Stjórnvöld eiga að fjölga konum í lögreglu, Hæstarétti og sendiherrastöðum

Stjórn­völd eiga að grípa taf­ar­laust til aðgerða til að fjölga hratt konum innan lög­regl­unnar, í Hæsta­rétti og í stöðum sendi­herra. Þetta eru til­mæli sem nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um afnám allrar mis­mun­unar gagn­vart konum sendi íslenskum stjórn­völdum í vik­unni, í kjöl­far þess að full­trúar frá vel­ferðar- og utan­rík­is­ráðu­neyt­unum fóru á fund nefnd­ar­innar í Genf í febr­úar og svör­uðu fyrir fram­kvæmd Íslands í jafn­rétt­is­málum.

Því er líka beint til íslenskra stjórn­valda að þau sam­þykki taf­ar­laust aðgerða­á­ætlun gegn kyn­ferð­is­of­beldi og heim­il­is­of­beldi sem taki til­lit til þarfa kvenna með fötlun og kvenna af erlendum upp­runa, og tryggi fjár­magn og mann­afl til að lög­reglu­emb­ætti um allt land geti tekið upp verk­lag lög­regl­unnar í Reykja­vík í ofbeld­is­málum.

Tilmælin frá nefnd­inni fjalla um það sem betur má fara í jafn­rétt­is­málum á Íslandi. Ísland hefur full­gilt samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um afnám allrar mis­mun­unar gagn­vart konum, eða kvenna­sátt­mál­ann. Stjórn­völd eru beðin um að senda nefnd SÞ fram­halds­skýrslu innan tveggja ára um fram­kvæmd þess­ara atriða.

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands skil­uðu inn skugga­skýrslu til nefnd­ar­innar í aðdrag­anda fund­ar­ins með full­trúum ráðu­neyt­anna, þar sem bent var á brotala­mir og hvað betur megi fara til að útrýma mis­munun gagn­vart konum.

Nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna lagði til ýmsar fleiri úrbætur til að tryggja afnám mis­mun­unar, eins og að sam­þykkt verði taf­ar­laust aðgerða­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum, fjár­mögnun Jafn­rétt­is­stofu verði tryggð og hún mögu­lega flutt til Reykja­víkur. Fleiri til­lögur má sjá hér að neðan, en skýrslu nefnd­ar­innar í heild má skoða hér.

  • að breyta/skýra hegn­ing­ar­lög­gjöf­ina og banna staf­rænt ofbeldi og sál­rænt ofbeldi;
  • að tryggja aðgengi allra kvenna að kvenna­at­hvarfi, líka kvenna úti á lands­byggð­inni, kvenna með fötlun og kvenna af erlendum upp­runa;
  • að opna bráða­mót­tökur kyn­ferð­is­of­beldis út um allt land;
  • að fjár­magna aðgerðir gegn man­sali;
  • að rann­saka stöðu kvenna sem starfa á svoköll­uðum „kampa­víns­klúbbum“;
  • að íhuga að gera kven­rétt­indi (kynja­fræði) að skyldu­fagi í grunn­skólum og mennta­skólum;
  • að tryggja að náms­bækur sýni raun­hæfa mynd af stöðu og hlut­verki kvenna í sög­unni;
  • að athuga hvort hægt sé að víkka út lögin um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja svo þau nái til fyr­ir­tækja með færri en 49 starfs­menn,
  • að tryggja að lög­reglu­konur séu ekki áreittar kyn­ferð­is­lega í starfi sínu;
  • að tryggja barna­gæslu milli 9 mán­aða og 2 ára;
  • að tryggja nægi­lega fjár­mögnun til fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs og hækka hámarks­greiðslur úr honum;
  • að mennta heil­brigð­is­starfs­menn sem taka á móti konum sem sækja um fóst­ur­eyð­ingu og tryggja það að mót­tökur þeirra séu ekki til þess fallnar að letja konur til að fara í fóst­ur­eyð­ingu;
  • að athuga reglu­gerðir opin­berra menn­ing­ar­sjóða og leita leiða til að tryggja að opin­berar styrk­veit­ingar til menn­ing­ar­mála skipt­ist jafnt milli kynj­anna;
  • að rann­saka stöðu kvenna af erlendum upp­runa;
  • að tryggja fjár­magn til Fjöl­menn­ing­ar­set­urs og auka aðgengi að þjón­ustu þess.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár