Sig­mund­ur­da­vid.is, greinir Sig­mundur frá þessu. Hann seg­ist hafa staðið frammi fyrir tveimur val­kostum þegar boðað var til nýrra kosn­inga. Annar kost­ur­inn var að berj­ast áfram fyrir sæti sínu í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem Þórunn Egils­dóttir sæk­ist eftir efsta sæti fram­boðs­listan og þurfa svo að sitja í smáum þing­flokki eftir kosn­ing­arnar.

Hinn kost­inn hafi hann talið álit­legri en sá er að „vinna að myndun nýs stjórn­mála­afls með fólki sem er reiðu­búið að starfa á sömu for­sendum og við leit­uð­umst við að gera frá 2009 til 2016“.

Nýja stjórn­mála­aflið sem Sig­mundur Davíð hygg­ist stofna á að veita stöð­ug­leikga og staðið vörð um hefð­bundin grunn­gildi. „Þannig er hægt að mynda hreyf­ingu sem fylgir þeirri rót­tæku rök­hyggju sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stóð fyrir á und­an­förnum árum og var að mínu mati stofn­aður um,“ skrifar Simg­undur. „Slíkt afl mun geta haldið áfram þeirri vinnu sem við vorum langt komin með árið 2016.“

Flokkur hans hygg­ist bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber næst­kom­andi.

Í pistl­inum rekur Sig­mundur Davíð hvernig öfl innan Fram­sókn­ar­flokks­ins reyndu ítrekað að bola honum í burtu eða „grafa undan honum“. Þar hafi Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður í flokknum þegar Sig­mundur var for­maður og núver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, farið fremstur í flokki.

Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð höfðu báðir fengið mót­fram­boð á fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir kosn­ing­arnar í ár. Báðir hafa vermt efsta sæti þess­ara lista und­an­farin kjör­tíma­bil. Engar fregnir hafa enn borist af því hvort Gunnar Bragi hygg­ist ganga til liðs við Sigmund Davíð.

Í morgun var greint frá því að Björn Ingi Hrafns­son, fjöl­miðla­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, ynni að stofnun nýs stjórn­mála­flokks, Sam­vinnu­flokk­inn. Í sam­tali við fjöl­miðla segir Björn Ingi að þar verði í fram­boði fyrr­ver­andi þing­menn ann­arra flokka og hugs­an­lega núver­andi þing­menn ann­ara flokka. Ekkert er fjallað um „Sam­vinnu­flokk­inn“ í pistli Sig­mundar Davíðs eða um Sigmund Davíð í fréttum af Sam­vinnu­flokknum. Þó má gera ráð fyrir að stjórn­mála­afl Sig­mundar sé einmitt Sam­vinnu­flokk­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár