Forsetinn og utanríkisstefnan

Í stjórn­ar­skránni er ein­ungis ein grein sem til­tekur afmark­aðan þátt utan­rík­is­mála. Hefð hefur þó verið fyrir því að rík­is­stjórn móti og fari með utan­rík­is­mála­stefn­una. Á þessu hefur orðið breyt­ing á með setu Ólafs Ragnars Gríms­sonar á for­seta­stóli.

Sú hefð hefur löngum ríkt í íslenskri stjórn­skipun að það er rík­is­stjórnin sem mótar og fer með utan­rík­is­stefn­una. For­set­inn hefur þjónað sem hlut­laus full­trúi Íslands í form­legum diplómat­ískum sam­skiptum og raunar var það svo að ekki var talið við hæfi að for­set­inn væri að tjá sig um nokkurn skap­aðan hlut sem ekki til­heyrði hinum form­legu skyldum emb­ætt­is­ins. Á þessu hefur orðið tals­verð breyt­ing á þeim tíma sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur setið í emb­ætti. Skemmst er að minn­ast þess þegar hann í upp­hafi for­seta­tíðar sinnar gerði athuga­semdir um ástand vega á Vest­fjörðum og þótti fara langt út fyrir verk­svið sitt.

Nú um stundir virð­ist fólk ekki kippa sér eins mikið upp við skoð­anir for­set­ans á hinum ýmsu málum, jafn­vel þótt þær séu á svig við mik­il­væga þætti eins og utan­rík­is­stefn­una. Má þar benda á mis­ræmi í mál­flutn­ingi for­set­ans og rík­is­stjórn­ar­innar í Úkra­ínu­deil­unni þar sem Ólafur Ragnar reyndi að sveigja frá afstöð­unni gagn­vart við­skipta­þving­unum vest­rænna ríkja gegn Rússum. Reyndar virt­ist rík­is­stjórnin ekki sam­stíga í mál­inu en þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra fylgdi því fast eftir og hafði almenn­ings­á­litið með sér.

Ólafur Ragnar Grímsson full­yrti fyrir for­seta­kosn­ing­arnar árið 2012 að mik­il­vægt væri að sam­hljómur væri milli for­seta og rík­is­stjórnar þegar kæmi að utan­rík­is­málum. Utan­rík­is­stefna Íslands hefur tekið mið af veru okkar í NATO og sam­starfi á vett­vangi Norð­ur­landa en Ólafur hefur þvert á yfir­lýs­ingu sína haft sig tals­vert í frammi. Hefur hann talað fyrir auknum sam­skiptum við Rússa og Kínverja, m.a. í kjöl­far efna­hags­hruns­ins þar sem honum þóttu banda­menn Íslands hafa brugð­ist og ráð­legt væri að leita víðar með slík tengsl.

Eðlilegt er að spurn­ingar vakni um það hvort for­seti Íslands eigi að vera í fram­lín­unni þegar stefnan er mörkuð í utan­rík­is­málum. Er það í starfs­lýs­ing­unni eða ein­fald­lega háð áhuga þess sem gegnir emb­ætt­inu hverju sinni? Má nefna í því sam­hengi fyr­ir­spurn sem emb­ætt­is­menn á vegum ESB sendu Íslenskum stjórn­völdum eftir þing­setn­ing­ar­ræðu for­set­ans árið 2013, hvar hann tjáði sig um Evr­ópu­sam­bandsum­sókn­ina, þar sem farið var fram á stað­fest­ingu á því hver færi með utan­rík­is­mál Íslands.

Hegðun ríkja

En hvers vegna er svo mik­il­vægt að tala einni röddu þegar utan­rík­is­mál eru ann­ars vegar? Til að átta sig betur á því þarf að skilja eðli ríkja­sam­skipta. Þar eru ýmsar mis­mun­andi kenn­ingar uppi en í grund­vall­ar­at­riðum má skipta þeim í tvennt. Annars vegar að ríki heims­ins séu í stöðugri sam­keppni til að tryggja til­veru sína og öryggi, ýmist með víg­bún­aði eða myndun ein­hvers konar banda­laga. Samkvæmt þeim kenn­ingum er eins gróði ann­ars tap. Hins vegar eru kenn­ingar um að ríkin sjái hag sínum best borgið með sam­vinnu, alþjóð­legum sátt­málum, samn­ingum og stofn­unum, þar sem allir hagn­ist á end­anum á sam­starf­inu – að vel­ferð hvers og eins sé á end­anum allra hagur.

Seinna sjón­ar­miðið hefur verið að ná tals­verðum und­ir­tökum í ríkja­sam­skiptum með sífellt umfangs­meiri alþjóða­sam­vinnu, samn­ingum og sátt­málum. En þrátt fyrir aukin við­skipta- og menn­ing­ar­tengsl, þar sem gildi og venjur sam­fé­laga flæða á milli heims­hluta, hnatt­væð­ingu sem minnkar heim­inn og brýtur niður múra, ríkir enn sam­keppni. Þrátt fyrir að hnökra­laus alþjóða­við­skipti séu orðin land­her­kænsku og heims­yf­ir­ráðum yfir­sterk­ari, þá er það svo að þegar á reynir eru ríki í raun and­stæð­ingar og gjarnan í sam­keppni um að tryggja til­veru sína.

Þar má meðal ann­ars beita ein­faldri leikja­fræði til að segja fyrir um hegðun og gjörðir and­stæð­ing­anna og um leið gefa sér eina grund­vall­ar­for­sendu: að það mun seint verða hægt að treysta á að önnur ríki komi til hjálpar á ögur­stundu nema það henti hags­munum við­kom­andi. Það segir sig eig­in­lega sjálft þegar að er gáð, eins og t.d. nýleg og yfir­stand­andi mak­ríl­deila Íslend­inga sannar. Þar liggur ljóst fyrir að ef t.d. norsk stjórn­völd þurfa að velja á milli hags­muna hinnar meintu vina­þjóðar og Íslend­inga þá ganga hags­munir Noregs fyrir.

Samvinna og trúverðugleiki

Stundum er vísað til þess að Ísland, vegna smæðar sinnar, eigi enga mögu­leika í valda­tafli hinna stærri og öfl­ugri ríkja heims­ins. Einhvers staðar segir þó að ekk­ert ríki í heim­inum sé nógu stórt og öfl­ugt til að geta leikið ein­leik á for­sendum valds því á end­anum þurfi alltaf að taka til­lit til ann­arra ríkja, ýmist vegna almenns þrýst­ings eða beinna hags­muna eins og við­skipta­tengsla. Smáríki eru vissu­lega veik á svell­inu en alþjóða­lög og sátt­málar eru and­svarið við yfir­gangi í krafti valds. Þeirra eina raun­hæfa vörn er því að alþjóða­lög séu virt.

Ísland er einmitt gott dæmi um smá­ríki sem er mjög háð því að slíkt kerfi haldi og að ekki sé grafið undan trausti og trú­verð­ug­leika með unda­brögðum og valda­brölti. Þess vegna er mik­il­vægt fyrir Ísland að koma fram með mót­aða trú­verð­uga utan­rík­is­stefnu sem byggir á grund­vall­ar­at­riðum en ekki hent­ug­leika hverju sinni, að talað sé einum rómi út á við þegar utan­rík­is­mál eru ann­ars vegar. Allt annað rýrir trú­verð­ug­leika smá­rík­is­ins og vegur þar með að öryggi þess.

Hver ákveður utanríkisstefnuna?

Það er fátt í Stjórn­ar­skránni sem til­greinir nákvæm­lega hver það er sem fer með utan­rík­is­mál Íslands en þar er ein­ungis ein grein sem til­tekur afmark­aðan þátt utan­rík­is­mála. Líta verður til þess að þegar Íslend­ingar fengu stjórn­ar­skrána var danska kóngnum í raun skipt út fyrir for­seta­emb­ættið. Sú stjórn­ar­skrá mið­að­ist við stjórn­skip­un­ina frá því á 19. öld, að Danir og þar með kóng­ur­inn færu með utan­rík­is­mál Íslend­inga.

Í reynd eru það fram­kvæmda­valdið/rík­is­stjórnin, en einnig Alþingi í vax­andi mæli, sem ber ábyrgð á fram­kvæmd utan­rík­is­mála. Íslensk stjórn­sýslu­hefð og sú stað­reynd að rík­is­stjórn Íslands er ekki fjöl­skipað stjórn­vald hefur hins vegar gert það að verkum að sitj­andi utan­rík­is­ráð­herra á hverjum tíma hefur gríð­ar­legt vald yfir mótun, mörkun og fram­kvæmd utan­rík­is­stefn­unnar. Nú síð­ast mátti ber­lega sjá það hvað varðar afstöðu og þátt­töku Íslands í við­skipta­hindr­unum gagn­vart Rúss­landi. Ramminn er engu að síður óskýr og því má segja að sitj­andi for­seti hafi ákveðna mögu­leika á að víkka út hlut­verk eða vald­svið sitt, þar með talið á sviði utan­rík­is­mála.

Tvívirk utanríkisstefna

Í þessu leyn­ast þó mögu­leikar sem halda þarf til haga. Eins og Ólafur Ragnar benti rétti­lega á þegar hann gagn­rýndi norskan ráð­herra fyrir að draga Úkra­ínu­deil­una inn á sam­ráðs­vett­vang Norð­ur­skauts­ráðs­ins, þá hefur sam­starf við Rússa um norð­ur­slóða­mál verið árang­urs­ríkt þótt nún­ingur sé á öðrum víg­stöðvum. Hafa Banda­rísk og rúss­nesk stjórn­völd ætíð haft mjög náið sam­starf um vís­inda­rann­sóknir og örygg­is­mál á norð­ur­slóðum, jafn­vel á meðan kalda stríðið stóð sem hæst.

Ríkja­sam­skipti geta vissu­lega verið lag­skipt og þegar syrtir í álinn skiptir miklu máli að halda diplómat­ískum leiðum opnum. Það kann því að vera full­kom­lega eðli­legt að á meðan rík­is­stjórnin tekst harka­lega á við stjórn­völd ann­ars ríkis sé for­set­inn virkur í sam­skiptum á diplómat­ískum for­sendum. Þar verður þó að gæta þess að ekki sé grafið undan stefnu rík­is­ins í við­kom­andi máli.

Jafnvel þótt ráð­andi stjórn­völd taki ákvörðun um stuðn­ing við umdeildar hern­að­ar­að­gerðir sem gæti tryggt öryggi lands­ins getur for­set­inn ekki gengið gegn slíkri ákvörðun. Að sama skapi hafi rík­is­stjórn ákveðið að sýna sam­stöðu með banda­mönnum í NATO og á Norð­ur­löndum, sem byggir á ára­tuga sam­starfi, þá gengur ekki að sitj­andi for­seti spili ein­leik gegn þeirri stefnu.

Jafn­framt þarf for­set­inn að huga að því að ein­leikur á hinu utan­rík­is­póli­tíska sviði felur í sér ákveðna áhættu þótt þess séu dæmi að hann hafi borið ávöxt. Til að mynda hefur ekki verið aug­ljóst utan frá að leiðir for­seta og fram­kvæmda­valds í norð­ur­slóða­málum hafi legið saman í kjöl­far mark­vissrar sam­vinnu og stefnu­mót­unnar, en þó má færa rök fyrir því að ötult starf núver­andi for­seta hvað varðar norð­ur­slóða­mál í kjöl­far hruns­ins hafi á end­anum haft hvetj­andi áhrif á fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Össur Skarp­héð­ins­son, til að fylgja því máli eftir og styðja. Ný rík­is­stjórn og nýr utan­rík­is­ráð­herra hafa svo tekið við því kefli.

Hins vegar er ekki að sjá að annað utan­rík­is­póli­tískt áhuga­mál for­set­ans hafi fengið sam­bæri­legan stuðn­ing frá utan­rík­is­ráð­herrum und­an­far­inna ára, en það er reglu­leg kynn­ing og fram­setn­ing hans á þurrkun mat­væla sem meiri­háttar fram­lagi til þró­un­ar­mála. For­set­inn hefur rætt þetta mál við fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, for­seta Alþjóða­bank­ans og aðra yfir­menn helstu alþjóða­stofn­anna sem láta sig þró­un­ar­mál varða, auk þess að tala fyrir þess­ari hug­mynd á ráð­stefnum erlendis. Það hlýtur að rýra trú­verð­ug­leika Íslands á alþjóða­vett­vangi að for­set­inn fái engan hljóm­grunn fyrir þennan mál­flutn­ing hjá íslenskum stjórn­völdum og tali í raun út í tómið.

Nið­ur­staðan er því sú að hvort sem utan­rík­is­stefnan byggir á úthugs­uðum valdapóli­tískum áætl­unum, því að fylgja grund­vall­ar­við­miðum og reglum alþjóða­sam­þykkta í hví­vetna eða rætt sé skipu­lag á fram­lagi Íslands til þró­un­ar­mála, verður að tala einum rómi. Þegar afger­andi brestur verður milli afstöðu rík­is­stjórnar og for­seta í mik­il­vægum póli­tískum málum er veru­leg hætta á stjórnar- og stjórn­sýslu­kreppu. Það getur valdið tog­streitu í sam­skiptum Íslands við umheim­inn og veikt stöðu þess um leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár