Hvað gerir forsetinn? - Fundað með leiðtogum

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands hefur kallað leið­toga flokk­anna á sinn fund í dag. Myndun nýrrar rík­is­stjórnar fer svo fram

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, fundar í dag með leið­togum flokk­anna á Alþingi og er fyrsti fund­ur­inn með Bjarna Bene­dikts­syni klukkan 10:00. Á eftir honum hittir Guðni Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna.

Ljóst er að nokkuð flóknar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru nu að fara í gang, þó ómögu­legt sé að segja til um hversu langan tíma þarf til að mynda nýja rík­is­stjórn.

Afar erf­ið­lega gekk að koma saman rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, með Sjálf­stæð­is­flokki, Bjartri fram­tíð og Viðreisn, en hún sprakk innan við ári eftir að hún var mynduð, eins og frægt er orðið.

Hún var mynduð eftir margar til­raunir flokk­anna til að koma saman stjórn og stóð tæpta frá fyrsta degi, með 32 þing­menn á móti 31 þing­manni stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna.

Þessi þrír flokkar töp­uðu 12 þing­mönnum í kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn; Björt fram­tíð þurrk­að­ist næstum alveg út og tap­aði öllum sínum fjórum þing­mönnum, Viðreisn tap­aði 3 en er ennþá með fjóra, og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði 5 þing­mönnum, og er með 16.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir bættu við sig einum manni og eru nú með 32 þing­menn. Vinstri græn bættu einum við sig og eru nú með 11 í þing­flokki, Fram­sókn­ar­flokkur hélt sínum átta þing­mönnum, Sam­fylk­ingin bætti við sig fjórum mönnum en Píratar töp­uðu fjórum og eru með 6 þing­menn nú.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins eru svo með ell­efu þing­menn, Mið­flokkur 7 og Flokkur fólks­ins 4.

Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafa báðir talað fyrir því að vilja fá umboðið til þess að mynda stjórn, og það sama hefur Katrín Jak­obs­dóttir gert. „Traust rík­is­stjórnar er ekki mælt í fjölda flokka eða í þing­styrk,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir, spurð hvort hún treysti sér til að leiða rík­is­stjórn núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka, í Morg­un­blað­inu í dag. „Mér finnst það skyn­sam­legt að við förum yfir það í okkar her­búðum hvort við metum það sem væn­legan kost,“ segir Katrín í við­tali við Morg­un­blaðið.

Fundir Guðna eru í þess­ari röð:

Fundur for­seta og Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður klukkan 10.

Fundur for­seta og Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs, verður klukkan 11.

Fundur for­seta og Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, verður klukkan 12.

Fundur for­seta og Loga Más Ein­ars­son­ar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, verður klukkan 13.

Fundur for­seta og Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­manns Mið­flokks­ins, verður klukkan 14.

Fundur for­seta og Þór­hildar Sunnu Ævars­dótt­ur, full­trúa Pírata, verð­ur klukkan 15.

Fundur for­seta og Ingu Sæland, for­manns Flokks fólks­ins, verður klukkan 16.

Fundur for­seta og Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dótt­ur, for­manns Við­reisn­ar, verður klukkan 17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár