Enn verið að vinna úr gögnum um þá sem nýttu sér fjárfestingarleiðina

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk í apríl 2016 gögn frá Seðla­bank­anum um ein­stak­linga sem nýttu sér fjár­fest­inga­leið hans. Sam­keyrsla sýndi að 21 ein­stak­lingur sem kom fyrir í Panama­skjöl­unum sem íslenska ríkið keypti kom líka fyrir í gögn­unum.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra er enn að vinna úr gögnum sem það fékk um þá aðila sem nýttu sér hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Gögnin voru afhent í apríl 2016. Kjarninn óskaði eftir því hvar vinna vegna gagn­anna væri stödd með fyr­ir­spurn í maí í fyrra. Þá feng­ust þau svör að verið væri að vinna úr gögn­unum. Alls hafi 21 ein­stak­lingur sem kom fram í skatta­skjóls­gögnum sem íslenska ríkið keypti einnig komið fram í gögn­unum sem Seðla­bank­inn afhenti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Þeir ein­stak­lingar nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina á árunum 2012 til 2015.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans sem barst í gær að lítið væri við svarið frá því í maí að bæta. Enn væri verið að vinna úr gögn­unum.

Embættið óskaði eftir því að fá gögnin í kjöl­far þess að Panama­skjölin sýndu 800 aflands­fé­lög sem tengd­ust að minnsta kosti 600 Íslend­ingum og umfjöllun þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um þau sýndi að mörg þeirra félaga voru full af fé sem rök­studdur grunur væri um að hefði orðið til á Íslandi. Mörg aflands­fé­lag­anna hafa verið að fjár­festa það fé á Íslandi eftir hrun.

Ástæðan þess að vinnsla úr gögn­unum hefur frest­ast hefur m.a. verið sú að önnur vinna hefur verið í for­gangi hjá emb­ætt­inu, meðal ann­ars vinna úr Pana­ma­gögn­unum sem íslensk stjórn­völd keyptu árið 2015. Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­­­fé­lög með íslenska kenn­i­­­tölu fyrir í þeim gögn­um, sem keypt voru fyrir 37 millj­ónir króna.

Kjarn­inn greindi frá því um miðjan nóv­em­ber að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefði fellt niður 62 mál þar sem grunur var um að ein­stak­lingar hefðu framið skatt­svik. Fyrstu málin voru felld niður tæpum mán­uði áður.

Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­linga sem komu fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Og stór hluti mál­anna snýst um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðsl­um. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en alls voru 152 mál til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Alls er skatt­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­arðar króna.

Umrædd mál voru rann­sökuð hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og send þaðan til hér­aðs­sak­sókn­ara.

794 innlendir aðilar

Fjár­­­­­fest­inga­­­leið Seðla­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­ar­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­hengju, krón­u­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­stæð­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­­­stæð­­­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­ast út úr íslenska hag­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­skiptin mög­u­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­sala og neyt­endur sam­­­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­fest­inga­­­leið­inni frá því í febr­­­úar 2012 til febr­­­úar 2015, þegar síð­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­bank­ans, líkt og venju­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­fest­inga­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­fest­inga­­­kost­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leiðar Seðla­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­sent þeirrar fjár­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­kvæmt skil­­­málum útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar. Afslátt­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­bank­ans er um 17 millj­­­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár