Segir samkomulag um stjórnarskrármál hafa strandað á Sjálfstæðisflokki

Ekki náð­ist sam­komu­lag flokk­anna um mál­efni er snúa að stjórn­ar­skránni.

Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir er for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki hafa viljað sam­þykkja til­lögu um að nýtt breyt­ing­ar­á­kvæði við stjórn­ar­skrána. Hún segir alla aðra flokka hafa verið til í það.

„Ég lagði það til áðan á fundi for­manna flokk­anna að við myndum sam­ein­ast um nýtt breyt­inga­á­kvæði við stjórn­ar­skrá í anda þess sem var í gildi 2013-2017, þ.e. að ásamt því að hægt væri að sam­þykkja stjórn­ar­skrár­breyt­ingar með gömlu aðferð­inni væri hægt að afgreiða slíkar breyt­ingar með auknum meiri­hluta á Alþingi og vísa því svo til þjóð­ar­innar og afgreiða þær svo fremi sem 25% kosn­inga­bærra manna myndu sam­þykkja þær.“

„Þessi til­laga var til­raun til að miðla málum og skapa aukna sam­stöðu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og tóku allir flokkar, nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, jákvætt í hana. Því miður náð­ist ekki sam­komu­lag allra um málið og því metum við Vinstri-græn það svo að best sé að ljúka þing­inu þannig að börnum í hópi hæl­is­leit­enda verði komið í skjól, stigin verði fyrstu skref í átt að því að afnema upp­reist æru úr hegn­ing­ar­lögum og Alþingi sæki svo nýtt umboð til þjóð­ar­innar,“ segir Katrín á Facebook síðu sinni.

Sam­fylk­ingin og Píratar voru ekki hluti af sam­komu­lagi um mál­efni sem klára þarf fyrir þing­lok, og er ástæðan meðan ann­ars ágrein­ingur um hvernig eigi að haga málum er snúa að stjórn­ar­skránni.

Á Facebook síðu sinni segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, að því miður hafi ekki verið hljóm­grunnur fyrir þeim sjón­ar­miðum sem hann og Píratar töl­uðu fyrir. „Þjóðin fengi að ráða för í stjórn­ar­skrár­mál­inu. Að Alþingi myndi sam­þykkja nýtt breyt­ing­ar­á­kvæði sem gerði þjóð­inni kleift að breyta stjórn­ar­skránni á næsta kjör­tíma­bili. Þar höfðum við og Píratar því miður ekki erindi sem erf­iði en við berj­umst áfram!“ segir Logi á Facebook síðu sinni.

Eins og greint var frá fyrr í dag náðu fimm flokkar á Alþingi sam­komu­lagi um hvernig skuli ljúka þing­störf­um. Það eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokkur, Við­reisn, Björt fram­tíð og Vinstri græn.

Málin sem verða afgreidd fyrir þing­lok snúa meðal ann­ars að brott­­falli ákvæðis um upp­­reist æru, og frum­varp um bráða­birgða­á­kvæði í kosn­­inga­lög­um, og frum­varp um breyt­ing­ar á út­­lend­inga­lög­um, sem flutt verður af for­­mönn­um flokka sem það styðja. Vonast er til þess að þing­lok verði á morgun, en það fer þó eftir því hverstu hratt málin verða afgreidd á Alþingi, en gengið verður til kosn­inga 28. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár