Messi horfist í augu við alvöru lífsins

Lionel Messi og faðir hans Jorge Messi, tóku sæti fyrir framan dóm­ara í Barcelona. Þeir eru sak­aðir um stór­felld skatt­svik.

Lionel Messi, besti fót­bolta­maður heims­ins og lyk­il­maður Barcelona og argentíska lands­liðs­ins, tók sæti í morgun í vitna­stúku í dóm­sal í Barcelona, þar sem hann og faðir hans Jorge þurftu að svara fyrir ásak­anir um skatt­svik upp á rúm­lega fjórar millj­ónir evra, eða sem nemur um 560 millj­ónum króna. Hinn 28 ára gamli Messi segj­ast hvergi hafa komið nærri mál­inu. Samtals, með vöxtum, nemur fjár­hæðin 4,7 millj­ónum evra.

Vissi ekkert

„Ég vissi ekk­ert um þetta, ég hugs­aði bara um fót­bolt­ann,“ sagði Messi, en vitna­leiðslur yfir honum voru aðeins í gangi í fimmtán mín­útur. Jorge faðir hans sagði svip­aða sögu. Nema hvað hann játti því að sjá um fjár­hags­leg mál­efni fyrir son sinn. Hann hefði hins vegar með engum hætti komið að þeim fjár­mála­gjörn­ingum sem málið snýst um, sem eru skattaund­an­skot í gegnum Belís og Úrugvæ, með hjálpa aflands­fé­laga.

Pen­ing­arnir sem ekki voru gefnir upp til skatts voru greiðslur vegna styrktar- og aug­lýs­inga­samn­ingar (image rights) Lionel Messi, á árunum 2007 til 2009. Samtals námu þær 10,1 millj­ónum evra, um 1,4 millj­örðum króna. Þetta voru meðal ann­ars greiðslur frá Pepsi, Procto & Gamble og Adidias.

Feðgarnir ábyrgir

Skatta­yf­ir­völd á Spáni telja Messi feðga vera ábyrga fyrir skattsvik­unum, en Jorge bauðst árið 2013 til þess að greiða yfir­völdum sátta­greiðslu upp á fimm millj­ónir evra. Þeir greiddu fjár­hæð­ina að lokum. Sú greiðsla er ekki til þess fallin að styrkja stöðu þeirra feðga, og hafa yfir­völd á Spáni frekar litið á það sem stað­fest­ingu á sekt þeirra. Hins vegar gæti mögu­lega refs­ing verið mild­ari fyrir vikið, en miðað við refsiramma lag­anna sem um ræðir getur fang­els­is­vist ekki orðið lengri en tvö ár.

En hvers vegna er þetta mál viða­mikið og jafn­vel talið próf­steinn á rétt­ar­kerfi Spánar? Hið aug­ljósa er að benda á að spjótin bein­ist að einum þekktasta íþrótta­manna ver­aldar. En það er ekki síður efna­hags­legi veru­leiki Spánar sem þarf að horfa til í þessu sam­hengi. Atvinnu­leysi hefur verið meira 20 pró­sent í land­inu und­an­farin ár, og hjá ungu fólki hefur það verið yfir 40 pró­sent. Skuldir sliga sveit­ar­fé­lög um allt landið, og end­ur­skipu­lagn­ing banka­kerf­is­ins, eftir fjár­málakrepp­una á árunum 2007 til 2009 – á sömu árum og Messi feðgar eru sak­aðir um að hafa verið að skjóta undan skatti – hefur verið kostn­að­ar­söm.

Alvarlegur undirtónn

Í árferði eins og þessu, er það litið sér­stak­lega alvar­legum augum að skjóta undan skatti, og þegar upp­hæð­irnar eru jafn háar og í þessu máli, þá gætu hámarks­refs­ingar verið nýttar. Þetta á ekki að líða, segja skatta­yf­ir­völd skýrri röddu.

En hver ber ábyrgð­ina, ef það eru ekki eig­endur fjár­magns­ins? Það bein­ist kast­ljósi að lög­fræði­stofu sem Jorge Messi réð til þess að aðstoða við skjala­vinnslu og samn­inga­gerð. Þeir sáu enn­fremur um eigna­stýr­ingu fyrir Messi. Þetta er lög­fræði­stofan Juárez Veciana, sem bræð­urnir Angel og Inigo Juárez stýra. Þeir bræður komu báðir fyrir rétt­inn í morgun, og sögðu Lionel Messi ekki hafa haft neina vit­neskju um hvernig gengið var frá greiðsl­unum. Sögðu þeir, að sam­skiptin hafi verið við Jorge, en ábyrgðin væri alfarið þeirra. Þeir telja að frá­gang­ur­inn á greiðsl­unum hafi verið í takt við alþjóða­lög, og að málið sé því ekki á rökum reist. „Ég get ekki talað fyrir aðra sam­starfs­menn mína, en ég get stað­fest það að Lionel Messi kom ekki nálægt neinu af því sem hér um ræðir,“ sagði Inigo og lagði áherslu á mál sitt.

Dóms­nið­ur­staða í mál­inu mun liggja fyrir í sumar, en lög­fræð­ingar Messi klára að leggja fram rök­stuðn­ing í vörn hans á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár