Júní er fjórtándi hitametmánuðurinn í röð

Með­al­hiti í júní í ár var sá hæsti sem mælst hefur síðan mæl­ingar hófust árið 1880. Júní var jafn­framt fjórt­ándi mán­uð­ur­inn í röð sem bætir hita­met í skrám banda­rísku geim­ferða­stofn­un­ar­innar (NASA) og banda­rísku haf- og lofts­lags­stofn­un­ar­innar. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian.

Með­al­hiti á jörð­inni hefur hækkað stöðugt und­an­farna mán­uði. Mæl­ing­arnar taka til með­al­hita­stigs í bæði and­rúms­lofti og í höfum enda eru þetta sam­tvinnuð fyr­ir­bæri. Íslend­ingar þekkja það á eigin skinni því ef það væri ekki fyrir hlýja haf­strauma úr suð­ur­höfum sem ber­ast að ströndum Íslands þá væri vart byggi­legt á land­inu.

Með­al­hiti í júní­mán­uði hefur mælst yfir með­al­hita 20. ald­ar­innar í fjöru­tíu ár, eða síðan 1976. Röð þess­ara fjórtán met­mán­aða má rekja til veð­ur­fyr­ir­bær­is­ins El Niño á Kyrra­hafi sem var feykiöflugt á fyrri hluta árs­ins 2015. Með El Niño berst hlýtt vatn um allt Kyrra­hafið sem svo myndar oft ofsa­veður.

Nú hafa áhrif El Niño árið 2015 minnkað þannig að aug­ljóst er að um hnatt­ræna hlýnun af manna­völdum er að ræða, að sögn Gavin Schmidt, sér­fræð­ings hjá NASA. Nokkrar kenn­ingar eru hins vegar uppi um hvers vegna hvert hita­metið fellur á fætur öðru. Ein þeirra er að óvenju mikil hlý­indi yfir norð­ur­skaut­inu í vetur hafi ýtt undir og stuðlað að met­unum.

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París þar sem ríki heims komu sér saman um sam­eig­in­leg mark­mið í lofts­lags­málum, var ákveðið að stefna að því að með­al­hita­stig jarðar myndi ekki aukast um meira en tvær gráður miðað við með­al­hita fyrir iðn­bylt­ing­una. Samkvæmt spám sem gerðar hafa verið þá stefnir í að þetta tak­mark muni ekki nást, jafn­vel þó ríki heims festi mark­mið sín sem þau lögðu fyrir ráð­stefn­una í lög.

Mark­miðin munu þó draga gríð­ar­lega úr hraða hlýn­un­ar­innar og veita jarð­ar­búum fram­tíð­ar­innar betri tæki­færi til að berj­ast gegn hnatt­rænni hlýnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár