„Ham­ingjan er dauf“ Steinari Braga rit­höf­undi þykir óham­ingjan for­vitni­legt ástand. Ham­ingjan sé aftur á móti dauf og vilji lítið annað en nýjar gard­ínur og hægt við­hald á því sem fyrir er. Mynd: Kristinn Magnússon

Ekkert breytist hjá kátu fólki

„Af hverju er alltaf svona mikill drungi í bókunum þínum?“ er spurning sem Steinar Bragi hefur fengið eftir hvert einasta útgefna verk. Hann hefur aldrei fengið spurninguna oftar en nú, sem kemur honum i opna skjöldu. Sjálfur taldi hann sig nefnilega hafa skrifað gáska­fullt verk, fullt af lífsgleði og húmor.

„Hæ, er ekki best að henda viðtalinu? Ég var ekki þarna, rigning í of marga daga eða of mörg bókaflóð, ég er farinn að upplifa þau eins og einhver hafi gleymt að senda mig heim úr skóla­kerfinu og ég er fastur í munnlegum prófum en man ekki lengur fagið sem verið er að spyrja mig útúr. Ég ætla að skrifa færri bækur í fram­tíðinni og gefa þær ekki út.“

Þessi skilaboð sendi Steinar Bragi daginn eftir að við hittumst á kaffihúsi niðri við höfn. Þá var klukkan hálf þrjú en hún hefði alveg eins getað verið ellefu að morgni eða fimm um eftir­miðdag. Eins og marga daga á undan var dimmt yfir frá morgni til kvölds og rigning úti. Það var annað yfirbragð yfir Steinari Braga en síðast þegar við hittumst til að tala um bók eftir hann. Þá var hann sólbrúnn í nýjum skóm úr krókódíla­leðri. Nýkominn heim úr Asíureisu, óvenju frísk­legur og nýbúinn að gefa frá sér skáldsögu. Síðan eru liðin fimm ár, hann hefur farið í gegnum skilnað, ferðast um heiminn, gefið frá sér eina skáldsögu og kannski aðra undir nafninu Eva Magnúsdóttir, og nú nýlega smásagna­safnið Allt fer. Tryggir lesendur Steinars Braga kalla það eitt af hans allra bestu verkum og fyrir það er hann tilnefndur til Íslensku bókmennta­verð­launanna í flokki fagur­bókmennta. Í þetta sinn er hann líkari okkur hinum Reyk­víkingunum í útliti og fasi, dálítið grár á litinn og geispandi. Honum fannst hann ekki hafa margt að segja en ég er ósammála, svo ég skrifa viðtalið í óþökk hans og vona að lesendur séu mér sammála.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár