Árni Páll: Íslensk fyrirtæki verða að gera áætlanir vegna Brexit

Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi ráð­herra, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, skrifar ítar­lega í Vís­bend­ingu um Brexit.

Árni Páll Árnason
Árni Páll Árnason Mynd: hordur sveinsson

Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi ráð­herra, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem nú starfar sem ráð­gjafi, segir að íslensk fyr­ir­tæki þurfi að fylgj­ast grannt með álita­málum og hags­munum er varða Brexit og samn­inga­við­ræður Breta við Evr­ópu­sam­bandið.

Ekki sé á vísan að róa um að aðgengi að breskum mörk­uðum muni hald­ast jafn gott og það hefur verið með aðild að EES. Þó vonir standi til þess að svo verði, þá séu margir óvissufletir í samn­inga­við­ræðum Breta og ESB sem varði mikla hags­muni fyrir íslenskt efna­hags­líf.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri grein sem Árni Páll skrifar í Vís­bend­ingu. Hann hóf birt­ingu á greina­flokki um Brexit í síð­ustu viku, og víkur í þess­ari útgáfu að þeim álita­málum sem snerta íslenskt efna­hags­líf beint.

Hann hrósar utan­rík­is­ráð­herra, Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, fyrir að halda hags­munum Íslands á loftið í sam­skiptum við Breta. Þetta skipti miklu máli, og mik­il­vægt sé að halda áfram vel á spil­unum.

„Við þessar aðstæður þurfa íslensk fyr­ir­tæki auð­vitað að hugsa sinn gang og gera við­bragðs­á­ætl­anir. Það er var­huga­vert að halda Brexit hljóti að fara vel og engar for­sendur fyrir slíkri bjart­sýni. Ef allt fer á versta veg í samn­ingum Breta og ESB þurfum við að freista þess að gera sér­staka tví­hliða samn­inga við Breta. En á sama tíma er ekki margt sem íslensk stjórn­völd geta nú gert nema bíða átekta. Sú afstaða sem núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ars­son, hefur markað í þessu efni er skyn­sam­leg. Hann hefur nýtt hvert tæki­færi til að ræða við breska ráða­menn og gætt þess að við gleym­umst í það minnsta ekki og freistað þess að tryggja okkur í það minnsta sömu við­skipta­kjör áfram,“ segir meðal ann­ars í grein Árna Páls.

Gerast má áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár