Fjárfestir ríkið nógu mikið í nýsköpun?

Nýsköpun er vin­sælt hug­tak meðal stjórn­mála­manna, en opin­ber fram­lög í þann mála­flokk hafa breyst mikið á und­an­förnum árum. Hvert er hlut­verk rík­is­ins í fjár­fest­ingu í nýsköpun og hvernig mun rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sinna því?

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Núver­andi rík­is­stjórn er tíð­rætt um nýsköpun. Hún hefur einnig lofað stefnu­breyt­ingu í þeim efnum á næstu árum, þótt stór hluti áfor­manna sé enn bund­inn nokk­urri óvissu. Á Íslandi hafa opin­berir styrkir til nýsköp­unar tekið stórum sveiflum eftir því hvaða rík­is­stjórn er við völd, en á einu ári fóru þeir frá því að vera þeir hæstu á Norð­ur­löndum niður í þá lægstu. Hver yrði ávinn­ingur Íslend­inga á að styðja enn frekar við nýsköpun og hvers eðlis ætti sá stuðn­ingur að vera?

„Algjört lykilatriði“

„Fyrir mér er algjört lyk­il­at­riði að íslenskt sam­fé­lag fari að byggja upp og styðja betur við nýsköp­unar- og rann­sóknaum­hverfi,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í stefnu­ræðu sinni á Alþingi fyrr í mán­uð­inum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar minn­ast á nýsköpun, en mbl.is greindi frá að orðið sjálft komi fram 18 sinnum í stjórn­ar­sátt­mála hennar, auk þess sem mála­flokk­ur­inn „nýsköpun og rann­sóknir“ var ein af sjö meg­in­á­herslum sátt­mál­ans.

Samkvæmt nýút­gefnu fjár­laga­frum­varpi er vinna að mótun nýsköp­un­ar­stefnu þegar hafin, en búist er við að henni ljúki á næsta ári. Einnig er þar að finna ýmsar aðrar til­lögur sem sam­rým­ast yfir­lýstri stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í þessum mála­flokki, til að mynda er miðað að afnámi þaks á end­ur­greiðslum rann­sóknar-og þró­un­ar­kostn­aðar og hugs­an­legum greiðslum úr svoköll­uðum Þjóð­ar­sjóði.

[links]Kjarninn fjall­aði í gær um umrætt þak á end­ur­greiðslum rann­sóknar-og þró­un­ar­kostn­aðar, sem stendur nú í 300 til 450 millj­ónum króna á ári. Því má búast við aukn­ingu slíkra end­ur­greiðslna á næstu árum, en þær juk­ust um tæp níu pró­sent í fyrra.

Hins vegar ríkir enn mikil óvissa um hversu mikil útgjalda­aukn­ingin verði í raun og veru í nýsköpun hjá rík­is­stjórn­inni. Til að mynda eru hug­myndir um svo­kall­aðan Þjóð­ar­sjóð á byrj­un­ar­stigi auk þess sem engar upp­hæðir hafa verið nefndar um hversu stór hluti hans færi í mála­flokk­inn. Einnig er fyr­ir­huguð útgjalda­aukn­ing fyrir næsta ár nær óbreytt ef tekið er til­lit til hag­vaxtar, en búist er við að þau standi í stað í tæpu hálfu pró­senti af lands­fram­leiðslu.

Sveiflukenndar áherslur

Ef litið er á fram­lög rík­is­ins til nýsköp­unar sem hlut­fall af opin­berum útgjöldum sést ber­sýni­lega hvernig stuðn­ing­ur­inn hefur sveifl­ast eftir mis­mun­andi áherslum síð­ustu rík­is­stjórna. Styrkirnir hafa því verið sveiflu­kennd­ari en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum, þar sem þeir hald­ast stöðugir milli rík­is­stjórna og taka ekki skjótum breyt­ingum milli ára.

Eins og sjá má á mynd hér að ofan jók rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur stuðn­ing við nýsköpun veru­lega á tíma­bil­inu 2009-2013, en árið 2013 var stuðn­ing­ur­inn hlut­falls­lega mestur í allri Evrópu. Við­snún­ingur varð hins vegar í þeim mála­flokki hjá rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en á árunum 2014-2016 helm­ing­uð­ust fram­lögin og urðu mun lægri en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Styrkirnir hækk­uðu svo í fjár­lögum rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar og enn meira í nýju frum­varpi rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Með hækkun síð­ustu ára hefur hlut­fallið nálg­ast með­al­tal hinna Norð­ur­land­anna en er þó mun minna en á tíma­bil­inu 2009-2013.

Jákvæð ytri áhrif

En til hvers ætti ríkið yfir höfuð að fjár­festa beint í nýsköpun? Er frum­kvöðla­háttur ekki bund­inn við frjálsan markað og virkt sam­keppn­isum­hverfi sem ein­göngu þyrfti að stuðla að með almennum skatta­lækk­unum og ein­fald­ara reglu­verki?

Flest iðn­ríki virð­ast sam­mála um að svo sé ekki, en þau fjár­festa öll með ein­hverjum hætti í rann­sóknir og þróun með skatt­pen­ingum sínum. Meg­in­á­stæða þess er sú að slík fjár­fest­ing er gjarnan of áhættu­söm fyrir ein­stak­lings­fjár­festa, þrátt fyrir að geta skapað mikil verð­mæti fyrir sam­fé­lagið í heild sinni. Með öðrum orðum ber nýsköp­unin með sér svokölluð jákvæð ytri áhrif og er því talin þurfa beina styrki frá hinu opin­bera. [adspot]

iPhone í boði ríkisins

Fræði­menn hafa einnig mælt með því að hið opin­bera hlúi ekki ekki aðeins að nýsköpun til að leið­rétta mark­aðs­brest og minnka áhættu, heldur ætti það líka að taka virkan þátt í stórum fjár­fest­ing­ar­verk­efnum. Fremstur þeirra er hag­fræð­ing­ur­inn Mariana Mazzucato, en hún gerir fjár­fest­ingu rík­is­ins í nýsköpun að umfjöll­un­ar­efni í bók sinni The Entreprene­urial State.

Samkvæmt Mazzucato hafa mestu tækni­fram­farir nútím­ans orðið til vegna beinnar fjár­mögn­unar hins opin­bera og oft verið hluti af stórum rík­is­verk­efnum, líkt og geim­áætlun Banda­ríkj­anna. Í mynd­skeiði hér að neðan gerir hún grein fyrir því hvernig stærsti hluti tækn­innar sem liggur að baki snjall­símum hafi verið afsprengi ýmissa opin­berra stofn­anna í Banda­ríkj­unum og Evrópu.

Mynd­skeið frá hag­fræð­ingnum Mariana Mazzucato þar sem hún útskýrir upp­runa tækn­innar á bak við iPhone-snjall­sím­ann.

Mazzucato bætir við að fingraför hins opin­bera á nýsköpun og tækni­þróun í Banda­ríkj­unum megi finna á öllum stigum hennar. Þar gildir einu hvort um sé að ræða grunn­rann­sóknir, sér­hæfðar rann­sóknir eða beinar fjár­fest­ingar í fyr­ir­tækjum sem sjá sjálf um ýmsa þró­un­ar­vinnu, líkt og Tesla, opin­berir styrkir geri nýsköp­un­inni kleift að dafna í jafn­miklum mæli og raun ber vitni.

Í frum­varpi til fjár­laga næsta árs má finna mark­mið um aukna nýsköpun á fjöl­mörgum sviðum, líkt og í sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­málum, ferða­þjón­ust­unni og í mál­efnum fatl­aðra. Rík­is­stjórn­inni virð­ist ljóst að fjár­fest­ing í rann­sóknum og þróun í þessum geirum geti skilað raun­verum­legum ábata aftur til sam­fé­lags­ins. Verði af metn­að­ar­fullum áformum um mótun nýrrar nýsköp­un­ar­stefnu og virkri þátt­töku rík­is­ins í öllum stigum þró­un­ar­vinnu má vænta þess að Ísland verði aftur í far­ar­broddi Norð­ur­landa í mála­flokknum á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagfræði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár