Manafort fer í fangelsi

Fyrrum kosn­inga­stjóri Donald Trump hefur verið settur í varð­hald fram að rétt­ar­höldum.

Paul Manafort
Paul Manafort Mynd: EPA

Paul Manafort, fyrrum kosn­inga­stjóri for­seta­fram­boðs Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, hefur verið settur í varð­hald fram að rétt­ar­höldum. Þetta kemur fram á vef New York Times.

Samkvæmt frétt Times ákvað alrík­is­dóm­ari að skipa Manafort í varð­hald í kjöl­far ásak­ana frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara í Banda­ríkj­unum, Robert Mueller. Lög­fræð­ingar á vegum Mueller héldu því fram að Manafort hafi reynt að hafa áhrif á fram­gang máls síns með því að hafa sam­band tvö vitni, en málið snýr að hugs­an­legum lög­brotum kosn­inga­fram­boðs­ins.

Sam­skipti Manafort við vitni máls­ins sneru að sam­bandi hans við Viktor F. Yanukovych, sem Manafort reyndi að koma á fram­færi sem traust­verðum stjórn­mála­manni gagn­vart Vest­ur­löndum árið 2014. Manafort á að hafa reynt að hylma yfir þátt­töku sinni í mál­inu fyrr á þessu ári, en rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna við­ur­kennir nú að aðgerð­irnar hafi átt sér stað með honum í far­ar­broddi.

Manafort er ákærður fyrir að greina ekki rétt frá aðgerðum sínum við Yanukovych til dóms­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna, auk þess að hafa logið að starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins sem yfir­heyrðu hann. Hann er líka sak­aður um pen­inga­þvætti á þeim 30 millj­ónum Banda­ríkja­dala sem hann fékk fyrir umræddar aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár