Pútín er tilbúinn að hitta Trump

Pútín er sagður vera til­bú­inn til að funda með Trump. Und­ir­bún­ingur slíks fundar mun hins vegar taka marga mán­uði, segir tals­maður Kremlar. Pútín hygg­ist eiga sím­tal við Trump á næstu dögum.

Donald Trump og Vladimír Pútín hafa þegar verið prentaðir saman á bolla. Það munu líða margir mánuðir þar til þeir drekka saman úr Reykjavíkurmerktu stellinu í Höfða ef marka má orð talsmans Kremlar.
Donald Trump og Vladimír Pútín hafa þegar verið prent­aðir saman á bolla. Það munu líða margir mán­uðir þar til þeir drekka saman úr Reykja­vík­ur­merktu stell­inu í Höfða ef marka má orð talsm­ans Kremlar. Mynd: EPA

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, er til­bú­inn til þess að funda með Donald Trump sem tók við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna í gær. Þetta hafa fjöl­miðlar eftir Dmitry Peskov, tals­manni Kremlar í Moskvu, í dag og að und­ir­bún­ingur fyrir slíkan muni taka marga mán­uði í und­ir­bún­ingi en ekki vikur.

Fyrir réttri viku síðan birti breska dag­blaðið The Sunday Times fréttir af því að Trump vilji funda með Pútín í Reykja­vík. Með fund­inum var Trump sagður vilja horfa til áhrif­anna sem leið­toga­fundur Ronalds Reagan og Mikhail Gor­bat­sjov hafði. Sá fundur fór fram í Reykja­vík árið 1986, eins og kunn­ugt er. Íslensk yfir­völd höfðu ekki haft neina afspurn af und­ir­bún­ingi fundar hér á landi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, sagði íslensk stjórn­völd líta málið jákvæðum augum.

Und­an­farin ár hafa sam­skipti Banda­ríkj­anna og Rúss­lands minnkað og orðið kald­ari en þau hafa verið eftir fall Sov­ét­ríkj­anna árið 1991. Í valda­tíð Baracks Obama, sem lét af for­seta­emb­ætt­inu í gær, hafa Banda­ríki og Rússland eldað grátt silfur, meðal ann­ars vegna átaka í Úkraínu og í Sýrlandi.

„Þetta mun ekki ger­ast á næstu vikum, vonum það besta og að fund­ur­inn geti átt sér stað á næstu mán­uðum,“ er haft eftir Peskov. Það væri hins vegar rangt að halda að sam­skipti ríkj­anna yrðu laus við allar „mót­sagnir og ágrein­ing“ í valda­tíð Trumps. „Þetta eru nefni­lega tvö stærstu ríki heims. Og við getum ekki verið til án þess að árekstrar verði.

Rússnesk stjórn­völd eru sögð hafa haft áhrif á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum í fyrra með því að dreifa fölskum upp­lýs­ingum og áróðri. Vladimír Pútín er sagður hafa fyr­ir­skipað tölvu­árásir á fram­boð Hillary Clinton til þess að tryggja sigur Donalds Trump. Trump hafði talað vel um Pútín í aðdrag­anda kosn­ing­anna og sagst vera sá eini sem gæti lagað sam­skipti Banda­ríkj­anna við Rússland.

Í Rúss­landi hafa hátt settir ráða­menn, Pútín þar á meðal, lofað Trump opin­ber­lega og sagst vænta þess að hann muni aflétta við­skipta­þving­unum vest­ur­veld­anna gegn Rúss­landi sem fyrst voru settar þegar Rússland hrifs­aði til sín Krím­skaga af Úkraínu.

Pútín hefur enn ekki hringt í Donald Trump eftir að sá síð­ar­nefndi tók við stjórn­ar­taumunum í gær. Símtalið mun eiga sér stað á næstu dögum. Pútín er sagður hafa sleppt því að horfa á inn­setn­ing­ar­at­höfn­ina í Washington; það hafi verið allt of tíma­frekt verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár