Fimmtungur íslenskra fyrirtækja selur þjónustu í gegnum netið

Alls selja 21 pró­sent íslenskra fyr­ir­tækja vörur eða þjón­ustu í gegnum vef­síður eða öpp og meiri en helm­ingur fyr­ir­tækja aug­lýsir á net­inu. Þá hafa aldrei fleiri Íslend­ingar verslað á net­inu en í ár.

Alls selja rúm­lega fimmt­ungur íslenskra fyr­ir­tækja sínar vörur og þjón­ustu í gegnum vef­síður eða öpp. Það er tölu­vert hærra hlut­fall fyr­ir­tækja en með­al­hlut­fall innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem er 16 pró­sent. Rúmlega helm­ingur íslenskra fyr­ir­tækja aug­lýsir jafn­framt á net­inu.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum sam­evr­ópskrar rann­sóknar Hagstofu Íslands á við­skiptum fyr­ir­tækja í gegnum netið.

Helmingur auglýsir á netinu

Hærra hlut­fall fyr­ir­tækja selur þó þjón­ustu sína í gegnum netið í Svíþjóð, Noreg og Danmörku eða rúm­lega 25 pró­sent. Hæst er þó hlut­fallið í Írlandi eða alls 30 pró­sent fyr­ir­tækja.

[links]Í könn­un­inni kemur jafn­framt fram að sala fyr­ir­tækja á vörum og þjón­ustu árið 2019 í gegnum vef­síður eða öpp á Íslandi var 6 pró­sent af rekstr­ar­tekjum fyr­ir­tækja, þar af var 68 pró­sent í gegnum eigin vef­síður eða öpp og 32 pró­sent í gegnum almennar sölu­síður.

Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að í fyrra greiddu rúmur helm­ingur íslenskra fyr­ir­tækja fyrir aug­lýs­ingar á net­inu eða 51 pró­sent fyr­ir­tækja sam­kvæmt sömu könnun. Þá var minni en þriðj­ungur af heildar birt­ing­ar­kostn­aði greiddur til erlendra aðila hjá 73 pró­sent fyr­ir­tækj­anna. Hjá 14 pró­sent fyr­ir­tækja rann einn til tveir þriðj­ungar birt­ing­ar­kostn­aðar til erlendra aðila og hjá 13 fyr­ir­tækja meira en tveir þriðj­ungar.[adspot]

Könnun Hag­stof­unnar var á meðal 2023 fyr­ir­tæki en und­an­skilin voru fyr­ir­tæki með færri en 10 starfs­menn og fyr­ir­tæki í fjár­mála­starf­semi, land­bún­aði, fisk­veiðum, skóg­rækt, eða úrvinnslu hrá­efna úr jörðu.

Þrír af hverjum fjórum Íslendingum versluðu á netinu

Í ár versl­uðu met­hlut­fall Íslend­inga á net­inu eða alls 76,8 pró­sent lands­manna, sam­kvæmt nýrri neyslukönnun Gallup. Það er hæsta hlut­fall Íslend­inga frá því að mæl­ingar hófust. Hæst er hlut­fallið í ald­urs­hópnum 25 til 34 ára en 95 pró­sent þeirra höfðu verslað á net­inu á síð­ustu 12 mán­uðum.

Þá seg­ist meiri­hluti Íslend­inga versla oftar í erlendum vef­versl­unum en íslenskum. Fimmt­ungur seg­ist þó versla oftar í íslenskum en erlendum og 17,8 pró­sent segj­ast versla jafn­oft í erlendum og inn­lendum vef­versl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár