Guðmundur Andri: Ábyrgðarhluti að næra reiði fólks

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telur það hættu­legt þegar stjórn­mála­menn næra reiði fólks en maður einn áreitti hann í mat­vöru­verslun og hellti sér yfir hann.

Guðmundur Andri Thorsson
Guð­mundur Andri Thorsson Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir það vera ábyrgð­ar­hluta að næra reiði fólk eins og stundum megi sjá stjórn­mála­menn gera á kald­rifj­aðan hátt til að vald­efla sig. Það sé hættu­legt. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

Ástæðan fyrir skrifum Guð­mundar Andra er atvik sem hann lenti í þegar hann var staddur í mat­vöru­búð en maður einn jós yfir hann skömmum fyrir hina ýmsu hluti; hví­líkur lyg­ari hann væri og við­bjóður og að hann vildi flytja inn í landið barn­a­níð­inga frá Svíþjóð, hvort hann vissi ekki hvernig ástandið væri í Svíþjóð. Guð­mundur Andri segir að mað­ur­inn hafi titrað af reiði. „Hann var svo hræddur við alla múslim­ana sem hingað væru á leið­inni frá Svíþjóð og reiður mér fyrir að standa fyrir þessum inn­flutn­ingi.“

Kallaði hann „Samfylkingardrullu“

„Hann leit út eins og hver annar „sorrí-með-mig“-Garð­bæ­ingur (sbr. Baggalúts­lagið); í fal­legum ull­ar­jakka og með vand­aðan gráan trefil vaf­inn um háls­inn, í hvítum jogg­ing-buxum og með hann­aða hár­klipp­ingu, með hár­brúski og rakstri. Verð­bré­fagutti í kas­úal klæðn­aði. En hann var samt ekki alveg þess­háttar maður – þeir gang­ast upp í að vera vonda fólkið og eru fullir af póli­tískum rang­trún­aði, en eru ekki slæmir náungar í raun­inni. Held ég. Að minnsta kosti yfir­leitt í góðu skapi – held ég.

Nema hvað, ég sá hann ekki alveg strax, þarna í Hag­kaups­búð­inni í Garðabæ í fyrra­kvöld, nýkom­inn að norðan að kaupa ýmsar nauð­synjar fyrir heim­ilið. Ég heyrði hins vegar í honum þegar ég var nýkom­inn inn: „Sam­fylk­ing­ar­drulla“.

Mér brá svo­lítið, horfði strangur á svip – og ég get verið mjög strangur á svip – á sak­lausan ung­linga­hóp sem ráf­aði þarna um skríkj­andi í hálf­gerðu reiðu­leysi. Og reiði­leysi: ekki þau. Ég hélt áfram að safna í körf­una, tómötum, banönum, kaffi, katta­mat ... þá heyrði ég aftur ókvæð­is­orð og leit upp, sá engan en þegar ég steig nokkur skref til hliðar sá ég hann þar sem hann horfði á mig æstur,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

[adspot]

Bað hann um að hætta að áreita sig

„„Ertu að tala við mig?“ spurði ég og þá kom ný gusa um það hví­líkur lyg­ari ég væri og við­bjóður, ég vildi flytja inn í landið barn­a­níð­inga frá Svíþjóð, hvort ég vissi ekki hvernig ástandið væri í Svíþjóð. Hann titr­aði af reiði. Hann var svo hræddur við alla múslim­ana sem hingað væru á leið­inni frá Svíþjóð og reiður mér fyrir að standa fyrir þessum inn­flutn­ingi.

Ég lagði ekki í að spyrja hann hvað honum fynd­ist um 3. orku­pakk­ann en sagði honum að hætta að áreita mig, ann­ars myndi ég kalla á örygg­is­vörð og fór. Það var ein­hver óhugur í mér,“ heldur Guð­mundur Andri áfram.

„Svona leit hann þá út, reiði maðurinn í athugasemdakerfunum“

Guð­mundur Andri seg­ist aldrei áður hafa staðið augliti til auglitis við net­bræð­ina eins og hún lítur út í raun­veru­leik­anum. „Svona leit hann þá út, reiði mað­ur­inn í athuga­semda­kerf­unum. Kannski var þetta veikur maður en það sem vall upp úr honum var sami reiði­lest­ur­inn og við getum dag­lega séð á net­miðlum og heyrt skötu­hjúin á útvarpi Sögu draga upp úr við­mæl­endum sínum til að eitra hugi ves­al­ings gamla fólks­ins sem hefur ekki lengur Sagna­slóð í útvarp­inu að hlusta á.“

Hann lýkur máli sínu með því að segja að vissu­lega sé þetta sál­sýkis­þrugl en sett saman úr ein­földum stað­hæf­ingum sem bein­ist að djúp­rættum kenndum í mann­fólk­inu, ótta og reiði og van­þekk­ingu í jöfnum hlut­föllum og löngun til að finna reiði­króka til að hengja van­líð­an­ina á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár