Tíu jákvæðar fréttir af dýrum

Á okkur dynja fréttir um ham­fara­hlýnun og eyði­leggj­andi áhrif þess mann­gerða fyr­ir­bæris á vist­kerfi jarðar. En inn á milli leyn­ast jákvæð tíð­indi sem oft hafa orðið að veru­leika með vís­indin að vopni.

Skjaldbakan Jónatan árið 1886 (t.v.) og í dag.
Skjald­bakan Jónatan árið 1886 (t.v.) og í dag. Mynd: Heimsmetabók Guinness

Menn­irnir hafa skaðað hinn nátt­úru­lega heim mikið á síð­ustu ára­tugum sem m.a. hefur leitt til þess að sumar dýra­teg­undir hafa horfið af yfir­borði jarðar.

Vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið um mik­il­vægi ein­stakra teg­unda und­an­farið og með vís­indin að vopni og með hjartað á réttum stað vinna borg­arar þessa heims ásamt sér­fræð­ingum á ýmsum sviðum að því að lag­færa það sem úr lagi hefur gengið. Það tekst auð­vitað ekki alltaf en við skulum ekki gera lítið úr þeim jákvæðu tíð­indum úr heimi dýr­anna sem okkur hafa borist á þessu ári.

[adspot]

Skjaldbakan Jónatan varð 190 ára

Elsta land­dýr jarðar, risa­skjald­baka kennd við Seychelles-eyjar, fagn­aði 190 ára afmæli sínu á árinu. Talið er að Jónatan, eins og hann er kall­aður, hafi fæðst árið 1832. Það var fyrir tíma tal­sím­ans og ljós­mynd­ar­innar. Jónatan var fæddur er þræla­stríðið í Banda­ríkjum geis­aði. Viktoría Breta­drottn­ing fædd­ist á undan honum en hann var aðeins nokk­urra ára er hún tók við völdum og lifði hana svo um munar og nokkra aðra arf­taka krún­unnar til.

Jónatan hefur svo auð­vitað orðið vitni að umbylt­ingu í sjáv­ar­út­vegi og iðn­aði sem hvort tveggja hefur haft afger­andi áhrif á búsvæði hans og ann­arra dýra á sjó og landi.

Var ekki útdauður eftir allt saman

„Þetta er eins og að finna ein­hyrn­ing,“ sagði vís­inda­mað­ur­inn John Mitt­ermeier er fugl af ætt fas­hana, sem af flestum var tal­inn útdauður, sást fyrir víst í fyrsta skipti í 140 ár í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Fuglinn kall­ast black-naped phe­a­sant pig­eon á ensku, sem vísar til þess að hann er með svartan hnakka en lat­neska heiti hans er Oti­dip­haps insul­aris. Á íslensku mætti kalla hann fasan­dúfu.

Ein­hverjir veiði­menn hafa í gegnum tíð­ina sagst hafa rek­ist á hann en óyggj­andi sönnun um til­vist hans hér á jörð fékkst með er fugla­fræð­ingar sáu hann og náðu myndum af honum í haust. „Þetta er svona augna­blik sem þig dreymir um allt þitt líf,“ sagði Mitt­ermeier.

Sá fyrsti af sinni tegund sem fæðist í Bretlandi í þúsundir ára

[links]Vís­und­skálfur, sá fyrsti sem fæð­ist í Bret­landi í þús­undir ára, kom í heim­inn í haust. Þrír vís­undar voru fluttir inn frá Írlandi og komið fyrir á vernd­ar­svæði í Kent í byrjun júlí. Var þá ekki vitað að „laumu­far­þegi“ var í hópnum. Það er ekk­ert skrítið að mann­fólkið hafi ekki vitað af því að ein kýrin gekk með kálf því vís­undar fela þung­anir sínar vel og eins lengi og þeir geta. Það er nátt­úru­leg vörn þeirra gegn rán­dýrum sem hafa kelfdar kýr og nýfædd ung­viði oft í sigt­inu.

Það rán­dýr sem helst hefur ógnað vís­undum í nútíma er þó ekki fjór­fæt­lingur heldur mann­skepnan.

Bjórinn friðaður

Loksins, loks­ins! Bjórar eru nú frið­aðir í Bret­landi, um 400 árum eftir að þeim var næstum útrýmt með veiðum. Núna er hins vegar orðið ólög­legt að veiða þá, særa eða trufla

„Það breytir öllu að breyta laga­legri stöðu bjóra,“ sagði Joan Edwards, fram­kvæmda­stjóri The Wildlife Trust, er ákvörðun um verndun bjór­anna hafði verið tekin. Samtökin hafa barist hart fyrir því að teg­undin verði friðuð.

Sterk endurkoma

Fimmtíu dýra­teg­undir hafa átt „ein­staka end­ur­komu“ í hina villtu nátt­úru Evrópu á árinu. Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sóknar á afkomu hinna ýmsu dýra­teg­unda eru birnir, úlfar og vís­undar meðal þeirra dýra sem eiga örlítið auð­veld­ara upp­dráttar nú en fyrir nokkrum árum.

Steypireyður, skjald­bökur og otrar eru t.d. að ná sér merki­lega á strik eftir mikla hnignun í stofn­unum síð­ustu ár og ára­tugi.

Hákarlar fara á hraðstefnumót

Bein­há­karlar fara hring eftir hring í leit að ást­inni. Að þessu komust vís­inda­menn sem rann­sök­uðu á nokk­urra ára tíma­bili óvenju­lega hegðun hóps þess­ara mögn­uðu dýra úti fyrir ströndum Írlands. Hákarlar, yfir­leitt jafn­margir af báðum kynjum, synda hægt og rólega í hringi, stundum við yfir­borðið en stundum á meira dýpi. Þeir eru þannig að skoða hvern annan – eru með öðrum orðum í leit að félaga til að makast við – og því hafa vís­inda­menn, sem birtu nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar í ár, líkt atferl­inu við það þegar mann­eskjur hitt­ast á hrað­stefnu­mótum.

Vonir standa til þess að með því að vekja athygli á hinum sér­staka „ást­ar­dansi“ hákarl­anna megi vekja almenn­ing til vit­undar um mik­il­vægi þeirra í vist­kerfum en þeir eru í útrým­ing­ar­hættu á haf­svæðum Evrópu.

Maurar gætu komið í stað meindýraeiturs

Alls konar eitur sem notað er til að verja upp­skeru getur haft mjög skað­leg áhrif á allt líf­ríkið, ekki síst á skor­dýr og þá sér­stak­lega býfl­ugur. Í nýrri rann­sókn er sýnt fram á að maurar geta varið rækt­ar­land jafn­vel og skor­dýra­eitur. Og myndu kosta bændur mun minna.

Vís­inda­menn­irnir komust að því að maurar vernda upp­skeru gegn plágum ýmissa ann­arra skor­dýra. Þá gagn­ast göng þeirra um jarð­veg­inn líka plönt­unum við súr­efn­is­upp­töku. Ekki eru allar maura­teg­undir jafn hent­ugar til að nota til mein­dýra­varna en vís­inda­menn­irnir gerðu til­raunir sínar með maurum af 26 teg­undum.

Blettatígrar aftur til Indlands

Það eru sjö­tíu ár síðan að bletta­tígrar lifðu síð­ast villtir á Indlandi. En núna hefur orðið breyt­ing á nokkur dýr voru á þessu ári flutt frá Suður-Afríku og Namibíu til Indlands þar sem von­ast er til þess að þau fjölgi sér. Dýrunum var sleppt í þjóð­garða sem gætu þá, ef allt gengur að óskum, orðið búsvæði villtra bletta­tígra til fram­tíðar.

Bletta­tígrum var útrýmt í Indlandi með veiðum og vegna þess að þrengt var um of að búsvæðum þeirra.

Tígrisdýr loks frjáls

Fjögur tígris­dýr eru loks frjáls eftir að hafa verið fang­elsuð í lest­ar­vagni í Argent­ínu í fimmtán ár. Dýrin voru áður til sýnis í fjöl­leika­húsi en eftir að það lagði upp laupana voru þau skilin eftir, ein og yfir­gefin í lest­ar­vagn­inum. Talið er að þau hafi ekki fengið að ganga á grasi allan þennan tíma.

Yfirvöld vissu ekki af tígris­dýr­unum í prís­und­inni fyrr en á síð­asta ári og ákveðið var að teymi dýra­lækna og starfs­manna dýra­vernd­un­ar­sam­taka myndu taka að sér að frelsa þau og finna þeim sama­stað til fram­tíðar.

Ákveðið var að flytja þau með flugi í friðland í Suður-Afríku. Svæðið lík­ist þeirra nátt­úru­lega umhverfi og von­ast er til að þau geti dvalið þar í frels­inu við góða heilsu til ævi­loka.

Fiskurinn sem hvarf – en birtist aftur

Síðast sást til hans úti í nátt­úr­unni árið 2003. En núna, öllum þessum árum síðar, syndir litli kar­dinála­fisk­ur­inn, sem kenndur er við tequila, aftur um heima­slóðir sínar í ám í suð­vest­ur­hluta Mexíkó.

Tequila-fiskum tók að fækka veru­lega á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og er athöfnum manna í hans nán­asta umhverfi kennt um. Ljóst þótti í hvað stefndi og þegar allt virt­ist vera um seinan fékk háskóli einn í Mexíkó fimm pör að gjöf frá sædýra­safni í Bret­landi. Þau voru geymd í búrum á rann­sókn­ar­stofu og allir krossuðu fingur um að þau næðu að fjölga sér.

Sem þau og gerðu. Nú eru fimmtán ár síðan að þetta vernd­ar­verk­efni hófst og þá þótti loks óhætt að sleppa fisk­unum út í sitt nátt­úru­lega umhverfi eftir að þeir höfðu dvalið í tjörnum við háskól­ann í nokkurn tíma.

Um 15 þús­und Tequila-fiskar synda frjálsir um í Teuchitlán-ánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár