Samkeppnishæfni Íslands batnar

Ísland er nú í 24. sæti hvað varðar sam­keppn­is­hæfni af 140 þjóð­ríkjum. Ísland hefur farið upp um fimm sæti á síð­ustu þremur árum og íslenska hag­kerfið er skil­greint sem nýsköp­un­ar­drifið.

Ísland mælist í 24. sæti hvað varðar sam­keppn­is­hæfni af 140 þjóð­ríkjum. Árið 2017 var Ísland í 28. sæti, árið á undan í 27. sæti og árið 2015 sat Ísland í 29. sæti. Ísland hefur því farið upp um fimm sæti á þremur árum. Þetta kemur fram í árlegu skýrslu Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins, The Global Competitiveness Report, sem kom út fyrir stuttu.

Banda­ríkin skipar efsta sætið á list­anum og mælist með 85,6 stig í heild­ar­sam­keppn­is­hæfni af 100 mögu­legum stigum. Næst á eftir kemur Singa­pore og síðan Þýska­land. Ísland er neðst af Norð­ur­landa­þjóð­unum með 75 stig en Svíþjóð situr í 9. sæti, þar á eftir kemur Danmörk í 10. sæti, Finnland í 11. sæti og Noregur í 16. sæti.

Vísitala Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins um sam­keppn­is­hæfni er virtur mæli­kvarði á efna­hags­líf 140 þjóða víða um heim. Vísi­talan er mjög víð­tæk og end­ur­speglar þá þætti sem segja til um fram­leiðni þjóða og vaxt­ar­mögu­leika þeirra til fram­tíðar. Vísi­tal­an bygg­ir á op­in­ber­um upp­lýs­ing­um og könn­un sem gerð er meðal stjórn­enda í at­vinnu­líf­inu. Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er sam­starfs­að­ili Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins á Íslandi og sér um fram­kvæmd könn­un­ar­innar hér á landi.

Fjórða iðnbyltingin

Ráðið hefur tekið upp ný við­mið í umræddri skýrslu fyrir árið 2018 sem taka mið af þeim breyt­ingum sem meðal ann­ars fjórða iðn­bylt­ingin hefur í för með sér, hvað varðar sam­keppn­is­hæfni og þá sér­stak­lega á sviði staf­rænnar þró­unar, en einnig sköpun í sam­fé­lag­inu, frum­kvöðla­menn­ingu og hversu opin og straum­línu­lagað eða virkt sam­fé­lagið er. Í úttekt ráðs­ins er Ísland skil­greint sem nýsköp­un­ar­drifið hag­kerfi og nýtur góðs, eins og endranær, af nokkrum sterkum sam­keppn­is­þáttum eins og stöðu mennt­unar og heil­brigð­is­mála, stöð­ug­leika, aðlög­un­ar­hæfni og sveigj­an­leika vinnu­mark­aðar. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá Nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Stærsti veik­leiki Íslands miðað við flest önnur lönd, er eins og verið hefur, stærð heima­mark­aðar. Ísland er þar í 131. sæti af 140. Samkvæmt Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands er það atriði sem lítið er hægt að gera í nema Ísland taki áskor­un­inni um að hvetja fyr­ir­tæki og frum­kvöðla að taka mið af alþjóða­mörk­uðum í nýsköp­un­ar­verk­efnum.

Áhersla á nýsköpun

Í skýrsl­unni kemur fram að nið­ur­stöð­urnar sem vekja hvað mestar áhyggjur Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins eru hvað ríkin í heild­ina eru ekki nógu sterk þegar kemur að nýsköp­un­ar­getu. En ráðið telur að nýsköpun skipti höf­uð­máli ef ríkin ætla að stand­ast sam­keppni í fram­tíð­inni. Af 140 löndum skora 103 lönd lægra en 50 stig þegar kemur að nýsköp­un­ar­getu. Ísland stendur sig ágæt­lega, situr í 23. sæti og mælist með 66 stig. Samkvæmt skýrsl­unni er helsti veik­leiki Ísland þegar kemur að gæðum rann­sókn­ar­stofn­anna hér á landi en þar eru Íslend­ingar í 78. sæti. Ísland stendur sig hins vegar best allra landa í einu atriði og það er í net­notkun en sam­kvæmt skýrsl­unni nota 98,2 pró­sent af íbúum lands­ins Inter­netið.

[links]Kjarninn hefur áður greint frá því hvernig núver­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur lagt mikla áherslu á nýsköpun það sem af er stjórn­ar­tíð hennar. Mála­flokk­ur­inn „ný­sköpun og rann­sókn­ir“ var ein af sjö meg­in­á­herslum stjórn­ar­sátt­mál­a hennar og lofað hefur verið stefnu­breyt­ingum og útgjalda­aukn­ingum í þeim efnum á næstu árum.

Í frum­varpi til fjár­laga næsta árs má finna mark­mið um aukna nýsköpun á fjöl­mörgum svið­um, líkt og í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­mál­um, ferða­þjón­ust­unni og í mál­efnum fatl­aðra. Það má því segja að rík­is­stjórn­inni telji að fjár­fest­ing í rann­sóknum og þróun í þessum geirum geti skilað raun­veru­legum ábata aftur til sam­fé­lags­ins. Verði af áformum um mótun nýrrar nýsköp­un­ar­stefnu þá má vænta þess að sam­keppn­is­hæfni Íslands muni batna enn frekar, sam­kvæmt mæli­kvörðum Alþjóða­efn­hags­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár