2,8 milljarðar króna í afslátt vegna rannsókna og þróunar

Rík­is­sjóður end­ur­greiddi fyr­ir­tækjum sem stunda rann­sóknir og þróun hátt í þrjá millj­arða króna í ár. Afslátt­ur­inn er ann­ars vegar í formi skulda­jöfn­unar á móti tekju­skatti og hins vegar í formi beinna end­ur­greiðslna. Til stendur að auka þær enn frekar.

Heild­ar­af­sláttur vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar var sam­tals um 2,75 millj­arðar króna í fyrra, sem er 8,9 pró­sent meira en hann nam árið 2016. Afslátt­ur­inn virkar þannig að hann gengur upp í álagðan tekju­skatt ef fyr­ir­tækið sem á rétt á honum er rekið í hagn­aði og greiðir slíkar. Alls jókst skulda­jöfnun á móti tekju­skatti úr 417 millj­ónum króna í 625 millj­ónir króna, eða um 50 pró­sent. Þorri afslátt­ar­ins er þó enn í formi beinnar end­ur­greiðslu. Rúmlega 2,1 millj­arður króna fór til fyr­ir­tækja sem þáðu slíka vegna rann­sókna og þró­unar, 17 millj­ónum króna meira en fóru í slíkar beinar end­ur­greiðslur vegna árs­ins 2016. Þetta kemur fram í tölum um álagn­ingu opin­berra gjalda á lög­að­ila vegna rekstr­ar­árs­ins 2017 sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið birti í gær.

End­ur­greiðsl­urnar hafa vaxið mikið á und­an­förnum árum. Milli áranna 2016 og 2017 juk­ust þær til að mynda um 800 millj­ónir króna. Ástæðan fyrir þeirri miklu aukn­ingu var sú að hámarks­upp­hæð sem nýta mátti í rann­sóknir og þróun og draga má frá skatti var hækkuð úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna með laga­breyt­ingu sem sam­þykkt var í byrjun júní 2016. Ef um er að ræða sam­starfs­verk­efni eða sem útheimta aðkeypta rann­sóknar- eða þró­un­ar­vinnu hækkar hámarkið í 450 millj­ónir króna. End­ur­greiðslan getur þó að hámarki numið 20 pró­sent af sam­þykktum kostn­aði.

Ríkisstjórnin vill afnema þakið

End­ur­greiðsla á rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aði er ætlað að efla nýsköpun í land­inu. Samkvæmt lögum er ein­göngu heim­ilt að telja fram beinan kostnað við verk­efni og ann­arra aðfanga sem notuð hafa verið við vinnslu þess þegar sótt er um end­ur­greiðslu. Með öðrum orðum þá verða fyr­ir­tæki að aðskilja allan annan rekstur sinn frá því verk­efni sem um ræðir þegar lagðar eru fram kostn­að­ar­tölur við vinnslu þess.

Til þess að fá end­ur­greiðslu á kostn­aði vegna rann­sóknar og þró­un­ar­verk­efna þarf að gera sér­stak­lega grein fyrir verk­efn­inu í raf­rænni skrán­ingu umsóknar á heima­síðu Rannís. Með þarf að fylgja stutt við­skipta­á­ætlun og ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða þá þarf sam­starfs­samn­ingur líka að ber­ast til Rannís. Þá á að fylgja með lýs­ing á verk­efn­inu ásamt verk- og kostn­að­ar­á­ætlun.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur lagt mikla áherslu á nýsköpun og rann­sóknir. Mála­flokk­ur­inn er sér­stak­lega til­greindur í stjórn­ar­sátt­mála hennar sem ein af meg­in­á­herslum hennar og orðið nýsköpun kemur fyrir 18 sinnum í honum. Þá er kveðið á um að rík­is­stjórnin ætli, til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni lands­ins, að end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðslum. Það þak er nú, líkt og áður sagði, 300 til 450 millj­ónir króna á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár