Sigurður Ingi leggst gegn uppbyggingu nýs hverfis í Skerjafirði

Inn­við­a­ráð­herra segir að fyr­ir­huguð íbúða­upp­bygg­ing í Skerja­firði brjóti gegn sam­komu­lagi rík­is­ins og Reykja­víkur um rann­sóknir á nýju flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauni. Hol­lenskir sér­fræð­ingar sögðu flug­ör­ygg­is­rök ekki standa upp­bygg­ing­unni í vegi.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra segir að Reykja­vík­ur­borg muni ekki fá að byggja upp á flug­vall­ar­landi í Nýja Skerja­firði fyrr en búið verði að finna nýjan stað undir þá starf­semi sem í dag er á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Þessi orð lét hann falla í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar í morgun, í fram­haldi af skeyta­send­ingum sem gengið hafa á milli ráðu­neytis hans, Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Isavia um fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Skerja­firð­inum sem Reykja­vík­ur­borg vill hefja í sumar.

Ráðherra full­yrðir í við­tal­inu að áætl­anir Reykja­vík­ur­borgar um upp­bygg­ingu hús­næðis á þessum stað brjóti gegn ákvæðum í sam­komu­lagi á milli rík­is­ins og borg­ar­innar frá 2019 um rann­sóknir á mögu­leikum á bygg­ingu nýs flug­vallar í Hvassa­hrauni.

„Meðan annar kostur, jafn­góður eða betri, er hvorki fund­inn né upp­byggður þá felst sam­komu­lagið í því að þessi völlur hér, sem við stöndum á, eigi að vera í óbreyttri, rekstr­ar­lega og örygg­is­lega, mynd. Og það er hann ekki, að mati Isavia og þeirra ráð­gjafa, ef að þessar bygg­ingar fara af stað hér í Skerja­firði,“ sagði ráð­herra í við­tal­inu.

Í sam­komu­lag­inu frá 2019 sagði að aðilar lýstu sig sam­mála um að tryggja ætti rekstr­ar­ör­yggi á Reykja­vík­ur­flug­velli á meðan und­ir­bún­ingi og gerð nýs flug­vallar stendur og að Reykja­vík­ur­flug­völlur ætti áfram að geta þjónað inn­an­lands­flugi á full­nægj­andi hátt þar til nýr flug­völlur yrði til­bú­inn til notk­unar.

Kveðið á um byggð sunnan flugvallar í samkomulagi frá 2013

Í sam­komu­lag­inu frá 2019 var einnig vísað til þess að þetta nýja sam­komu­lag ógilti ekki eldra sam­komu­lag um inn­an­lands­flug frá 2013 á milli borg­ar­innar og ríkis.

Í því sam­komu­lagi var meðal ann­ars fjallað um lokun norð-austur/suð-vestur flug­braut­ar­innar, sem stundum var kölluð neyð­ar­brautin, og að það land sem losn­aði við lokun hennar sunnan vall­ar­ins yrði skipu­lagt undir bland­aða byggð.

Túlka skýrslu hollenskra ráðgjafa með ólíkum hætti

Reykja­vík­ur­borg svar­aði á dög­unum athuga­semdum sem bár­ust frá Isavia og inn­við­a­ráðu­neyt­inu um þessi mál með þeim hætti að hvorki flug­ör­yggi né rekstr­ar­ör­yggi vall­ar­ins yrði stefnt í hættu með upp­bygg­ing­unni í Nýja-Skerja­firði.

Isavia fékk hol­lensku loft- og geim­ferða­stofn­un­ina (NLR) til þess að vinna rann­sóknir á áhrifum upp­bygg­ing­ar­innar í Skerja­firði á flug­ör­yggi og vís­aði Reykja­vík­ur­borg m.a. til þess mats í svar­bréfi sínu til ráðu­neyt­is­ins.

Nið­ur­stöður skýrsl­unnar frá NLR voru á þá leið að út frá örygg­is­sjón­ar­miðum væri áhættan af upp­bygg­ing­unni fyrir flug­ör­yggi „ekki óásætt­an­leg“ og „ætti að vera álitin þol­an­leg“ en til þess þyrfti þó að grípa til ákveð­inna mót­væg­is­að­gerða.

[adspot]

Hol­lensku sér­fræð­ing­arnir nefndu að ein mögu­leg mót­væg­is­að­gerð væri sú að láta flug­menn vita að tölu­verð ókyrrð gæti verið í loka­að­flugi þeirra við ákveðnar aðstæður og önnur væri sú að fylgst yrði með því hve oft þær aðstæður sem leitt gætu til ókyrrðar kæmu upp. Báðar þessar mót­væg­is­að­gerðir væru í höndum Isavia.

„Þess er vænst að þessar mót­væg­is­að­gerðir eigi að vera nægi­legar til þess að takast á við áhætt­una sem komið hefur í ljós. Því er það nið­ur­staðan að áhættan sé við­ráð­an­leg og ætti ekki að koma í veg fyrir upp­bygg­ingu íbúða­byggð­ar­innar í Nýja-Skerja­firði,“ sagði í nið­ur­lagi skýrsl­unnar frá hol­lensku sér­fræð­ing­unum.

Þrátt fyrir þetta hefur Isavia áhyggjur og hefur bent á í minn­is­blöðum sínum um málið að óvíst sé um áhrif á minni loft­för, sem verði fyrir meiri áhrifum af svipti­vindum en stærri vélar. Isavia hefur einnig sett fram áhyggjur af því að á fram­kvæmda­tíma auk­ist líkur á að jarð­efni og smá­dót fjúki inn á flug­braut­ina.

Sagði leiðinlegt að þurfa að slá á puttana á borginni

Í við­tal­inu í dag seg­ist Sigurður Ingi ekki hafa séð þær mót­væg­is­að­gerðir sem hægt væri að benda á og segir að Reykja­vík­ur­borg muni ekki geta fengið svæði, sem í dag er innan flug­vall­ar­girð­ingar, til upp­bygg­ingar í sumar.

Hann sagði einnig að honum þætti „eig­in­lega leið­in­legt að það þurfi að slá á putt­ana á meiri­hlut­anum í Reykja­vík aftur og aftur út af þessu“.

Óljóst er hverjar lyktir þessa máls verða eða hvaða áhrif orð ráð­herra í reynd hafa, en Reykja­vík­ur­borg fer með skipu­lags­valdið á svæð­inu og er nýja hverfið í Skerja­firði í deiliskipu­lags­ferli um þessar mundir.

Í fyrri áfanga upp­bygg­ing­ar­innar í Skerja­firði er gert ráð fyrir um 700 íbúðum, auk nýs leik- og grunn­skóla, en full­byggt hverfi á að vera með um 1.300-1.500 íbúðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár