Sigmundur Davíð: Ætlum að „leysa úr stórum úrlausnsarefnum“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var gestur Kast­ljóss­ins í kvöld.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og nú stofn­andi nýs stjórn­mála­afls, Mið­flokks­ins, sagði í við­tali við Kastljós RÚV í kvöld, að hann ætl­aði sér fyrst og fremst að ein­blína á lausnir á stórum úrslausn­ar­efnum sem Ísland stæði frammi fyrir. „Að sjálf­sögðu viljum við kom­ast í rík­is­stjórn, en það verður aðeins gert á grund­velli mál­efn­anna,“ sagði Sig­mundur Davíð. Hann sagð­ist til­bú­inn að fylgja málum eftir í stjórn­ar­and­stöðu líka, það yrði ekk­ert vanda­mál.

Í upp­hafi þáttar ræddu Einar Þor­steins­son, frétta­maður, og Sig­mundur Davíð um Wintris-málið svo­nefnda, og úrsögn Sig­mundar Davíðs úr Fram­sókn­ar­flokknum. Sagðist Sig­mundur Davíð meðal ann­ars vilja leið­rétta inn­gang­inn í við­tal­inu, og sagð­ist vera búinn að svara því sem að honum og konu hans snéri. Meðal ann­ars sagð­ist hann aldrei hafa átt eignir á aflandseyjum, og að kröfur sem lýst hafa verið í búið hafi verið hefð­bundnar kröfur þeirra sem lýstu kröfum vegna inn­lána fyrir hrunið. „Ekki eftir eftir hrunið, eins og hjá vog­un­ar­sjóð­unum,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Hann rök­ræddi síðan við Einar um til­efni þess að hann kom í þátt­inn, þar sem gefið hefði verið í skyn þegar talað hefði verið við hann, að hann ætti að koma í sjón­varpið til að ræða nýtt fram­boð hans og fram­tíð­ar­sýn­ina. „Þetta er þá vænt­an­lega það sem það kall­ast hjá Rík­is­út­varp­inu, að vera „sjanghæ-aður“ í við­tal,“ sagði Sig­mundur Davíð.

[adspot]

Í þætt­inum var ekki fjallað um hvaða mál það væru sér­stak­lega, sem fram­boð Sig­mundar Davíðs ætl­aði sér að leggja mesta áherslu á, en hann lagði áherslu á að landið stæði frammi fyrir „miklum tæki­færum“ og hann myndi beita sér fyrir því að koma fram með lausnir og fylgja þeim eftir af festu. Hann sagð­ist ætla að nýta tím­ann fram að kosn­ingum í að koma fram með fram­tíð­ar­sýn­ina og leggja hana í dóm kjós­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár