Fjármálaáætlun prentuð út að nýju vegna villna

„Það hefur lítið upp á sig að reyna að lesa fjár­mála­á­ætl­un­ina núna, því við vitum ekki hvar vill­urnar eru,“ segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata í fjár­laga­nefnd.

Prenta þarf út fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að nýju vegna villna sem slædd­ust inn í grein­ar­gerð hennar. Þing­maður Pírata seg­ist hafa rekið augun í tölu­legar villur þar sem skeikar um tugi millj­arða og jafn­vel billjón króna. 

„Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan og allt efni hennar er rétt en í ljós kom að í grein­ar­gerðum til­tek­inna mál­efna­sviða höfðu nokkrar skýr­ing­art­öflur af tækni­legum orsökum ekki skilað sér með réttum hætti,“ segir Elva Björk Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Þegar þetta kom í ljós var skjalið upp­fært með réttum töflum í grein­ar­gerðum mál­efna­sviða.“

Björn Leví Gunn­ars­son, full­trúi Pírata í fjár­laga­nefnd, furðar sig á að þing­menn hafi ekki verið látnir vita af mál­inu fyrr. Nú sé sú staða komin upp að nefnd­ar­rit­arar Alþingis, sem aðstoða þing­menn við grein­ingu á fjár­mála­á­ætl­un­inni, fái ekki ein­tak af henni fyrr en á mánu­dag­inn næst­kom­andi. 

„Nefnd­ar­rit­arar fjár­laga­nefndar hafa ekki enn fengið ein­tak og reyndar fengu þeir heldur ekki boð á kynn­ing­ar­fund um fjár­mála­á­ætl­un­ina eins og þeir fengu í fyrra,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Nefnd­ar­rit­arar hjálpa okkur þing­mönnum að fara yfir fjár­mála­á­ætl­un­ina og greina hana, en þeir hafa ekki getað gert það af því að þeir hafa ekki fengið ein­tak. Þá dugar ekki að fara bara í raf­ræna ein­takið á vefnum því vill­urnar eru líka þar.“ 

Hann segir und­ar­legt að heyra fyrst af þessu frá nefnda­sviði Alþingis en ekki for­seta þings­ins.  „Þegar fjár­mála­á­ætlun var kynnt í fyrra voru ein­hverjar villur, en ekki nægi­lega margar til þess að það teld­ist nauð­syn­legt að prenta upp ný ein­tök, en nú virð­ast vill­urnar alvar­legri. Það þýðir auð­vitað að það hefur lítið upp á sig að reyna að lesa fjár­mála­á­ætl­un­ina núna, því við vitum ekki hvar vill­urnar eru. Ég hefði kannski haldið, í ljósi yfir­lýs­inga rík­is­stjórn­ar­innar um efl­ingu Alþingis og ný og betri vinnu­brögð, að það væri hægt að koma raf­rænum leið­réttum ein­tökum til þing­manna og nefnd­ar­rit­ara fyrir helgi.“ 

Björn greinir frá því á Facebook að á meðal villna sem hann hefur fundið séu „10 millj­arða munur á mál­efna­svið­inu um fjár­magns­kostnað og líf­eyrs­skuld­bind­ingar“ en jafn­framt „billjón króna munur (já, billjón) í áætl­uðu mark­miði um útflutn­ings­tekjur, þó nokkrar afrit­un­ar­villur þar sem mark­miðin eru nákvæm­lega þau sömu og í fyrra, að þar er vísað í 2018 en ekki 2019“. 

Elva Björk, upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, bendir á það í sam­tali við Stundina að efni þings­á­lykt­un­ar­innar liggi fyrir sem og almenn grein­ar­gerð. „Þingið hefur verið upp­lýst um að þings­á­lykt­unin verði prentuð upp vegna upp­færslu töflu­við­auka,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár