Framsókn tapar mestu milli mánaða og fylgistap ríkisstjórnarflokkanna eykst

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað næstum níu pró­sentu­stigum af fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Á sama tíma hafa þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar bætt sam­an­lagt við sig 10,5 pró­sentu­stigum.

Vinsældir Framsóknarflokksins dala milli mánaða.
Vin­sældir Fram­sókn­ar­flokks­ins dala milli mán­aða. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 15,4 pró­sent fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup og hefur ekki mælst með svo lítið fylgi í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan fyrir kosn­ing­arnar í fyrra­haust. Flokk­ur­inn tapar 2,1 pró­sentu­stigi milli mán­aða, meira en nokkur annar, og er sem stendur 1,9 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar einnig lít­il­lega milli mán­aða og mælist með 22,1 pró­sent fylgi. Það er 2,3 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Minnsti stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, hress­ast aðeins milli mán­aða og mæl­ast með 8,6 pró­sent stuðn­ing. Flokk­ur­inn mæld­ist með 7,2 pró­sent í júní sem var lægsta fylgi sem hann hafði nokkru sinni mælst með í könnun Gallup. Vinstri græn eru enn tölu­vert frá kjör­fylgi, sem var 12,6 pró­sent. Enginn flokkur á þingi hefur tapað jafn miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

[adspot]Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er því 46,1 pró­sent, en þeir hafa allir tapað fylgi á fyrstu mán­uðum kjör­tíma­bils­ins. Þeir fengu sam­tals 54,3 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber í fyrra.

RÚV greindi frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar fyrr í kvöld.

Þrír stærstu andstöðuflokkarnir bætt við sig fylgi

Þrír flokkar á þingi hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Píratar tapa aðeins milli mán­aða en mæl­ast samt með 15 pró­sent fylgi, sem er 6,4 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ingum.

Sam­fylk­ingin stendur í stað frá því í júní með 13,7 pró­sent fylgi, eða 3,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra­haust. Viðreisn bætir vel við sig milli mán­aða og nýtur nú stuðn­ings 8,6 pró­sent kjós­enda, sem er 0,3 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi.

Sam­an­lagt mælist fylgi þess­ara þriggja flokka 37,3 pró­sent, eða 10,5 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu síð­ast þegar var kosið. Í ljósi þess að fylg­is­aukn­ing Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar er meiri en fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna, sem er 8,2 pró­sent, er ljóst að þeir hafa sótt fylgi til ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka að auki.

Sósíalistar stærri en Miðflokkur

Flokkur fólks­ins mælist nú með 6,6 pró­sent fylgi, sem er svipað og fyrir mán­uði en tölu­vert undir þeim 8,8 pró­sentu­stigum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi það sem af er kjör­tíma­bili og það varð engin breyt­ing þar á í síð­asta mán­uði. Þá sögð­ust alls 4,4 pró­sent styðja flokk­inn sem er einu pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi.

Sós­í­alista­flokkur Íslands bauð fram til þings í fyrsta sinn haustið 2021, en náði ekki inn. Hann fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Fram að júlí­mán­uði hafði flokk­ur­inn ein­ungis einu sinni mælst með meira en fimm pró­sent fylgi en hann bætir ágæt­lega við sig nú og er með 5,3 pró­sent.

Rétt tæpur helm­ingur aðspurðra, eða 49 pró­sent, sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina. Það er sama hlut­fall og í júní.

Gallup fram­kvæmdi könn­un­ina dag­ana 1. júlí til 1. ágúst. Könnunin var net­könnun og með handa­hófs­kenndu úrtaki úr Við­horfa­hópi Gallup upp á 9.705 manns. Þátt­töku­hlut­fall var 49 pró­sent og vik­mörk á fylgi ein­stakra flokka eru á bil­inu 0,6-1,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár