Jóhannes Þór segist aldrei hafa kynnst „viðlíka óheiðarleika, virðingarleysi og lygum“

„Ég hef aldrei, aldrei, kynnst við­líka óheið­ar­leika, virð­ing­ar­leysi og lygum af hálfu fjöl­miðla­manna gagn­vart við­mæl­endum eða starfs­fólki eins og SVT og Jóhannes Krist­jáns­son sýndu af sér í þessu til­felli. Satt að segja á ég erfitt með að finna annað eins dæmi í lífi mínu almennt um fólk sem hefur sýnt af sér hegðun sem kemst í hálf­kvisti við þetta,“ skrifar Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um sam­skipti sín við Jóhannes Kr. Krist­jáns­son og sænska rík­is­út­varpið SVT.

Jóhannes Þór skrifar á vef­síðu sína um yfir­lýs­ingu frá Reykja­vík Media, Kast­ljósi og Uppdrag Granskning frá því á laug­ar­dag, þar sem fjöl­miðl­arnir höfn­uðu því m.a. að þeim hafi verið afhentar ítar­legar upp­lýs­ingar um eign­ar­halds­fé­lagið Wintris eins og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs, hélt fram í við­tali við Morg­un­blaðið sama dag. Anna Sig­ur­laug sagði að ekki hafi verið tekið til­lit til þeirra upp­lýs­inga sem afhentar hefðu verið við vinnslu þáttar Kast­ljóss um Panama­skjölin, þar á meðal félagið Wintris.

Jóhannes Þór segir rétt að fara yfir nokkra hluti varð­andi sam­skipti sín við þetta fjöl­miðla­fólk, þó hann hafi ekki kosið að tjá sig mikið um það eða annað varð­andi málið hingað til.

„Í byrjun mars fékk ég sím­töl og tölvu­pósta frá Jóhann­esi Krist­jáns­syni þar sem óskað var eftir við­tali við for­sæt­is­ráð­herra fyrir sænska rík­is­sjón­varpið. Jóhannes kynnti sig sem milli­göngu­að­ila og það stað­festu Svíarnir. Það var lygi,“ skrifar Jóhannes Þór. Í kjöl­farið hafi hann fengið yfir­lit frá SVT um það hvað ræða ætti í við­tal­inu og það hefði allt saman verið lygi líka. „Það er skemmst frá því að segja að í tæpar tvær vikur var allt sem kom fram í sím­tölum, tölvu­póstum og per­sónu­legum sam­tölum við mig af hálfu þess­ara manna lygi.“

Jóhannes seg­ist vissu­lega hafa hringt í rit­stjóra þátt­ar­ins Uppdrag Granskning hjá SVT, Nils Hanson, og komið á fram­færi megnri óánægju sinni með vinnu­brögðin. „Ég var enda reiður og lái mér hver sem vill.“

Hann hafi hins vegar ekki farið þess á leit að við­talið við Sigmund Davíð, þar sem rætt var um Wintris, yrði ekki sýnt. Hann hafi vitað að hann hefði enga stjórn á því „og að fátt myndi þessu fólki lík­lega þykja meira djúsí.“ Hann hafi vegar hringt til að fá skýr­ingar á fram­komu sænska rík­is­sjón­varps­ins gagn­vart for­sæt­is­ráð­herra og honum sjálfum.

Yfirlit á bloggsíðu og upplýsingar frá KPMG

Fjöl­miðl­arnir sem unnu að Panama­skjöl­unum hafa oft tekið fram að Sig­mundur Davíð og Anna Sig­ur­laug hafi ekki svarað ítar­legum spurn­inga­lista sem sendur hafi verið. Ekki hafi feng­ist svör við þeim þó þær hafi verið ítrek­aðar, en Jóhannes Þór hafi vísað í blogg­færslu Sig­mundar og yfir­lýs­ingu frá KPMG.

Í færslu Jóhann­esar Þórs kemur fram að þetta séu upp­lýs­ing­arnar sem talað er um að ekki hafi verið tekið til­lit til. Jóhannes hafi einnig sjálfur beðið um að sjá gögnin sem fjöl­miðl­arnir höfðu undir höndum en því hafi verið neitað. Þetta segir hann að hafi falið í sér mik­inn aðstöðumun, þar sem þurft hafi að „afla þess­ara gagna á tíma­frekan hátt frá mörgum aðilum erlendis.“ Hann gagn­rýnir hvernig farið hafi verið með þessar upp­lýs­ingar í Kast­ljósi.

Í yfir­lýs­ing­unni frá Reykja­vík Media, Kast­ljósi og Uppdrag Granskning segir hins vegar þetta: „Í þætt­inum var hins vegar end­ur­tekið vísað í yfir­lýs­ingar þeirra beggja og blogg­færsl­ur, sem birtar voru í aðdrag­anda þátt­ar­ins. For­sæt­is­ráð­herra var að auki ítrekað boðið í við­tal um aðkomu sína að félag­inu, sem hann þáði ekki. Rétt eins og áður hefur verið bent á í yfir­lýs­ing­u und­ir­rit­aðra vegna ummæla Sig­mundar Dav­íðs frá því í júní síð­ast­liðn­um.“

Segist vilja læra af málinu

„Ég get sagt það per­sónu­lega að traust mitt á þeim sem fóru fram svo óheið­ar­lega í sam­skiptum við mig, eins og að ofan er lýst, er ekki mikið. Ég á þess vegna svo­lítið bágt með að gleypa þetta með geisla­baug­inn og væng­ina. Á sama hátt veit ég að ég hef ekki gert allt rétt og mun gera mitt besta til að vinna traust fólks sem ég vinn með og hef sam­skipti við í mínu starfi, jafnt fjöl­miðla­fólks og ann­arra,“ skrifar Jóhannes Þór.

Hann sé ekki óskeik­ull og geri mis­tök sem hann reyni að læra af, biðj­ast afsök­unar á og bæta sig. „En fólk sem vinnur við fjöl­miðla er það ekki heldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár