Vilja auka eftirlitsheimildir vegna brotastarfsemi á vinnumarkaði

Ásmundur Einar Daðason von­ast til að ný lög muni tor­velda mark­vissa brota­starf­semi á vinnu­mark­aði.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, seg­ist binda vonir við að ný lög sem auka heim­ildir Vinnu­eft­ir­lits­ins og Vinnu­mála­stofn­unar við eft­ir­lit á vinnu­stöðum og veita víð­tæk­ari heim­ildir til að miðla upp­lýs­ingum sín á milli og til rík­is­skatt­stjóra og lög­reglu, muni tor­velda mark­vissa brota­starf­semi á vinnu­mark­aði. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

[links]Ráðherra segir að hátt­semi af því tagi, sem lýst var í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í gær­kvöldi, verði að stöðva og draga þá sem brotin fremja til ábyrgðar.

Lögin sem ráð­herra vísar til eru lög um breyt­ingu á lögum um rétt­indi og skyldur erlendra fyr­ir­tækja sem senda starfs­menn tíma­bundið til Íslands og fleiri lögum sem sam­þykkt voru á Alþingi í júní síð­ast­liðnum og tóku gildi að fullu 1. ágúst.

Markmið lag­anna er að tryggja að laun og önnur starfs­kjör starfs­manna sem erlend fyr­ir­tæki senda tíma­bundið hingað til lands séu í sam­ræmi við íslensk lög og kjara­samn­inga og einnig að bæta yfir­sýn stjórn­valda yfir eðli og umfang þess­ara mála.

Nýju lögin eru sögð afrakstur sam­starfs stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins þar sem farið hafi verið yfir helstu brotala­mir sem eft­ir­lits­að­ilar höfðu rekið sig á við vinnu­staða­eft­ir­lit. Með þeim sé skerpt á heim­ildum Vinnu­mála­stofn­unar til eft­ir­lits með starfs­manna­leigum og ábyrgð þeirra sem nýta sér þær hér á landi, meðal ann­ars á lág­marks­launum aukin. Auk þess sé kveðið á um greið­ari upp­lýs­inga­gjöf milli Vinnu­mála­stofn­unar og Vinnu­eft­ir­lits­ins og auknar heim­ildir þeirra til að miðla upp­lýs­ingum til rík­is­skatt­stjóra og lög­reglu þegar grunur leikur á félags­legum und­ir­boðum.

Ásmundur Einar segir það hafa komið glöggt fram í frétta­skýr­inga­þætti RÚV í gær hvað þeir aðilar sem hafa skýran ásetn­ing um að brjóta á vinn­andi fólki beiti til þess marg­vís­legum aðferðum. Brotin séu marg­vís­leg og sönn­un­ar­færslan geti verið flókin.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að til þess að eft­ir­litið sé árang­urs­ríkt þurfi virkt sam­starf á mörgum sviðum, þvert á stofn­anir og milli margra ólíkra aðila. Ráðherra segir það liggja ljóst fyrir að full­trúar atvinnu­rek­enda og launa­fólks séu á einu máli um að brot eins og hér um ræðir verði ekki liðin og vilj­inn til sam­starfs sé skýr. Hann seg­ist hafa vakið athygli á stöðu þess­ara mála í rík­is­stjórn þann 14. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hafa gert til­lögu um aukna sam­vinnu eft­ir­lits­að­ila til að sporna gegn félags­legum und­ir­boðum á íslenskum vinnu­mark­aði.

Til sam­starfs í þessu skyni hefur ráð­herra kallað til Alþýðu­sam­band Ísland, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, Bandalag háskóla­manna, BSRB, dóms­mála­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra, Embætti rík­is­skatt­stjóra, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, Samtök atvinnu­lífs­ins, Vinnu­eft­ir­litið og Vinnu­mála­stofnun.

Hlutverk hóps­ins verður meðal ann­ars að leggja til leiðir sem væn­legar eru til árang­urs­rík­ara eft­ir­lits. Hópnum er einnig ætlað að leggja til sam­eig­in­leg mark­mið eft­ir­lits­að­ila á vinnu­mark­aði og skil­greina mæli­kvarða til að meta árang­ur­inn af þeim aðgerðum sem lagðar verða til. Gert er ráð fyrir að sam­starfs­hóp­ur­inn skili ráð­herra skýrslu fyrir 1. febr­úar á næsta ári, segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár