Karolina Fund: Breiðdalsbiti – Matvælaþróun úr afurðum svæðisins

Guðný Harð­ar­dóttir er sauð­fjár­bóndi í húð og hár sem vill koma afurðum sínum og öðrum afurðum úr Breið­dalnum á þann stall sem þær eiga heima á.

Guðný Harð­ar­dóttir er sauð­fjár­bóndi í húð og hár sem vill koma afurðum sínum og öðrum afurðum úr Breið­dalnum á þann stall sem þær eiga heima á. Land­bún­aður er stór atvinnu­grein í Breið­dalnum og hefur nýliðun þar orðið nokkur, þrátt fyrir slæma rekstr­ar­stöðu í sauð­fjár­rækt. Því var Breið­dals­biti stofn­aður til að fram­leiða, mark­aðs­setja og þróa vörur úr kinda­kjöti og öðrum afurðum úr Breið­dalnum fagra. Ásamt því að auka arð­semi af land­bún­aði á svæð­inu og styrkja þannig stoðir sam­fé­lags­ins.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Hug­myndin hefur alltaf kúrt í huga mér, sam­hliða því að vilja að vera sauð­fjár­bóndi og geta fram­fleytt fjöl­skyldu með því. Vöru­þróun og mark­aðs­setn­ing vara úr kinda­kjöti hefur ekki verið mikil und­an­farin ár og má því segja að hvat­inn til að fram­leiða okkar eigin vörur hafi loks­ins komið, s.s. með lægra afurða­verði.

Þema okkar er ástríða og umhyggja fyrir hrá­efn­inu. Að vinna stað­bundin mat­væli og vera sem vist­væn­ust í fram­leiðslu okkar með nátt­úr­una í for­grunni.

Á Karolina Fund síðu Breið­dals­bita kemur fram að mark­aðs­setn­ing fyr­ir­tækja úti á landi er dýr­ari en þeirra sem eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hvað er átt við með því?

Mark­aðs­setn­ing og fram­leiðsla á lands­byggð­inni er erf­ið­ari og dýr­ari en þeirra fyr­ir­tækja sem eru á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Flutn­ingar eru dýrir bæði á full­búnum vörum og aðföngum, s.s. pakkn­ingum, öðru hrá­efni o.fl. ásamt þvi að allt tekur lengri tíma að ber­ast til okkar. Mark­aðs­setn­ingin felur einnig í sér fjar­veru að heiman og ferða­kostn­aður því mik­ill vegna þess. Róðurinn er því oft þungur.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Facebook-síðu Breið­dals­bita má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár