56 prósent pólskra innflytjenda hafa upplifað hatursorðræðu

Meiri­hluti pól­skra inn­flytj­enda á Íslandi hefur upp­lifað hat­urs­orð­ræðu hér á landi og stór hluti þess hóps ítrekað. Lektor í lög­reglu­fræðum segir mál­frelsi oft notað sem rétt­læt­ingu fyrir hat­urs­orð­ræðu.

Pólverjar eru lang fjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi eða um 36 prósent allra innflytjenda. Meira en helmingur þeirra hefur orðið fyrir hatursorðræðu.
Pól­verjar eru lang fjöl­menn­asti hópur inn­flytj­enda hér á landi eða um 36 pró­sent allra inn­flytj­enda. Meira en helm­ingur þeirra hefur orðið fyrir hat­urs­orð­ræðu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Jafnvel þótt hat­urs­glæpir, hat­urs­orð­ræða eða hat­urs­full fram­koma af öðru tagi sé skil­greind sem lítt alvar­leg sam­kvæmt lögum, getur fram­koman eða ofbeldið haft gríð­ar­leg áhrif og alvar­legar afleið­ingar fyrir þolendur.“

Þetta er meðal þess sem segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg um það sem fram kom á ráð­stefnu mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu Reykja­víkur í Veröld – húsi Vigdísar í gær, þar sem fjallað var um hatur og félags­lega inn­gild­ingu.

Meðal spurn­inga sem leitað var svara við á ráð­stefn­unni voru hvernig tækla mætti hat­urs­orð­ræðu, hvernig tryggja mætti inn­gild­ingu inn­flytj­enda og hvernig styðja mætti við fjöl­menn­ingu. Eyrún Eyþórs­dóttir, lektor í lög­reglu­fræðum, var meðal fram­sögu­manna og fjall­aði hún um hat­urs­glæpi á Íslandi. Fram kom í máli hennar að lítið sé vitað um þessa glæpi hér á landi en hún hefur rann­sakað þá, meðal ann­ars með við­tölum við þolendur og með net­könnun sem lögð var fyrir pólska inn­flytj­endur hér á landi í fyrra.

Stór hluti Pólverja hér á landi ítrekað upplifað hatursorðræðu

Tæplega þús­und pólskir inn­flytj­endur svör­uðu net­könnun Eyrúnar. Um tvö pró­sent þeirra höfðu upp­lifað lík­am­legt ofbeldi á Íslandi vegna upp­runa síns, en 56 pró­sent höfðu upp­lifað hat­urs­orð­ræðu og stór hluti þess hóps ítrekað. Pól­verjar eru lang fjöl­menn­asti hópur inn­flytj­enda hér á landi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni voru 20.520 Pól­verjar búsettir hér á landi í upp­hafi síð­asta árs eða 35,9 pró­sent allra inn­flytj­enda.

Eyrún sagði mál­frelsi oft notað sem rétt­læt­ingu fyrir hat­urs­orð­ræðu og sagði frá dæmum af hat­urs­fullum ummælum og annarri slíkri hegðun. Þá sagði hún eyði­legg­ingu á munum algenga og að oft hefðu ger­endur tengsl við þolendur sína; til dæmis nágranna­tengsl og tengsl í gegnum vinnu­stað.

Ísland eftirbátur nágrannaþjóðanna

María Rún Bjarna­dóttir, verk­efn­is­stjóri gegn staf­rænu ofbeldi hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, var einnig með erindi á ráð­stefn­unni. María sýndi gögn sem sýna vel hve Ísland er eftir á sam­an­borið við hin Norð­ur­löndin.

Þannig hefur fólk mun frekar tekið eftir eða upp­lifað hat­urs­full ummæli, ein­elti, áreiti eða hót­anir síð­ustu tólf mán­uði á Íslandi en í Noregi. Þá taldi fólk á Íslandi sig mun frekar í erf­ið­leikum með við­brögð við hat­urs­orð­ræðu og reynd­ist fólk hér á landi mun síður hafa gert eitt­hvað til að bregð­ast við hat­urs­fullum ummælum eða áreiti á net­inu.

Fyrsta skrefið að viðurkenna að rasismi er vandamál á Íslandi

Antiras­ist­arnir, fjórar stúlkur á aldr­inum 16 til 19 ára sem halda úti vett­vangi fyrir raddir lit­aðra ein­stak­linga á Instagram og halda jafn­framt fræðslu­fyr­ir­lestra, voru einnig með erindi á ráð­stefn­unni. Anna Sonde, Kristín Reyn­is­dóttir, Val­gerður Kehinde Reyn­is­dóttir og Johanna Haile standa að baki hópnum og hlutu þær nýverið frum­kvöðla­verð­laun NSC fyrir að fræða fólk um kyn­þátta­for­dóma og mis­munun á Íslandi.

„Kristín tal­aði um hvernig væri fyrir lit­aða ein­stak­linga að alast upp hér á landi og nefndi slá­andi dæmi um fram­komu fólks í hennar garð. Vala beindi orðum sínum sér­stak­lega að mennta­kerf­inu og sagði að ef sam­fé­lagið ætti að vera öruggt þyrfti að byrja í skól­unum. Á allri grunn­skóla­göngu sinni hefði hún aldrei lært um aðra kyn­þætti og fjöl­breyti­leika mann­flór­unnar og kenn­arar hefðu ekki kunnað að bregð­ast við ras­isma. Jóhanna sagði fyrsta skrefið að við­ur­kenna að ras­ismi væri vanda­mál á Íslandi og að áætl­anir mættu ekki bara snú­ast um við­brögð við vanda sem væri til staðar, heldur þyrfti að fyr­ir­byggja vanda­málið. Sögðust þær vilja gera sam­fé­lagið betra og örugg­ara fyrir fram­tíð­ar­kyn­slóðir og koma í veg fyrir að önnur börn þyrftu að upp­lifa það sem þær gengu í gegnum í sinni æsku. Allir þyrftu að líta sér nær,“ segir í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar um erindi Antiras­ist­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár