Abe boðar til þingkosninga í Japan

Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, hefur rofið þing og efnt til nýrra þing­kosn­inga sem haldnar verða 22. októ­ber. Þær munu, að sögn Abe, gefa almenn­ingi tæki­færi til að meta við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar við vax­andi spennu á Kóreu­skaga.

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans.Nýr sameinaður stjórnarandstöðuflokkur undir forystu hins vinsæla borgarstjóra Tókýó, Yuriko Koike, gæti komið Abe á óvart en hann hefur tilkynnt að hann muni segja af sér ef hann fær ekki meirihluta á þingi.
Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans.Nýr sam­ein­aður stjórn­ar­and­stöðu­flokkur undir for­ystu hins vin­sæla borg­ar­stjóra Tókýó, Yuriko Koike, gæti komið Abe á óvart en hann hefur til­kynnt að hann muni segja af sér ef hann fær ekki meiri­hluta á þingi. Mynd: EPA

Heilir fjórtán mán­uðir voru eftir af kjör­tíma­bili Abe þegar hann ákvað að efna til þing­kosn­inga. Abe, sem hefur gegnt emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra frá lok 2012, hefur gefið upp tvær meg­in­á­stæður fyrir því að rjúfa þing: ann­ars vegar til þess að sækj­ast eftir stað­fest­ingu á stuðn­ingi almenn­ings við við­brögð rík­is­stjórnar hans við auk­inni spennu á Kóreu­skaga og hins vegar til að meta stuðn­ing almenn­ings við áform hans um hvernig eigi að verja auknum tekjum rík­is­sjóðs sem afleið­ing af aukn­ingu í sölu­skatti í land­inu.

Abe brást harka­lega við þegar norður-kóresk stjórn­völd skutu upp tveimur eld­flaugum sem flugu yfir Hokkaido-eyju í Norður-Japan og lentu í sjónum um 2200 kíló­metrum austan við eyj­una. Hann sagði að „þörf væri á því að láta Norðu-Kóreu fatta að ef það heldur upp­teknum hætti mun landið ekki eiga bjarta fram­tíð“ og hvatti til herð­ingu við­skipta­banns­ins við Norður-Kóreu. Abe, sem er leið­togi hægri­flokks­ins Liberal Democratic Party (LDP), er hlynntur breyt­ingum á japönsku stjórn­ar­skránni sem setur skýr tak­mörk á stærð og aðgerðir jap­anska hers­ins og ekki er ólík­legt að spennan á Kóreu­skaga muni gera honum kleift að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar á næsta kjör­tíma­bili.

Þá stendur til að hækka sölu­skatt í Japan úr 8% í 10% árið 2019 sem sam­kvæmt spám mun leiða til 45 millj­arða Banda­ríkja­dala til við­bótar í rík­is­sjóð. Þær tekjur áttu að fara til að greiða niður hluta af skuldum jap­anska rík­is­ins en Abe hefur lagt til að tæp­lega helm­ingur fari til mennta­mála. Abe seg­ist vilja bera þessa ákvörðun undir þjóð­ina í þing­kosn­ing­unum.

Stjórnarandstaðan ekki eins sundruð og við fyrstu sýn

Þrátt fyrir ástæð­urnar sem Abe gaf upp fyrir að rjúfa þing eru aðrir þættir sem mögu­lega útskýra ákvörð­un­ina betur. Eftir að hafa séð stuðn­ing við rík­is­stjórn sína hrynja í sumar vegna ítrek­aðra skandala, sem snú­ast að mestu um per­sónu Abe en upp hefur kom­ist um ýmsa greiða og fyr­ir­greiðslur til félaga sinna sem hann hefur staðið fyrir á síð­ustu miss­erum, jókst stuðn­ing­ur­inn við Abe aftur í kjöl­far aðgerða Kim Jong-un á Kóreu­skaga. Þá gekk stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn, Democratic Party (DP), í gegnum mikla lægð í skoð­ana­könn­unum og mæld­ist undir 10%, og hefur Abe séð sér leik á borði að tryggja heilt nýtt kjör­tíma­bil sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að hafa komið í gegn breyt­ingum í LDP-flokki sínum fyrr á árinu sem leyfa honum að leiða flokk­inn fram að árinu 2021. Leiðin virð­ist því vera til­tölu­lega greið fyrir Abe; rík­is­stjórnin hans hefur nú þegar tvo þriðju meiri­hluta þing­sæta og lík­legt þykir að þing­kosn­ing­arnar 22. októ­ber muni að minnsta kosti veita honum meiri­hluta.

Þó er einn óvissu­þáttur sem gæti skemmt fyrir Abe. Hinn vin­sæli borg­ar­stjóri Tókýo, Yuriko Koike, til­kynnti stofnun nýs stjórn­mála­flokks sama dag og Abe boð­aði til nýrra kosn­inga. Skömmu síðar til­kynnti DP að flokk­ur­inn myndi í raun leys­ast upp og hvöttu leið­togar flokks­ins fram­bjóð­endur sína að ganga til liðs við Koike og bjóða sig fram undir for­merkjum nýs flokks hennar, Party of Hope. Koike, sem er fyrr­ver­andi ráð­herra í fyrstu, og skamm­líf­ustu, rík­is­stjórn Abe á milli 2006 og 2007, hefur skil­greint sig sem íhalds­saman pópu­lista og hefur þegar sýnt getu sína til að bjóða sig fram gegn LDP bæði með sigri í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum Tókýó-borgar og vel­gengni í sveita­stjórn­ar­kosn­ingum í sömu borg síð­ast­liðið sumar. Stefnur flokks Koike eru ekki fjarri því að sam­ræm­ast stefnum LDP-flokks Abe en þó hefur Koike gagn­rýnt Abe fyrir sýna ekki aðhald í rík­is­fjár­málum ásamt því að heita því að binda enda á áform Abe um að end­ur­ræsa kjarn­orku­ver lands­ins eftir að þeim var lokað í kjöl­far Fukus­hima-ham­far­anna árið 2011. Fyrst og fremst aug­lýsir flokkur Koike sig sem val­mögu­leika við þá spill­ingu sem ein­kennt hefur hluta af stjórn­ar­tíð Abe-rík­is­stjórn­ar­innar. Til þess að Koike gæti átt mögu­leika á for­sæt­is­ráð­herra­stólnum yrði hún að segja af sér stöðu borg­ar­stjóra og form­lega skrá sig í fram­boð fyrir þing­sæti en hingað til hefur hún ekki viljað gera það.

Með því að rjúfa þing og boða til þing­kosn­inga er Abe að taka áhættu; annað hvort tekst honum að tryggja sér nýtt kjör­tíma­bil sem for­sæt­is­ráð­herra eftir erfitt kjör­tíma­bil þar sem stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur sveifl­ast til og frá, eða þá mun hann bíða óvæntan ósigur vegna þreytu almenn­ings á stjórn­ar­háttum hans. Þá er fram­boð Koike einnig áhætta fyrir hana; ef hún telur að sigur í kosn­ing­unum sé innan seil­ingar, segir af sér sem borg­ar­stjóri Tókýó, og bíður síðan ósigur þá er stjórn­mála­fer­ill hennar í hættu. Að öllum lík­indum mun Abe ná að tryggja sér fjögur ný ár en ljóst er að kosn­inga­bar­áttan verður snún­ari en búist var við fyrir nokkrum vikum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár