Sá fyrsti sem fæðist í Bretlandi í fleiri þúsund ár

Undur og stór­merki hafa gerst í Bret­landi en þar er kom­inn í heim­inn vís­und­skálfur, sá fyrsti sem fæð­ist í land­inu í þús­undir ára. Fæðingin er ávöxtur umfangs­mik­ils verk­efnis sem miðar að því að end­ur­heimta villta nátt­úru.

Þarna er hún! Fyrsti vísundurinn sem fæðist í Bretlandi í að minnstas kosti 6 þúsund ár.
Þarna er hún! Fyrsti vís­und­ur­inn sem fæð­ist í Bret­landi í að minnstas kosti 6 þús­und ár.

Í Kent austur af London hoppar nú um og leikur sér afkvæmi sem sann­ar­lega hefur verið beðið eftir. Biðin spannar þús­undir ára því litla skepnan sem hér um ræðir er vís­und­skálfur. Enginn af hans teg­und hefur fæðst í Bret­landi í mörg þús­und ár.

Vísundur er stórt klauf­dýr sem lifir í Evrópu og Norður-Ameríku. Tvær teg­undir vís­unda eru til í nútíma: Amer­ískur vís­undur og evr­ópskur. En þær hafa báðar átt undir högg að sækja síð­ustu ára­tugi – og mun lengur ef út í það er farið. Mögulega gætu málin verið að þró­ast í rétta átt eftir að metn­að­ar­fullt verk­efni sem miðar að því að end­ur­heimta villta nátt­úru var hleypt af stokk­unum.

[adspot]

Þrír vís­undar voru fluttir inn frá Írlandi og komið fyrir á vernd­ar­svæði í Kent í byrjun júlí. Líkt og rakið er í grein Guardian um málið var þá ekki vitað að „laumu­far­þegi“ var í hópnum. Það er ekk­ert skrítið að mann­fólkið hafi ekki vitað af því að ein kýrin gekk með kálf því vís­undar fela þung­anir sínar vel og eins lengi og þeir geta. Það er nátt­úru­leg vörn þeirra gegn rán­dýrum sem hafa kelfdar kýr og nýfædd ung­viði oft í sigt­inu. Það rán­dýr sem helst hefur ógnað vís­undum í nútíma er þó ekki fjór­fæt­lingur heldur mann­skepnan.

Verðir í friðland­inu sem nú eru orðin heim­kynni vís­und­anna upp­götv­uðu ekki við­bót­ina, litlu vís­unda­kúna, fyrr en nokkrum dögum eftir að hún fædd­ist. Móðir hennar hafði farið á afvik­inn stað til að bera. Litla kýrin er auga­steinn móður sinnar og hinna tveggja full­orðnu vís­und­anna og fer í hoppum og stökkum í kringum þau dag­inn út og inn.

Aðstand­endur verk­efn­is­ins, sem eru nátt­úru­sjóðir í Kent og á lands­vísu, höfðu vissu­lega von­ast eftir fjölgun í hópnum en ekki strax. Vís­und­arnir sem fluttir voru í friðlandið í sumar eru allt kven­dýr en til stendur að karl­dýr bæt­ist í hóp­inn á næstu dögum. Þangað verður það flutt frá Þýska­landi.

„Við sáum ekki kúna í nokkra daga og vorum nokkuð ugg­andi því hún er venju­lega full sjálfs­trausts og fremst í flokki vís­und­anna,“ segir einn friðlandsvörð­ur­inn í sam­tali við Guardian. Hinar tvær kýrnar hafi á sama tíma verið eins og á nálum og ekki sjálfum sér líkar.

„Ég fór að leita að henni og eftir um það bil klukku­stundar leit þá heyrði ég hljóð úr runna­þykkni,“ heldur vörð­ur­inn áfram. „Ég vildi ekki fara of nálægt svo ég brá kík­inum á loft og þá sá ég til hennar og sá einnig það sem ég hélt að væri dádýr. Ég varð undr­andi og spurði sjálfan mig hvernig stæði á því að dádýr væri svona nálægt vís­und­inum?“

[adspot]

En síðan kom hið rétta í ljós. „Allt í einu sá ég þetta litla and­lit birt­ast fyrir framan full­orðnu kúna. Þetta var svo ótrú­legt, að þarna væri fæddur fyrsti villti vís­und­ur­inn á Englandi í langan tíma.“

Allar vís­unda­kýrnar koma að upp­eldi þeirrar litlu. Þær sleikja hana og fylgj­ast vel með hverju skrefi sem hún tekur. Ef móð­irin er að hvíla sig er aug­ljóst að hinar tvær kýrnar „passa“ litlu kúna.

Afkomendur aðeins tólf dýra

Í Evrópu er nú að finna um 9 þús­und vís­unda. Þeir eru allir afkom­endur aðeins tólf dýra sem haldið var í dýra­görðum. Þótt dýra­garðar séu ekki full­komnir staðir fyrir dýr að dvelja á er óhætt að segja að í þessu til­felli hafi slíkir bjargað evr­ópska vís­und­inum frá algjörri útrým­ingu sem í stefndi í uppafi 20. ald­ar­innar.

Vís­und­arnir í Kent hafa yfir um 5 hekt­ara svæði að ráða. Innan skamms verða þeir fluttir á 50 hekt­ara svæði og næsta sumar á 200 hekt­ara svæði þar sem þeir munu dvelja til fram­búðar og von­andi fjölga sér.

Heimsmet í náttúruleysi

Villt nátt­úra er orðin af svo skornum skammti í Bret­landi að lík­lega er um heims­met að ræða. Á síð­ustu árum hafa verk­efni til end­ur­heimtar verið fjár­mögnuð af bæði opin­berum aðilum og einka­að­ilum.

Vísundar skipta máli í þróun og við­gangi skóga, svo dæmi sé tekið. Þeir éta trjá­börk, drepa þannig eldri tré svo það mynd­ast svæði í þéttum skógum þar sem geislar sólar eiga greið­ari aðgang að skóg­ar­botn­inum og í honum fara að vaxa ýmsar jurtir sem svo aðrar dýra­teg­undir þríf­ast á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár